Fréttablaðið - 11.06.2005, Síða 1
JÓN JÓSEP SÆBJÖRNSSON:
Stífpressa›ur
einkennisbúningur
FÓLK 48
ÆSKUDRAUMUR
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Nýtt
viðs
kipta
blað
með Fré
ttablaði
nu
alla miðvikudaga
Sögurnar • Tölurnar • Fólkið
SAMA VEÐRIÐ ÁFRAM! Hægur
vindur og bjart norðan- og austanlands en
annars skýjað. Milt í veðri og úrkomulítið.
VEÐUR 4
LAUGARDAGUR
11. júní 2005 - 156. tölublað – 5. árgangur
Eggert hleypti Liverpool
inn í meistaradeildina
Eggert Magnússon og
félagar í fram-
kvæmdarstjórn
UEFA gáfu í gær
grænt ljós á þátt-
töku Liverpool í
Meistaradeild
Evrópu í haust.
ÍÞRÓTTIR 40
Jeppinn nau›synlegur
í vei›ifer›ir
Í MIÐJU BLAÐSINS
• bílar • ferðir
▲
BANKASALAN Ríkisendurskoðun
rannsakar nú upplýsingar sem
snerta hugsanlegt vanhæfi Hall-
dórs Ásgrímssonar forsætisráð-
herra í söluferli ríkisbankanna
síðla árs 2002. Gögn sem gáfu
tilefni til athugasemda lágu þeg-
ar fyrir í minnisblaði Ríkisend-
urskoðunar á fundi hennar með
fjárlaganefnd á miðvikudag.
Engu að síður segir í annarri
samantekt Ríkisendurskoðunar
sama dag að engar spurningar
hafi vaknað um hæfi Halldórs.
„Ég tel eðlilegra að leitað
verði út fyrir raðir Ríkisendur-
skoðunar vegna fyrri niðurstöðu
hennar í málinu. Hættan er sú
að hún lendi í þeirri stöðu að
þurfa að endurskoða eigið álit,“
segir Lúðvík Bergvinsson al-
þingismaður.
Steingrímur J. Sigfússon for-
maður Vinstri grænna segir
málið alvarlegt. „Það eitt að Rík-
isendurskoðun sjái allt í einu
ástæðu til þess að hefja skoðun á
því hvort forsætisráðherra, þá-
verandi utanríkisráðherra, hafi
verið vanhæfur vegna persónu-
legra hagsmunatengsla eða
venslamanna hans þætti stór at-
burður í pólítík hvar sem er á
byggðu bóli. Frumkvæðiskyldan
hvílir vitanlega á þeim sem hef-
ur upplýsingar um að hann
kunni að vera vanhæfur. Hall-
dóri Ásgrímssyni hefði í því til-
viki borið að tilkynna opinber-
lega um hugsanlegt vanhæfi.
Forystumenn stjórnarand-
stöðunnar ræddu bankasölumál-
ið á fundi í gær, en þann fund
sóttu meðal annars fulltrúar
hennar í fjárlaganefnd. Stein-
grímur segir að rædd hafi verið
sú staða sem Ríkisendurskoðun
sé komin í. „Hún er í vaxandi
mæli að endurskoða eigin verk,
eigin niðurstöður, eigin skýrsl-
ur. Hægt er að kjósa sérstakar
rannsóknarnefndir á vegum Al-
þingis ef þurfa þykir,“ segir
Steingrímur. Sjá síðu 4/ -jh
▲
Krúttlegar rassamerking-
ar eða subbuskapur
Adolf Ingi Er-
lingsson, Ragnheið-
ur Guðfinna Guðna-
dóttir og Arnar
Gauti lögðu mat
sitt á hand-
boltabúninga
frá ýmsum ára-
tugum.
HELGAREFNI 50
Ríkisendursko›un
metur eigin yfirsjónir
Uppl‡singar á minnisbla›i Ríkisendursko›unar ur›u henni ekki tilefni rann-
sóknar á hugsanlegu vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar fyrr en í fyrradag. Stjórn-
arandsta›an segir Ríkisendursko›un í vaxandi mæli rannsaka eigin verk.
ÞORBJÖRG HELGA VIGFÚSDÓTTIR:
VEÐRIÐ Í DAG
Huldukona á hlaupum
Steinunn Jónsdóttir innanhúss-
arkitekt vakti athygli í vikunni
þegar hún seldi hlut
sinn í Íslandsbanka
og er talið að
hreinn hagnaður
hennar sé á annan
milljarð króna.
Steinunn er maður
vikunnar.
MAÐUR VIKUNNAR 16
Besti
vinurinn
Léttur öllari
Nýir sendiherrar:
Gu›mundur
til Svífljó›ar
SENDIHERRAR Guðmundur Árni
Stefánsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, verður sendiherra Ís-
lands í Svíþjóð í haust samkvæmt
áreiðanlegum heimildum Frétta-
blaðsins. Jafnframt er ákveðið að
Svavar Gestsson, núverandi
sendiherra í Stokkhólmi, flytjist
til Danmerkur og verði sendi-
herra í Kaupmannahöfn.
Samkvæmt sömu heimildum
verður Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir mannfræðiprófess-
or við Háskóla Íslands og fyrr-
verandi þingmaður Kvennalist-
ans einnig sendiherra í utanrík-
isþjónustunni sem og Markús
Örn Antonsson útvarpsstjóri.
Ekki hefur verið gengið endan-
lega frá því hvert þau fara og
jafnvel er búist við því að þau
taki ekki við embætti fyrr en
um áramót. Orðrómur hefur þó
verið um að Markús Örn verði
sendiherra í Kanada.
Fleiri breytingar eru fyrir-
hugaðar næsta haust samkvæmt
framgangskerfi utanríkisþjón-
ustunnar og verður formlega til-
kynnt um þær innan tíðar. - jh
Haförn á Vestfjörðum:
Flaug burt
me› lambi›
LANDBÚNAÐUR Það var ófögur sjón
sem blasti við Jóhönnu Krist-
jánsdóttur sauðfjárbónda við
Ísafjarðardjúp á fimmtudag þeg-
ar hún varð vitni að því þegar
haförn kom aðvífandi, greip með
sér um hálfs mánaðar gamalt
lamb og flaug burt með það. „Það
var ógeðslegt að sjá þetta. Lamb-
ið barðist á móti haferninum og
blóðið lak yfir veginn. Svo má
ekkert gera.“
Lambið var hluti af um 200 ám
Jóhönnu og segist hún hrædd um
að gripdeild arnanna haldi
áfram. „Það eru fjórir eða fimm
hafernir á þessu svæði og nú
ætla ég að fylgjast vel með.“
Jóhanna saknar ekki fleiri
lamba, en segist nú á næstunni
munu líta vel í kring um sig til að
fylgjast með ferðum arnanna. - ss
Heimssýning undirbúin:
Opinber kló-
sett hreinsu›
BANGKOK, AP Tælensk stjórnvöld
hafa nú hrundið af stað herferð
til að bæta hreinlæti á opinber-
um salernum landsins. Herferð-
in er til að bæta almennt ástand
klósetta til að mæta alþjóðleg-
um kröfum vegna klósetta-
heimssýningarinnar sem haldin
verður í Bankok á næsta ári.
Alþjóða klósettstofnunin
heldur svo aðalfund sinn sam-
fara heimssýningunni þar sem
tækninýjungar og sérfræði-
þekking verður rædd. Heil-
brigðisráðherra landsins segir
að nú verði klósett landsins gerð
hrein, skilvirk og örugg. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N
EINBEITT Í TÍSKUNNI Það var fjölmenni á tískusýningu Mosaic Fashion í Skautahöllinni í Reykjavík í gærkveldi. Meðal þess sem sýnt var
voru föt í nýjum tískulínum Oasis, Coast, Whistles og Karen Millen. Karen Millen var viðstödd sýninguna, ásamt fylgdarfólki. Einnig mætti
Samantha Mumba, söngkona frá Bretlandi. Þrátt fyrir þrálátan orðróm um að knattspyrnukempan David Beckham væri hér á landi til að
skoða hvað stæði til boða á tískusýningunni, sást hvorki tangur né tetur af kappanum.