Fréttablaðið - 11.06.2005, Qupperneq 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,22 64,52
117,21 117,77
78,55 78,99
10,55 10,61
10,01 10,07
8,52 8,57
0,60 0,60
94,55 95,11
GENGI GJALDMIÐLA 10.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
110,41 +0,17%
4 11. júní 2005 LAUGARDAGUR
LÖGREGLA Fjórir karlmenn og ein
kona réðust að ómerktum lögreglu-
bíl í Hafnarfirði og skemmdu tölu-
vert skömmu fyrir klukkan eitt á
aðfaranótt föstudags. Í bílnum
voru tveir óeinkennisklæddir lög-
reglumenn við eftirlit.
Lögreglubílnum var ekið út í
kant við Hverfisgötu í miðbæ
Hafnarfjarðar til að hleypa bíl
árásarmannanna hjá, en honum
hafði verið ekið á eftir lögreglu-
bílnum nokkra stund. Sá var þá
einnig stöðvaður og ráðist á lög-
reglubílinn þannig að fremri hlið-
arrúður voru brotnar og skemmdir
unnar á vélarhlíf og víðar.
Lögreglan í Hafnarfirði sagði
markmiðið virðast hafa verið að ná
til þeirra sem í bílnum voru. Lög-
reglumennirnir óeinkennisklæddu
handtóku tvo á staðnum, karlmann
á þrítugsaldri og tæplega tvítugan
pilt. Hinir mennirnir og konan voru
svo handtekin í gærdag og stóðu
yfirheyrslur yfir fram eftir degi.
„Eftir yfirheyrslur á fólkinu er
ekkert sem bendir til þess að árás-
in hafi beinst að lögreglumönnun-
um,” sagði Kristján Ó. Guðnason,
aðstoðaryfirlögregluþjónn í Hafn-
arfirði. Hann sagði að svo virtist
sem fólkið hafi farið mannavillt og
talið sig vera að ráðast á mann sem
það átti við einhverjar óuppgerðar
sakir. -óká
Ósamræmi í gögnum
Ríkisendursko›unar
Stjórnarandsta›an telur ótækt a› Ríkisendursko›un rannsaki sjálf hvort hennar eigin sk‡rslur gefi tilefni
til vanhæfisathugunar á flætti forsætisrá›herra vi› sölu ríkisbankanna. Gögn embættisins fela í sér mis-
vísandi uppl‡singar um flátt félags í eigu ættingja forsætisrá›herra í söluferli ríkisbankanna.
STJÓRNMÁL Á fundi fjárlaga-
nefndar með Sigurði Þórðarsyni
ríkisendurskoðanda og fulltrú-
um Framkvæmdanefndar um
einkavæðingu á miðvikudag
taldi ríkisendurskoðun enga
ástæðu til þess að rannsaka
hugsanlegt vanhæfi Halldórs
Ásgrímssonar í söluferli ríkis-
bankanna. Í samantekt Ríkisend-
urskoðunar 7. júní segir að eng-
ar spurningar hafi vaknað af
hálfu Ríkisendurskoðunar enda
engin gögn um að hagsmunir
hans rækjust eða kynnu að
rekast á hagsmuni seljanda í
ferlinu.
Í minnisblaði Ríkisendur-
skoðanda, einnig dagsettu 7. júní
síðastliðinn, koma hins vegar
fram upplýsingar sem embætti
hans hefur nú ákveðið að taka til
sérstakrar athugunar. Þar er
meðal annars bent á að óná-
kvæmt sé að halda því fram að
félagið Hesteyri, sem Skinney
Þinganes og Kaupfélag Skag-
firðinga notuðu til kaupa á stór-
um hlut í Keri, hafi á þessum
tíma verið einvörðungu í eigu
kaupfélagsins.
Lúðvík Bergvinsson þingmað-
ur Samfylkingarinnar sat fund-
inn í fjárlaganefnd á miðviku-
dag. Hann bendir á að Hesteyri
hafi fyrst átt aðild að S-hópnum í
gegnum Ker og síðan í gegnum
eignarhald sitt á hlutabréfum í
VÍS. „Fyrir liggur að Hesteyri
hagnaðist um 700 milljónir á því
þriggja mánaða tímabili sem fé-
lagið átti hlutabréf í Keri. Þar
sem forsætisráðherra gegndi
starfi varaformanns ráðherra-
nefndar um einkavæðingu á
þessu tímabili, koma ákvæði
stjórnsýslulaga um vanhæfi til
skoðunar,“ segir Lúðvík.
Forystumenn stjórnarand-
stöðunnar ræddu bankasölumál-
ið á fundi í gær, en þann fund
sóttu meðal annars fulltrúar
hennar í fjárlaganefnd. „Ríkis-
endurskoðun er í vaxandi mæli
að endurskoða eigin verk. Hún
hefur endurtekið komið að mál-
inu á fyrri stigum, mætt fyrir
nefndir og talið málin upplýst,“
segir Steingrímur J. Sigfússon
formaður Vinstri grænna. Hann
bendir á að unnt sé að kjósa sér-
stakar rannsóknarnefndir á veg-
um Alþingis ef þurfa þykir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
formaður Samfylkingarinnar
bendir á að hægt sé að leita til
sérfræðinga Háskóla Íslands
eða annarra lögfróðra þannig að
Ríkisendurskoðun sé ekki sett í
þá stöðu að rannsaka eigin verk.
Ekki náðist í Sigurð Þórðar-
son ríkisendurskoðanda í gær.
Steingrímur Ólafsson upplýs-
ingafulltrúi Halldórs Ásgríms-
sonar segir að forsætisráðherra
ætli ekki að tjá sig um málið fyrr
en að lokinni rannsókn Ríkisend-
urskoðunar. johannh@frettabladid.is
Noregur-Svíþjóð:
Konungar
vígja brú
NOREGUR, AP Konungar Noregs og
Svíþjóðar, Haraldur V og Carl
XVI Gústaf, vígðu við hátíðlega
athöfn í gær nýja brú milli land-
anna. Á miðri brúnni, sem liggur
yfir Svínasund suður af Óslófirði,
afhjúpuðu konungarnir minnis-
merki í formi tveggja útréttra
handa, tákn fyrir vináttu grann-
landanna þegar rétt 100 ár eru lið-
in síðan Norðmenn slitu ríkjasam-
bandinu við Svíþjóð.
Haraldur Noregskonungur
sagði brúna, sem er 700 metra
löng einbogabrú, vera „sterkt
tákn um einingu bræðraþjóðanna
tveggja“.
Nýju brúnni er ætlað að auð-
velda samgöngur milli landanna,
en gamla brúin, sem var byggð
1946, var orðin flöskuháls á þess-
ari fjölförnu leið. ■
Ómissandi í bílinn
60 ný landshlutakort og 38
nákvæm kort af Reykjavík
og öðrum þéttbýlisstöðum.
Söfn • sundlaugar •
tjaldsvæði • golfvellir •
bensínstöðvar • tíðnisvið
útvarpsstöðva ofl.
Ítarleg skrá yfir rúmlega
9000 örnefni og 2000
götur á höfuðborgar-
svæðinu.
edda.is
Ný útgáfa
VEÐRIÐ Í DAG
Ofbeldismenn gerðu árás í Hafnarfirði að nóttu:
Fóru mannavillt og ré›ust á lögreglu
VIÐ HAFNARFJARÐARHÖFN Fólk sem þóttist eiga óuppgerðar sakir við annan mann fór
illilega mannavillt í Hafnarfirði í fyrrinótt þegar það réðst á óeinkennisklædda lögreglu-
menn þar sem þeir voru við störf. Tveir voru handteknir á staðnum og þrjú skömmu fyrir
hádegi í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
LÖGREGLUFRÉTTIR
ELDUR BRAUST ÚT Í SPENNUSTÖÐ
hafnarsvæðisins á Sauðárkróki
um klukkan 5:20 í gærmorgun.
Lögregla og slökkvilið var kallað
á staðinn en þegar tekist hafði að
slökkva eldinn var allt brunnið
innan úr stöðinni. Einhverjar taf-
ir urðu á vinnu í vinnslustöðvum.
KONUNGLEG VÍGSLA Hákon krónprins Nor-
egs og kona hans Mette-Marit prinsessa
heilsa Carli Gustaf Svíakonungi við vígsluat-
höfnina í gær. Með á myndinni eru norsku
konungshjónin, Sonja Svíadrottning og
Viktoría Svíaprinsessa, og fleira tignarfólk.
SAMANTEKT OG MINNISBLAÐ RÍKISENDURSKOÐUNAR Bæði skjölin eru dagsett 7. júní síðastliðinn. Í samantektinni er ekki talin ástæða
til athugunar á vanhæfi forsætisráðherra. Í minnisblaðinu er talað um ónákvæmar fullyrðingar um eignarhald á félaginu Hesteyri sem
var í eigu Kaupfélags Skagfirðinga og Skinneyjar-Þinganess, fyrirtækis í eigu fjölskyldu forsætisráðherra.