Fréttablaðið - 11.06.2005, Page 16
Viðey er í raun tvær eyjar, Aust-
urey og Vesturey. Þessar tvær
eyjar eru tengdar með eiði. Eiðið
hefir orðið til úr möl og sandi sem
hafaldan hefir molað úr Vestur-
eynni. Þess fínni sem sandurinn
er, þess lengra berst hann austur
með ströndinni. Inni við Kríusand
er aldan orðin það lág að sandur-
inn sem sest til er orðinn nokkuð
fínn.
Strandlínan hefir verið að mót-
ast á u.þ.b. tíu þúsund árum og
var í jafnvægi við öldukraftana
áður en byrjað var að breyta
ströndinni landmegin vegna hafn-
argerðar. Fulltrúi hafnarinnar
hefir sagt að landrof við Kríusand
sé af eðlilegum orsökum og vísar
til landrofs í Engey, þetta er rétt.
Engey rofnar að vestanverðu
vegna ágangs sjávar, möl og
sandur berast austur með strönd-
inni og hafa myndað heilmikinn
hala austur úr eynni, sem af ein-
hverjum ástæðum heitir Engeyj-
artagl.
Þórhildur Guðmundsdóttir
verkfræðingur hjá Verkfræði-
stofu Sigurðar Thoroddsen hefir
gert umhverfismat vegna hafnar-
gerðar við Viðeyjarsund. Þórhild-
ur komst að því með útreikning-
um að uppfylling og garður utan
við Skarfaklett myndu ekki hafa
þau áhrif að hafaldan hækkaði við
strönd Viðeyjar.
Nú hefir orðið talsvert landrof
við Kríusand og ljóst að það hefir
ekki orðið vegna hækkunar öldu
sem er að koma beint utan af haf-
inu. Það er þekkt fyrirbæri við
hafnargerð með miklum uppfyll-
ingum, dýpkun og þéttum við-
leguköntum að ölduorka getur
safnast upp og valdið ýmsum usla.
Svo er annar möguleiki. Vindat-
renna frá botni Elliðavogs að
Kríusandi er þrír kílómetrar, á
svo langri leið getur myndast
rúmlega eins metra há vindbára,
ef vindhraði er tuttugu metrar á
sekúndu af suðri, ef áhrifa botns
og stranda gætir ekki.
Nú háttar svo til þarna við Ell-
iðavog að rekin hafa verin niður
stálþil, fyllt upp og dýpkað,
þannig að fjaran sem aldan
sveigði upp í er horfin og sunnan-
aldan því hærri úti á Viðeyjar-
sundi en hún var áður. Ströndin
mótaðist af ríkjandi veðurfari og
Kríusandur var í jafnvægi við
umhverfið áður en hafnargerðin
hófst. Hvað það er nákvæmlega
sem orsakar landrofið er nokkuð
sem Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen þarf að upplýsa og
gera tillögur til úrbóta.
Höfundur er tæknifræðingur.
Viðskipti með fjögurra prósenta
hlut í Íslandsbanka í vikunni
vöktu athygli og í kjölfarið vökn-
uðu vangaveltur um meiriháttar
umrót og jafnvel sameiningu fyr-
irtækja á fjármálamarkaðnum.
Kaupandi bréfanna var fjárfest-
ingarfélagið Burðarás en selj-
andinn var Steinunn Jónsdóttir
innanhússarkitekt. Viðskipt-
in hljóðuðu upp á 7,3 millj-
arða króna og í Frétta-
blaðinu á fimmtudag
var talið að hreinn
hagnaður Steinunnar
væri á annan millj-
arð króna.
Steinunn Jóns-
dóttir er nýlega orð-
in 37 ára, fædd í end-
aðan maí 1968.
Fyrstu árunum varði
hún í Breiðholtinu en
fluttist þaðan með
fjölskyldu sinni í Arn-
arnesið þegar hún var
unglingur.
Hún var samvisku-
samt barn, raunsæ og
jarðbundin og sinnti
skólagöngu sinni af alúð.
Með náminu æfði hún sund
og var góður sundmaður.
Fljótlega eftir stúdentspróf
frá Menntaskólanum í Reykja-
vík hélt Steinunn til Banda-
ríkjanna til náms í innan-
hússarkitektúr. Það lá þó
ekki beint við að nema
þau fræði því jafn-
framt hafði hún áhuga
á að fara í listnám. Af
því lét hún svo verða fyr-
ir nokkrum misserum þeg-
ar hún fór aftur til Banda-
ríkjanna og þá í listahá-
skóla. Enn lærir Stein-
unn og er nú hálfnuð með
MBA-nám í Háskólanum í
Reykjavík. Hún er sögð topp-
námsmaður sem nýtur þess að
læra.
Hún hefur ekki unnið mikið að
innanhússarkitektúr en tekið að
sér sjálfstæð verkefni og um
tíma vann hún á teiknistofunni
Glámu-Kím.
Steinunn er elst þriggja systk-
ina, dóttir hjónanna Jóns Helga
Guðmundssonar, sem kenndur er
við Byko, og Bertu Bragadóttur
kennara. Stórfjölskyldan er sögð
samhent og samgangur talsverð-
ur. Eins og gengur með elstu börn
fór hún fyrir systkinum sínum á
æskuárunum og var full ábyrgð-
ar gagnvart þeim.
Sjálf á Steinunn tvö börn,
stúlku á ellefta ári og dreng á átt-
unda ári. Faðir þeirra og fyrrver-
andi eiginmaður Steinunnar er
Hannes Smárason, stjórnarfor-
maður FL group.
Hún heldur góðu sambandi við
nokkrar vinkvenna sinna frá
æskuárunum og fer það orð af
henni að hún sé einstaklega
traustur og góður vinur. Steinunn
lifir heilbrigðu lífi og hugsar vel
um líkama og sál. Eitt af hennar
helstu áhugamálum er lang-
hlaup og hefur hún hlaupið
nokkur maraþon um ævina.
Til að ná langt í hlaupum
þarf aga og skipulag og að
því býr Steinunn Jónsdótt-
ir. Viðmælendum Frétta-
blaðsins bar saman um að
hún anaði aldrei út í neitt
heldur framkvæmdi hún
hlutina að vel athugðu máli.
Hún þykir alvörugefin, er
laus við galgopahátt og sver
sig þannig í föðurættina.
Ekki er langt síðan Stein-
unn gaf sig að viðskiptum og
vakti það talsverða athygli
þegar hún um mitt síðasta ár
eignaðist hlut í Íslandsbanka.
Það vakti líka athygli þegar hún
settist í bankaráð Íslandsbanka
í nóvember og enn vekur hún at-
hygli nú þegar hún svo selur hlut
sinn í bankanum. Ekki er óvar-
legt að ætla að hún láti frekar að
sér kveða í íslensku athafnalífi í
framtíðinni og geri viðskiptin
að ævistarfi með einhverj-
um hætti. Hefur hún meðal
annars áhuga á að tengja
saman listir og viðskipti
og elur með sér draum um
að koma á fót listamannasetri
þar sem fólki gefst færi á að
dvelja um tíma og sinna
list sinni. Í því augnamiði
hefur hún þegar keypt í jörð í
Skagafirði, en þar á hún rætur í
föðurættina.
Steinunn lætur lítið fyrir sér
fara á opinberum vettvangi, forð-
ast kastljós fjölmiðlanna og veit-
ir sjaldan viðtöl. Er sú afstaða
sögð liggja í karakter hennar,
fremur en að hún hafi tekið með-
vitaða ákvörðun um að halda sig
utan sviðsljóssins.
Ólíklegt er að það breytist
með árunum; líklegra er að Stein-
unn Jónsdóttir verði áfram nokk-
urs konar huldukona í viðskipta-
lífinu og láti verkin tala. ■
11. júní 2005 LAUGARDAGUR
H ›
Hefurflúsé›
DV í dag
Unglingaheimiliríkisins
Kemst aldrei yfir
að hafa misst
drengina
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 126. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
Helgarblað
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005
Hvar búa bankastjórarnir... Og hvað hvílir á húsunum þeirra...
Veit ekki
hvort hún
ætlar að
ættleiða
Vann ríkið
Fáar konur hafa misst jafnmikið og Jóna Dóra Karlsdóttir. Og fáar konur hafa unnið jafnskynsamlega
úr harminum sem helltist yfir hana og eiginmann hennar, Guðmund Árna Stefánsson, þegar þau
misstu unga syni sína í bruna fyrir 20 árum. Þau héldu áfram að lifa og eignuðust þrjá drengi.
Hún kallar ekki allt ömmu sína en veit að hún losnar aldrei við óttann.
Bls. 18-20
Bls. 8
Bls. 32-33
Bls. 14-15
Bls. 12-13
HÁRLEYSI Í TÍSKUAldrei betra að vera sköllóttur
TUTTUGU ÁR FRÁ BRUNANUM SEM TÓK FANNAR OG BRYNJAR
Heiðar afturtil flugfreyjanna
Bls. 29
Fyrirsætur í hvalaskoðunMeð kampavín í kraftgalla
Baksíða
Tuttugu
ár frá
brunanum
sem tók
Fannar og
Brynjar
MAÐUR VIKUNNAR
Huldukona
á hlaupum
STEINUNN JÓNSDÓTTIR,
KAUPSÝSLUKONA OG INNANHÚSSARKITEKT
TE
IK
N
IN
G
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
–
H
U
G
VE
R
K
A.
IS
Kríusandur
Nú hefir or›i› talsvert landrof
vi› Kríusand og ljóst a› fla›
hefir ekki or›i› vegna hækk-
unar öldu sem er a› koma
beint utan af hafinu. fia› er
flekkt fyrirbæri vi› hafnarger›
me› miklum uppfyllingum,
d‡pkun og fléttum vi›legukönt-
um a› ölduorka getur safnast
upp og valdi› ‡msum usla.
GESTUR GUNNARSSON
SKRIFAR UM LANDROF Í VIÐEY