Fréttablaðið - 11.06.2005, Síða 31
3LAUGARDAGUR 11. júní 2005
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Hvernig bíl á ég að kaupa?
Eigi maður áhugamál sem jaðrar við dellu er næsta víst að vinir
og vandamenn, jafnvel gestir og gangandi, reyni að nýta mann
sem einhvers konar miðlægan gagnagrunn. Ég get til dæmis ekki
hitt veðurfræðing án þess að spyrja hann úti í veðrið næstu daga.
Maður á heldur ekki gott með að spjalla við bónda án þess að
sprettan, sauðburðurinn eða verð á mjólkurlítranum komi til tals.
Að sama skapi er bílaáhugafólk stundum spurt út í bíla. Vinsæl
spurning þetta sumarið virðist vera „hvernig bíl á ég að fá mér?“.
Jason Barlow, ritstjóri Car-tímaritsins, heldur því fram að það
séu grundvallarmannréttindi að geta valið um hvernig bíl maður
á. Hann bendir jafnframt á að bíleigendur þurfi fyrst og fremst
að velja sér bíl eftir því hvernig farartæki þeir þurfa. Ég hef
reynt að ganga út frá sama punkti þegar ég er spurður. „Hverju
ertu að leita að?“ spyr ég á móti. Þá byrjar fólk að telja upp hvaða
kosti það vill að prýði bílinn sinn. Ef hann á að vera eyðslugrann-
ur er sjálfgefið að hann er í minni kantinum. Ef hann má ekki bila
er best að kaupa bíl í ábyrgð. Ef þú vilt hafa pláss fyrir fólk og
farangur þarf bíllinn að vera stór og þá eyðir hann meiru. Á móti
kemur að hann ver þig betur í umferðaróhöppum. Ef þetta er hins
vegar bara spurning um að komast frá A til B geturðu í raun
keypt hvaða dollu sem er.
Aðrir þættir sem ég ráðlegg fólki að skoða eru bilanatíðni,
verð á varahlutum og þjónusta hjá umboði. Til þess er langbest
að spyrja fólk sem hefur átt bíla sömu tegundar en hefur saman-
burð af öðrum tegundum. Spurðu út í hvað bilaði, hversu oft og
hvað kostaði að gera við það. Var gott að eiga við umboðið? Voru
varahlutirnir lengi á leiðinni? Fór bíllinn alltaf í gang, hvernig
var að ferðast í honum, hverju var hann að eyða? Því miður eru
þeir sem eru að selja bílinn ekki endilega sannsöglastir um þessi
atriði.
Þegar þú hefur ákveðið hvernig bíl þú þarft, hefur skannað
verðið á þeim tegundum sem koma til greina og fengið reynslu-
sögur af þeim frá eigendum – þá getur þú tekið yfirvegaða
ákvörðun um hvaða bíl þú átt að kaupa.
Og fyrst ég var að vitna í Jason Barlow hér að ofan er rétt að
enda á annarri tilvitnun í þann ágæta mann: Það er aldrei, aldrei
nokkurn tíma ástæða til að kaupa Hummer.
www.toyota.is
Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð.
Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
28
63
5
0
6/
20
05
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
Opel Vectra S/D CD
F. skráð. 07.1998, ekinn 116.000 km
Vél: 1600cc 5 g
Dyr: 4
Hljómtæki: Útvarp/geislaspilari
Litur: Hvítur
Verð: 730.000 kr.
Tilboðsverð: 390.000. kr.
Mazda 323 H/B LXi
F. skráð. 02.1997, ekinn 123.000 km
Vél: 1300cc 5 g
Dyr: 3
Hljómtæki: Útvarp/geislaspilari
Litur: Rauður
Verð: 390.000 kr.
TOYOTA Rav4 4wd
F. skráð. 04.2004, ekinn 10.900 km
Vél: 2000cc 5 g dísel
Dyr: 5
Hljómtæki: Útvarp/segulband
Litur: Dökkgrár
Verð: 2.590.000 kr.
Opel Zafira-W/G
F. skráð. 11.2001, ekinn 53.500 km
Vél: 1800cc ssk.
Dyr: 5
Hljómtæki: Útvarp/geislaspilari
Litur: Rauður
Verð: 1.660.000 kr.
Tilboðsverð: 1.270.000 kr.
MMC Outlander Comfort
F. skráð. 04.2004, ekinn 24.761 km
Vél: 2400cc ssk.
Dyr: 5
Hljómtæki: Útvarp/geislaspilari
Litur: Grár
Verð: 2.790.000 kr.
Land Rover Freelander V6
F. skráð. 12.2001, ekinn 47.000 km
Vél: 2500cc ssk.
Dyr: 5
Hljómtæki: Útvarp/geislaspilari
Litur: Svartur
Verð: 2.200.000 kr.
Hyundai Coupe S/D FX
F. skráð. 01.1998, ekinn 100.000 km
Vél: 1600cc 5 g
Dyr: 3
Hljómtæki: Útvarp/geislaspilari
Litur: Gulur
Verð: 450.000 kr.
Opel Astra W/G
F. skráð. 04.2000, ekinn 75.650 km
Vél: 1600cc 5g
Dyr: 5
Hljómtæki: Útvarp/segulband
Litur: Blár
Verð: 890.000 kr.
Tilboðsverð: 650.000. kr.
Hafa unun af að ferðast og kynnast nýju fólki
BMW með vél ársins
VÉL ÁRSINS VAR HALDIN Á DÖGUN-
UM OG HLAUT BMW SEX VERÐLAUN.
BMW hlaut samtals sex verðlaun á
hinni árlegu verðlaunahátíð Vél ársins,
en hátíðin er
lokapunktur
alþjóðlegu
sýningarinnar
Engine Expo
sem fór fram
í Stuttgart
nýlega. BMW vann auk þess til fimm
annarra verðlauna. BMW hlaut verð-
laun fyrir Vél ársins fyrir 5,0 lítra V10-
vélina sem er í nýju M5 og M6 sportbíl-
unum. Jafnframt sigraði 343 ha 4,3 lítra
vélin í M3 í sínum flokki fimmta árið í
röð, sem er einsdæmi í sögu sýningar-
innar. Vél ársins er virtustu verðlaunin
sem veitt eru innan bílaiðnarins fyrir
framúrskarandi vélartækni.
Öruggasti aksturinn
VÍS EFNIR TIL KEPPNI Á MEÐAL
UNGRA ÖKUMANNA.
Vátryggingafélag Íslands býður 20 ung-
um ökumönnum, á aldrinum 17 til 19
ára, að hafa SAGA ökurita í bílunum
sínum í sumar. Þannig geta ökumenn-
irnir skráð aksturlag sitt reglubundið og
keppt um vegleg verðlaun fyrir örugg-
asta aksturinn. Ökumennirnir þurfa að
vera bíleigendur og fá þeir verulegan
afslátt af ábyrgðartryggingu bílanna í
eitt ár og einn úr hópnum fær að
leikslokum ferð fyrir tvo í ökuskóla
BMW í Þýskalandi þar sem viðkomandi
fær ökukennslu á fyrsta flokks ökutækj-
um undir handleiðslu þaulreyndra
kennara.