Fréttablaðið - 11.06.2005, Síða 54
11. júní 2005 LAUGARDAGUR
> Við þökkum ...
... Völu Flosadóttur fyrir góðu
stundirnar sem hún hefur
gefið íslensku þjóðinni í
gegnum tíðina. Bronsstund-
in í Sydney þar sem hún
varð fyrsta og eina íslenska
konan til þess að vinna
verðlaun á Ólympíuleikum
mun lifa meðal okkar allra
um ókomna tíð.
Takk fyrir allt Vala.
Tap í úrslitaleiknum
Kristján Helgason tapaði úrslitaleiknum
á Evrópumóti áhugamanna í snóker í
gær fyrir Alex Borg frá Möltu. Kristján
vann 2 ramma en Borg sjö en Kristján
byrjaði úrslitaleikinn mjög illa. Kristján
vann Mark Allen í undanúrslitum en
Allen er núverandi heimsmeistari og
fyrrum Evrópumeistari áhugamanna.
sport@frettabladid.is
38
> Við vonumst eftir ...
... að FH-ingar verði heppnir í
drættinum fyrir Evrópukeppni
meistaraliða í sumar og
dragist á móti Evrópumeist-
urum Liverpool. Möguleik-
inn er fyrir hendi í annarri
umferð takist báðum liðum
að komast áfram í gegnum
1. umferðina.
FH-ingar taka á móti firótturum í Kaplakrika í dag. fia› hefur veri› ólíkt gengi hjá li›unum í upphafi
móts enda skilja a› 11 stig og 9 mörk eftir fyrstu fjórar umfer›irnar. Framarar og Skagamenn ver›a líka
a› rífa sig upp eftir skelli í sí›asta leik.
Sjö sigrar í röð og 20 leikir án taps
FÓTBOLTI FH-ingar eru á toppi
Landsbankadeildarinnar ásamt
Valsmönnum með fullt hús eftir
fyrstu fjórar umferðirnar. Deildin
hefst að nýju í dag eftir 11 daga
landsleikjahlé. Valsmenn fara til
Keflavíkur á sunnudaginn en FH-
ingar hefja leik í dag þegar þeir
taka á móti Þrótturum í
Kaplakrika. Í hinum leik dagsins
taka Framarar á móti Skagamönn-
um en bæði liðin töpuðu illa í síð-
asta leik. Báðir leikirnir hefjast
klukkan 14.00.
Það hefur verið ótrúleg sigur-
ganga hjá FH-liðinu sem hefur nú
unnið sjö deildarleiki í röð og enn
fremur leikið 20 leiki í röð án þess
að tapa leik. FH tapaði síðast stig-
um í 15.umferð í fyrra þegar
Skagamenn náðu 2-2 jafntefli í
Krikanum. Hafnarfjarðarliðið
hefur hins vegar ekki tapað leik
síðan gegn Fylki í Árbænum 22.
maí í fyrra. FH-liðið er enn nokk-
uð frá metum Valsmanna sem
unnu 16 leiki í röð 1978 og léku 36
leiki án taps frá 1977-1979. FH-lið-
ið getur hins vegar eins og Vals-
menn orðið eitt af aðeins fjórum
liðum í sögu tíu liða efstu deildar
sem nær að vinna fimm fyrstu
leiki sína. Valsmenn unnu 16
fyrstu leiki sína 1978, Skagamenn
voru með fullt hús eftir 12 fyrstu
leiki sína 1995 og tveimur árum
síðar unnu Keflvíkingar sex
fyrstu leiki sína.
8 leikir án sigurs
Þróttarar náði sínu fyrsta stigi
í síðasta leik í 2-2 jafntefli við
Keflavík en liðið tapaði fyrstu
þremur leikjum tímabilsins.
Þróttur náði líka aðeins einu stigi
út úr fjórum síðustu leikjum sín-
um þegar þeir voru síðast í úr-
valsdeildinni 2003 og hafa því
leikið 8 leiki í röð án sigurs. Þegar
Þróttarar heimsóttu FH-inga það
sumar var þó allt annar gangur á
liðinu en eftir 1-4 sigur Þróttara í
Kaplakrika 5. júlí 2003 var liðið í
2. sæti deildarinnar. En Þróttur
vann aðeins einn af síðustu níu
leikjum sínum og hefur nú aðeins
fengið 5 stig út úr síðustu 13 leikj-
um sínum í Landsbankadeildinni.
Skorar alltaf á heimavelli
FH-ingnum Tryggva Guð-
mundssyni mistókst að skora í
leiknum á KR-velli og um leið var
ljóst að met Arnars Gunnlaugs-
sonar frá 1992-95 stendur áfram
en Arnar skoraði þá í 11 deildar-
leikjum í röð. Tryggvi hafði skor-
að í sex síðustu leikjum sínum
með ÍBV 1997 og þeim þremur
fyrstu með FH-liðinu í sumar.
Tryggvi getur samt enn bætt við
sitt eigið met en hann hefur nú
skorað í 14 heimaleikjum í röð
með liðum sínum í efstu deild á Ís-
landi. Tryggvi skoraði í öllum
heimaleikjum sínum með ÍBV
1997 auk þeirra fjögurra síðustu
árið á undan. Þá skoraði Tryggvi í
fyrsta heimaleik sínum með FH
einmitt gegn ÍBV.
Tvö ólík lið hjá Fram
Framarar hafa spilað sem tvö
lið í sumar, annars vegar liðið sem
spilar á heimavelli og hefur unnið
báða leiki sína með markatölunni
6-0 og hins vegar liðið sem hefur
farið stigalaust og með markatöl-
una 0-4 út úr tveimur leikjum sín-
um utan Laugardalsins. Framarar
töpuðu síðasta leik 0-3 líkt og
Skagamenn sem mæta í Dalinn í
dag. Skagamenn töpuðu fyrir Val,
0-2, í eina útileik sumarsins til
þessa en unnu 2 af 3 heimaleikjum
sínum. Tapið gegn Fylki í síðustu
umferð hefur örugglega hrist upp
í herbúðum liðsins og það má bú-
ast við róttækrum breytingum hjá
Ólafi Þórðarsyni fyrir leikinn í
dag.
ooj@frettabladid.is
Ameríski milljónamæringurinn Malcolm Glazer er farinn að taka til hendinni á Old Trafford:
FÓTBOLTI Malcom Glazer, nýr
meirihlutaeigandi í Manchester
United, er strax farinn að ergja
aðdáendur liðsins með afskiptum
sínum af rekstri félagsins.
Spurst hefur út að miðaverð á
úrvalsdeildarleiki á heimavellin-
um Old Trafford muni hækka úr
30 pundum í 46 pund á fimm
árum. Þá hyggst Glazer einnig
hækka miðaverð á meistaradeild-
arleiki um 25 prósent.
Þetta mælist afar illa fyrir hjá
aðdáendum félagsins sem efast
um að breytingarnar verði til
þess að auka tekjur til félagsins.
„Ég er ekki viss um að leikvang-
urinn verði fullur á móti Charlton
eða Portsmouth á virkum degi,
eins og hefur verið í mörg ár,“
segir Andy Mitten, einn af rit-
stjórum blaðsins United We
Stand, sem er aðdáendablað
stuðningsmanna Manchester
United.
Malcolm Glazer ætlar að
freista þess að auka tekjur hjá fé-
laginu umtalsvert fyrir árið 2010
og er hækkunin á miðaverðinu
liður í því.
Margir aðdáenda félagsins ef-
ast um að þessi aðgerð muni
verða til þess að meiri peningar
skili sér í kassann hjá félaginu,
þar sem þetta muni hafa fælandi
áhrif á fólk. „Hvernig á eftir að
ganga að fylla leikvanginn þegar
aðdáendur snúa baki við félaginu
á hverjum degi? Ég hef því miður
ekki góða tilfinningu fyrir þess-
ari þróun,“ sagði Nick Towle, for-
svarsmaður hluthafafélags sem
upphaflega var stofnað til þess
koma í veg fyrir að Glazer næði
undirtökum í félaginu. -mh
A›dáendur United æfir vegna hækkunar á mi›aver›i
Fyrsti og eini kvenkyns íslenski íþrótta-
maðurinn til að komast á verð-
launapall Ólympíuleikanna
hefur hætt keppni þótt
hún sé ekki nema 27 ára
gömul. Vala Flosadóttir
stökk sig inn í hjörtu ís-
lensku þjóðarinnar í
Sidney árið 2000 er
hún hafnaði í þriðja
sæti í stangarstökks-
keppn-
inni
en
hún hafði leitt keppnina um tíma.
Hæðin sem hún stökk var 4,50 – mesta
hæð sem hún hafði stokkið og bætti
hún aldrei þann árangur. Vala náði
sér aldrei á strik eftir Ólympíu-
leikana í Sidney og náði ekki
lágmarkinu fyrir leikana í Aþ-
enu í fyrra.
„Ég get svo sem ekki sagt hvað
tíminn hefur verið langur sem
leiddi til þessa en ég er alla
vega búin að taka ákvörðun um
að hætta núna, það var bara
kominn tími á það,“ sagði Vala í
samtali við Fréttablaðið. „Ég
er mjög sátt og líður
virkilega vel. Þetta
er eitthvað sem
hefur gerst
hægt og rólega og þurfti ég á þessum
tíma að halda.“
Þó svo að Vala hafi ekki náð að fylgja
eftir þessu glæsilega árangri í Ástralíu
er ferill hennar engu að síður stórglæsi-
legur. Hún varð Evrópumeistari og vann
silfur á heimsmeistaramóti og tvíbætti
heimsmetið innanhúss árið 1998. Og
vitanlega bronsverðlaun á Ólympíuleik-
um. „Ég er eiginlega stoltari af ferlinum
nú þegar ég er hætt. Ég byrjaði svo ung
og var í rauninni hálfgerður óviti í
íþróttum þegar ég vann á mínu fyrsta
stórmóti. En ég hef gengið í gegnum
margt og fengið að ferðast og hitta fólk
sem ég hefði annars aldrei hitt. Ég er
mjög þakklátt fyrir það.“
VALA FLOSADÓTTIR HÆTT Í STANGARSTÖKKINU: SÁTT VIÐ MÍNA ÁKVÖRÐUN
Hef gengið í gegnum margt á ferlinum
BESTUR Á VELLINUM Meistararnir í Detroit
réðu ekkert við Manu Ginobili hjá Spurs í
fyrsta leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Birgir Leifur og Ólöf María:
Komust bæ›i
áfram í gær
GOLF. Íslandsmeistarinn Ólöf Mar-
ía Jónsdóttir komst áfram í gegn
um niðurskurðinn á opna franska
meistaramótinu í golfi í gær, þeg-
ar hún lék annan hringinn á
tveimur höggum yfir pari.
Fyrri daginn lék hún einnig á
tveimur höggum undir pari og
lauk því keppni í gær á fjórum
yfir, sem nægði henni til áfram-
haldandi þáttöku á mótinu.
Birgir Leifur Hafþórsson
komst einnig áfram á áskorenda-
mótinu í Esbjerg í Danmörku, en
hann lék annan hringinn á mótinu
á fimm höggum yfir pari, sem
nægði honum til áframhaldandi
þátttöku, en slæm skilyrði voru á
mótinu og því nægði honum að
leika á átta höggum yfir pari til að
komast áfram. -BB
Lokaúrslit NBA í fyrrinótt:
Spurs vann
fyrsta leikinn
KÖRFUBOLTI. San Antonio Spurs
vann nokkuð öruggan sigur á
Detroit Pistons í fyrsta leik lið-
anna í lokaúrslitum NBA-deildar-
innar í fyrrinótt, 84-69. Eins og
tölurnar bera með sér var þetta
mikill baráttuleikur tveggja bestu
varnarliðanna í deildinni, en það
var Argentínumaðurinn Manu
Ginobili sem gerði gæfumuninn í
sóknarleiknum fyrir San Antonio.
Hann skoraði 15 af 26 stigum
sínum í fjórða leikhlutanum með
körfum í öllum regnbogans litum
eins og honum einum er lagið og
ljóst er að Pistons verða að finna
svar við leik hans fljótlega ef ekki
á illa að fara fyrir liðinu. Tim
Duncan kom næstur með 24 stig
og hirti 17 fráköst.
Chauncey Billups var stiga-
hæstur í liði meistaranna með 25
stig, en félagar hans náðu sér
aldrei á strik í sóknarleiknum
gegn stífri vörn San Antonio.
Fastlega má reikna með að
leikmenn Pistons komi dýrvit-
lausir til leiks í næsta leik, sem
verður háður á heimavelli Spurs
eins og sá fyrsti, en þeir verða að
laga vel til í sóknarleiknum hjá
sér ef þeir ætla ekki að fara aust-
ur aftur með 2-0 á bakinu. - bb
EKKI HÆGT AÐ BYRJA BETUR Ólafur Jóhannesson þjálfari FH-liðsins hefur ekki séð sína
menn tapa deildarleik í meira en ár. Fréttablaðið/Hari
LANDSBANKADEILDIN
Leikir helgarinnar:
LAUGARDAGUR
FH–ÞRÓTTUR 14.00
Fram–ÍA 14.00
SUNNUDAGUR
ÍBV–KR 14.00
Keflavík–Valur 19.15
FYLKIR–GRINDAVÍK 20.00
STAÐAN:
FH 4 4 0 0 12–1 12
VALUR 4 4 0 0 10–2 12
KEFLAVÍK 4 2 1 1 7–8 7
FYLKIR 4 2 0 2 7–5 6
FRAM 4 2 0 2 6–4 6
KR 4 2 0 2 4–4 6
ÍA 4 2 0 2 4–7 6
GRINDAVÍK 4 1 0 3 6–12 3
ÞRÓTTUR 4 0 1 3 3–8 1
ÍBV 4 0 0 4 3–11 0
MARKAHÆSTIR
Tryggvi Guðmundsson, FH 5
Guðmundur Steinarsson, Keflavík 4
Andri Fannar Ottósson, Fram 3
Matthías Guðmundsson, Val 3
STERK VIÐBRÖGÐ Malcom Glaze, til hægri,
er strax farinn að ergja aðdáendur liðsins
með afskiptum sínum af rekstri félagsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMGAES