Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.06.2005, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 11.06.2005, Qupperneq 56
11. júní 2005 LAUGARDAGUR40 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 8 9 10 11 12 13 14 Laugardagur JÚNÍ ■ ■ LEIKIR  14.00 FH og Þróttur R. mætast í Kaplakrika í Landsbankadeild karla.  14.00 Fram og ÍA mætast í Laugardal í Landsbankadeild karla.  14.00 ÍBV og Valur mætast á Hásteinsvelli í Landsbankadeild karla  14.00 Völsungur og Fjölnir spila á Húsavíkurvelli í 1. deild karla.  16.00 Haukar og Þór mætast á Haukavelli í 1. deild karla. ■ ■ SJÓNVARP  15.00 EM í kvennaknattspyrnu á RÚV. Leikur Dana og Englendinga.  16.50 Formúla 1 á Rúv. Bein útsending frá tímatökunni í Kanada.  18.30 Bandaríska mótaröðin í golfi á Sýn.  19.00 NBA á Sýn.  22.20 Hnefaleikar á Sýn. Antonio Tarver gegn Glen Johnson.  23.25 Hnefaleikar á Sýn. Mike Tyson gegn Danny Williams.  01.00 Hnefaleikar á Sýn. Mike Tyson gegn Kevin McBride. Fjölskylduhátið á Hlíðarenda 15. júní: ÍÞRÓTTAFÉLÖG Valsmenn ætla að kveðja kofann sinn að Hlíðar- enda á miðvikudaginn kemur og fagna því að framkvæmdir hefj- ist við ný íþróttamannvirki með því að halda allsherjar fjöl- skylduhátíð. Sérstök hátíðardagskrá fer einnig fram, þar sem tekin verð- ur fyrsta skóflustungan að nýj- um íþróttamannvirkjum og fjöl úr gólfi íþróttahúss Vals verður fjarlægð og lögð til varðveislu. Í íþróttahúsi Vals verður haldinn kveðjuleikur þar sem meistara- flokkur Vals í handknattleik karla spreytir sig gegn gömlum kempum félagsins. Búist er við að leikmenn á borð við Geir Sveinsson, Valdimar Grímsson, Júlíus Jónasson og Guðmund Hrafnkelsson taki fram gömlu Valsskóna en þeir Þorbjörn Jens- son og Jóhann Birgisson munu stýra liðinu. Um kvöldið taka Valsmenn loks á móti FH í Lands- bankadeild karla í knattspyrnu. Um er að ræða alvöru toppslag þar sem bæði lið standa vel að vígi á toppi deildarinnar. Valsmenn kve›ja kofann HEFUR ÆFT BETUR EN NOKKRUM SINNUM FYRR Mike Tyson hefur hafið upphitun fyrir bardaga sinn við hinn írska Kevin McBride. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMGAES Boxáhugamenn missa ekki af bardaga kvöldsins: Tyson segist vera go›sögn BOX Mike Tyson hefur upphitun fyrir bardaga sinn við hinn írska Kevin McBride í kvöld eins og honum einum er lagið og í fyrra- dag gaf hann út hvernig hann hyggðist fara með hann í hringn- um. „Ég ætla að gera að honum eins og fiski,“ sagði Tyson. „Hann er eins og dós af tómötum og bardag- inn á laugardaginn verður auð- mýktaræfing af bestu gerð fyrir hann. Sumir kunna að kalla þenn- an bardaga sirkus, en ég er ekki sirkusmaður, ég er goðsögn,“ sagði Tyson, sem enn virðist hafa mikið aðdráttarafl sem boxari þótt árangurinn hafi verið mis- jafn undanfarið, því sala miða á viðburðinn hefur farið fram úr björtustu vonum „Ég er alþjóðleg ofurstjarna og ef fólk þekkir mig ekki, hlýtur það að vera frá annarri plánetu,“ sagði Tyson. Þjálfari hans gaf það út á dög- unum að Tyson væri allur að róast og sagði hegðun hans á undan- förnum mánuðum hafa verið til fyrirmyndar, en hann virðist þó enn vera með munninn fyrir neð- an nefið þegar kemur að því að munnhöggvast við andstæðing- ana. McBride er öllu rólegri í tíð- inni fyrir bardagann, en segir að Tyson eigi ekki auðvelt kvöld í vændum. „Höggin mín verða högg frá öllu Írlandi. Ég hef æft betur en nokkru sinni áður og þetta er draumur að verða að veruleika fyrir mig. Ég vil sigra Mike Tyson og uppfylla drauma mína, sem eru að verða óumdeildur heimsmeist- ari í hnefaleikum.“ -BB Liverpool fær að verja Evróputitilinn FÓTBOLTI „Þetta var afgreitt á símafundi í morgun sem stóð yfir í um klukkustund,“ sagði Eggert Magnússon. Ákvörðun fram- kvæmdarstjórnarinnar var ein- róma, Liverpool fær að taka þátt í Meistaradeildinni á næsta keppn- istímabili en þarf að taka þátt í forkeppninni. Eru margir stuðn- ingsmanna liðsins ósáttir við það, finnst það ekki sér sæmandi sem meisturum. En aðrir benda á að þeir geti yfir höfuð þakkað fyrir að fá að vera með. Liverpool verður því fimmta enska liðið sem fær að taka þátt í Meistaradeildinni. Hin fjögur luku keppni í efstu fjórum sætum ensku úrvalsdeildarinnar í vor og fá því samkvæmt reglum enska knattspyrnusambandsins rétt til þátttöku. En þegar í ljós kom að Liverpool unnu keppnina vildu Englendingar ekki víkja liðinu sem varð í fjórða sæti, í þessu til- felli Everton, og leituðu því á náð- ar UEFA. „Enska sambandið er búið að liggja á hnjánum og biðja um að fá fimmta liðið inn,“ sagði Eggert. Þegar Real Madrid vann keppnina 2001 voru þeir í sömu sporum og Liverpool, luku keppni í 5. sæti í deildinni. En þá lét spænska knattspyrnusambandið Real Zaragoza, sem urðu í fjórða sæti, víkja fyrir nýkrýndum Evr- ópumeisturum. En þökk sé vand- ræðunum nú hefur verið samin klásúla sem segir að komi álíka staða upp aftur víki það lið sem lenti í neðsta sætinu í heimaland- inu sem veitir þátttökurétt í Meistaradeildinni, ef nýkrýndir meistarar lenda neðar í deildinni. Liverpool mun því að öllum lík- indum aflýsa öllum æfingaleikj- um á undirbúningstímabilinu en áætlað var að leika gegn þýskum og japönskum liðum. Þess í stað mæta þeir liði frá einu af þeim 12 löndum sem eru metin veikust af þeim löndum sem senda lið til keppni. Ísland er ekki eitt af þeim en ef FH-ingar, sem einnig mæta liði frá einu af löndunum 12, kom- ast áfram í 2. umferð er möguleik- inn fyrir hendi að dragast gegn Liverpool. „Væri það bara ekki fínt,“ sagði Heimir Guðjónsson fyrirliði FH aðspurður um þá tilhugsun. „Það yrði allavega fullt á vellin- um.“ eirikurst@frettabladid.is STEVEN GERRARD MEÐ BIKARINN Liverpool fær að taka þátt í Meistaradeildinni og því ólíklegt að Gerrard hafi ástæðu til að yfirgefa félagið en orðrómur þess efnis hefur verið lengi á kreiki. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Eggert Magnússon og félagar í framkvæmdarstjórn knattspyrnusambands Evrópu gáfu í gær grænt ljós á flátttöku Liverpool í Meistaradeild Evrópu í haust. Meistararnir byrja á sama sta› og Íslandsmeistarar FH.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.