Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 58
42 11. júní 2005 LAUGARDAGUR
Ég er kona. Ég er
hlaupari. Maður
skyldi ætla að ég
væri góður kandídat
til að taka þátt í
Kvennahlaupinu
sem fram fer í dag.
Þetta hugsaði ég
með mér þegar ég lofaði
vinkonu minni að hlaupa með henni.
Samstaða kvenna eða feminískar
pælingar höfðu ekkert að segja við
þá ákvörðun. Ég hélt einfaldlega að
þetta yrði góð æfing fyrir The Real
Thing – Reykjavíkurmaraþonið.
Ég keypti bolinn blessaðan í
World Class í Laugum og þá áttaði
ég mig á því að ég hálfpartinn
skammaðist mín fyrir að hlaupa í
Kvennahlaupinu. Þarna var ég í
musteri líkamsræktarinnar, hvísl-
andi að afgreiðslukonunni að ég
vildi bol í „small“. Kvennahlaupið
er nefnilega ekki fyrir þá sem taka
líkamsræktina alvarlega. Það er
ìengin tímataka og engin keppni,
heldur er aðalatriðið að vera með,î
segir framkvæmdastjórinn í
nýjasta Birtu-blaðinu. Engar viður-
kenningar eru veittar og allir fá
verðlaunapening! „Ganga eða
skokka – á þínum hraða“ segja aug-
lýsingarnar, til að hvetja sem flest-
ar konur með barnavagna, lítil börn,
gamlar konur sem hlaupa ekki og
konur í slæmu formi til að mæta og
taka þátt í tveggja kílómetra labb-
inu.
Auðvitað er aðdáunarvert að
hvetja konur sem hreyfa sig lítið að
taka þátt og því er nauðsynlegt að
hafa styttri vegalengdir, eins og
skemmtiskokkið í Reykjavíkur-
maraþoninu. Markmið Kvenna-
hlaupsins, að hvetja konur til að
stunda reglulega hreyfingu, er göf-
ugt en framkvæmd þess er metnað-
arlaus. Við eigum að vera konum
góðar fyrirmyndir, segir fram-
kvæmdastjórinn. Þá skulum við
fara alla leið og hvetja ungar stúlk-
ur til að vera keppnismanneskjur;
að mæla tímann og bæta hann að
ári, að setja markið hærra en að
fara tvo kílómetra, að gera kröfu
um að fá að keppaeins og strákarn-
ir.
Þá fyrst getur Kvennahlaupið
hvatt konur til stórræða, eins og
Kvennalistinn gerði forðum. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
RÓSA SIGNÝ GÍSLADÓTTIR ER EKKI STOLT YFIR ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT Í KVENNAHLAUPINU
Metnaðarlaust Kvennalabb
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Sumarið er tíminn
Komin í bíó!
Fylgstu með alla þessa viku
FM 95
7 gefu
r
1000
bíómið
a
á sérs
taka f
orsýn
ingu
á laug
ardag
inn
klukk
an 17:
30
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Hey, þú
þarna.....félagi!
Naunaunau!
Steikurnar eru
um fimm senti-
metrar á þykkt.
RÓBERT
PABBI
Hvað ertu að gera hér?! Fuglar
fljúga suður á veturna!! SUÐUR!!
Hvað varstu að hugsa?
Komu livvvrurnar í
póstinum í dag?
Nei þær eru ekki
komnar, krakkar.
Þið settuð bréfið nú bara í
póst í gær. Það gæti tekið
eina og hálfa viku fyrir
lirfurnar að ná hingað.
EINA O
G
HÁLFA
VIKU?
Hvaða hvaða? Það eru
bara tíu dagar!
Hvað eru það
margir barna-
tímar?
Ohhhh...
Suður-
Þingeyjar-
sýsla?
100% kjöt í gegn,
marinerað upp úr
kryddlegi....en
það veist þú svo
sem.
Takk, elskan
mín.
Fyrir hvað? Ég
keypti þetta ekki,
það kom heill
kassi í morgun.
Kjöt með
póstinum.
Það er eitthvað
sem stemmir
ekki!
Þið ætlið þó ekki að grilla
á þessu gamla drasli?
Hundrað kall
í strætó....?
Já, takk!