Fréttablaðið - 11.06.2005, Page 62
PERLUEYRNA-
LOKKAR í
yfirstærð.
TopShop
Smáralind.
FERSKJULITURINN
fer vel með rauðum
og gulum. Zara
Smáralind.
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN
Frí á „fölskum“ forsendum
Ég var svolítið snemma í því í ár og skipulagði sumarfríið í janúar.
Síðan þá höfum við hjónaleysin legið í bókum um Ítalíu, skoðað kort
og fyrirhitt mikið af góðu fólki sem hefur liðsinnt okkur. Til að
byrja með var lagt upp með að fara í afslöppunarferð með menning-
arlegu ívafi. Ég dustaði rykið af listasögubókunum mínum og drakk
í mig löngu gleymda visku sem ég hafði haft fyrir að koma inn í
hausinn á mér á menntaskólaárunum. Þegar líða tók á mars fór ég
að sörfa á netinu og áður en ég vissi af var ég búin að finna hinar og
þessar verslanir sem mér fannst möst að heimsækja. Ítölsk fata-
menning er jú sérstök og því vert að eyða tíma í skanna hana vel
með tilheyrandi búðarrápi. Það var samt stórt vandamál í uppsigl-
ingu. Þótt sambýlismaður minn sé frábær í alla staði þá finnst hon-
um lítið spennandi að spóka sig innan um slæður, pils og perlufest-
ar. Þar sem ég var búin að lofa afslöppunarferð með menningarlegu
ívafi verð ég að vanda mig og nú ríður á að selja honum hugmyndir
mínar án þess að við komum heim í sitthvoru lagi. Það er nefnilega
hægt að leiða hann ef maður fer bara nógu varlega, talar nógu blíð-
lega og setur upp hvolpaaugun. Um daginn fór ég inn á heimasíðu
H&M bara svona rétt til að tjekka hvar fyrrnefndar verslanir væru
að finna. Ég er nefnilega þannig gerð að mér finnst ómissandi að
komast í þá verslun alla vega tvisvar á ári. Mér til mikilla vonbrigða
komst ég að því að það að er alla vega 3 tíma akstur í næstu H&M
verslun. Þá datt mér snjallræði í hug. Ég plata hann í dagsferð. Við
munum taka daginn snemma og skoða strandbæi á leiðinni. Þegar
við komum til borgarinnar verð ég að vera yfirmáta yfirveguð svo
hann gruni ekki neitt. Ég er búin að finna kort af borginni svo við
getum óvart „lent“ í þeim aðstæðum að vera skyndilega stödd fyrir
utan H&M veldið. Ég er viss um að þetta takist hjá mér enda hafa
fyrirætlanir mínar ekki klikkað hingað til. Meðan ég verð að spóka
mig um á suðrænum slóðum mun ungliðahreyfingin (Sóley og
Hilda) sjá um að fræða ykkur um það mikilvægasta í lífinu, tísku.
46 11. júní 2005 LAUGARDAGUR
Að blanda saman rauðum, grænum, ljósgulum, ferskjulituðum og bleik-um er hluti af ferskum tískustraumum. Burberry lagði línurnar fyr-ir þessar litasamsetningar en sumarlína þeirra einkennist að
hluta til af þessum litasamsetningum. Í fljótu bragði er nánast eins
og litirnir hafi verið teknir beint út úr tísku níunda áratugarins og
vaktir af dvala. Uppum níunda áratugarins fannst alla vega ofur-
svalt að klæðast bleikum skyrtum og hefðu farið í alla þessa liti ef
fötin hefðu bara verið merkt réttum tískuhönnuðum. Verslunin Zara
var ekki lengi að pikka þetta „trend“ út ásamt TopShop og Retro. Sem
dæmi úr þessari tísku þá er meira en leyfilegt að vera í bleikum jakka
og gulum bol við grænar buxur. Jakkarnir eru stuttir og oft
á tíðum víðir, buxurnar ná við hné og pilsin eru skósíð
eða hnésíð. Þessari litríku tísku fylgir frjálslegt
fas og ekki er verra að nota þau á suðrænum
slóðum. Þessir litir fara líka sérlega vel við
húðina þegar sólin er búin að leika um
hana. Fyrrnefndir litir bera sig vel þeg-
ar hörefni er annars vegar og svo má
alltaf bæta við klútum, skarti og
skóm í sömu litum. Sumar flíkurnar eru
jafnvel skreyttar steinum eða pallíettum.
Fallegt er að nota hvítan og beigelitaðan
með þessum fallegu sumarlitum sem lífga all
hressilega upp á sumarið.
Allt um atvinnu
á sunudögum í Fréttablaðinu.
Allt sem þú þarft
og meira til
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
P
R
E
28
04
9
0
4/
20
05
Le Clerc snyrtivörulínan hefur gefið
út bleika línu í tilefni þess að bleiki
liturinn er svo mikið í tísku í sumar.
Ævintýrabúðin Frú Fiðrildi ákvað að
taka snyrtivörurnar í sölu því um-
búðirnar á þessari línu eru svo dá-
samlega fallegar. Þar sem snyrtivör-
ur eru inni á nánast hverju baðher-
bergi landsins skiptir máli að um-
búðirnar séu fallegar. Svo er líka
mun skemmtilegra að draga upp
fallega púðurdós þegar kemur að
því að laga sig til. Púðrið í línunni er
með bleikum tón svo það gefur
andlitinu mjög frísklegan blæ.
Einnig er gylltur glampi í því svo
áferðin verður létt glansandi. Púðrið
er unnið úr hrísgrjónum og snyrti-
vörurnar eru allar náttúrulegar. Vara-
litirnir eru til í þremur fallegum og
safaríkum litum en Frú Fiðrildi er
líka með sólarpúður, gloss, nagla-
lakk og augnskugga frá Le Clerc.
Litríkt, fagurt og upplífgangi
TENNISKJÓLL
fer bæði vel
við gallabuxur
og fótlaga skó.
Vero Moda
Smáralind.
ÞAÐ VERÐA allir að eiga alla vega eitt
sítt pils fyrir sumarið. Retro Smáralind.
HVER RÖNDÓTTUR.
Zara Smáralind.
ÞAÐ SPARAR TÍMA og fyrirhöfn
að eiga ferðatösku eins og enginn
annar. Penninn Eymundsson.
GRÆNN JAKKI passar vel
við bleikt pils og appelsínu-
gular buxur. Zara Smáralind.
ÞESSI ER TILVALIN í fríið.
Retro Smáralind.
martamaria@frettabladid.is
GRÆN PALLÍETTUTASKA.
Retro Smáralind.
RAUÐI LITURINN er
ómissandi með þessu lita-
þema. Zara Smáralind.
HÖNNUÐIR Burberry voru djarfir
í litasamsetningum og lögðu lín-
urnar fyrir það sem koma skyldi.
ÞAÐ ER MÁLIÐ
að splæsa í nýtt
bikiní fyrir sumar-
ið. Vero Moda
Smáralind.
„MUST HAVE“, þessi
bolur flokkast undir það.
TopShop Smáralind.
AGATHA RUIZ DE LA PRADA blandar
litunum skemmtilega saman
BURBERRY
mælir með
því að nota
víðar, litríkar
skyrtur við
strandfötin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I O
G
G
ET
TY
IM
AG
ES
Bleikt er bjútífúl