Fréttablaðið - 11.06.2005, Side 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Gleðifréttir frá Gleðistofu Íslands
Laugardaga kl. 11:30
og alla virka daga kl. 11:30, 16:30 og 21:30
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
Upp með
græna fingur
IK
E
28
52
6
0
6.
20
05
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
5
Draumasumar
Ferskt pastasalat
295,-
5.900,-
FAGELÖ
blómapottaskraut
H113 sm 1.490,-
FÄNÖ blómapottur
Ø32 H65 sm 2.990,-
ODLA vinnuborð
galvaniserað stál
45x106 H94 sm
BETA garðkanna
10 lítrar
MYNTA
blómapottur terracotta
Ø32 H30 sm
RÖNÖ
garðskraut
H35 sm 190,-
HALLON blómapottur
Ø14 H12 sm 195,-
SKATÖN garðskraut
H37 590,-
RÖNÖ skrautsteinn tvær gerðir
20 sm 250,-/36 sm 290,-
TISTELÖ bali
Ø55 H28 sm gegnheill
viður, galvaniserað
stál 3.490,-
REVELN blómapottur
Ø20 H21 sm 395,-
BJURÖN garðáhöld
2 stk. 290,-
690,-
1.290,-
Pappír
Ég er farinn að hallast að því aðeinhvern daginn muni ég enda
þessa jarðvist með því að þjappast
saman og kafna undir ógnarstóru
pappírsflóði. Allt bendir til þess að
þróun í þessa átt sé þegar hafin á
heimili mínu, en þar mun hinn háðu-
legi dauðdagi eiga sér stað.
Endalaust flæði alls kyns pósts, með
glugga og án glugga, sem og alls
kyns blaða hefur gert það að verkum
að ég eiginlega hef ekki undan leng-
ur við að hlaupa með plastpokana
(sem er önnur saga) fulla af pappír
út í ruslatunnu. Ég hef smám saman
áttað mig á því að margir klukkutím-
ar á viku fara í það að skoða öll þessi
blöð, allan þennan pappír, þessi bréf,
og komast að því hvað það er sem má
henda og hvað má ekki henda.
IÐULEGA kemst ég að því að það
má eiginlega henda þessu öllu. En
þegar ég hef komist að þeirri niður-
stöðu, þá verður mér litið örskots-
stund á gólfið í anddyrinu undir póst-
lúgunni og sé mér til hryllings að
önnur hrúga, splunkuný, af pappír
hefur myndast á gólfinu þar. Þannig
ver ég sífellt meiri hluta af ævi
minni í að fletta alls kyns pésum í
hraði, lesa hin og þessi ókeypis blöð,
opna umslög, taka bréf úr umslagi,
henda báðu í ruslið og hlaupa svo
með allt saman út í tunnu, til þess
eins að byrja nákvæmlega sama feril
upp á nýtt.
MÉR finnst að ég eigi að fá laun fyr-
ir þetta. Ég meina, þetta er slæmur
díll. Hvers á maður að gjalda, sak-
laus borgari, að þurfa að eyða
drjúgum tíma sveittur á efri vörinni
heima hjá sér við það að koma alls
kyns bréfum og pappír fyrir kattar-
nef? Mætti ekki bara hanna einhvers
konar heimafæriband sem myndi
liggja beint frá póstlúgunni og út í
ruslatunnu? Einhvers konar rennu?
Þannig myndi pappírsflæðið mynda
hringrás, þar sem póstmaðurinn
kæmi með bréfið og ruslakarlinn
tæki það síðan, án þess að ég sem
slíkur þyrfti að hafa milligöngu í því
stanslausa og að mörgu leyti skringi-
lega ferli pappírs í ruslatunnuna.
ÞAÐ er athyglisvert hvað maður
eyðir í raun miklum tíma í að koma
alls kyns fánýtu dóti og undarlegustu
umbúðum, úr pappír og plasti, á
haugana. Hvað gerir maður við risa-
stóran kassa utan af garðstólum, svo
dæmi sé tekið, annað en að troða
honum einhvern veginn í aftursætið
á bílnum, eftir að hann hefur verið í
forstofunni í sex mánuði, og henda
honum á Sorpu, sem er lokuð þann
daginn, svo að kassinn verður í bíln-
um í aðra sex mánuði? Og í fram-
haldi má spyrja: Til hvers þurfa
garðstólar að vera í kassa?
MARGT er undarlegt þegar maður
spáir í það. En ég veit ekki hvað ég
hef mikinn tíma í að spá í þetta, því
eins og ég sagði þá er íbúðin að fyll-
ast af pappír, og plastpokum í ofaná-
lag, án þess að ég fái nokkuð að gert.
Nema auðvitað ég snúi vörn í sókn
og reyni að sníða úr bréfunum jakka-
föt og bregði síðan plastpokunum á
höfuðið í stað húfu. Gangi þannig um
bæinn. Minnismerki umbúðasamfé-
lagsins. Pappaplastmaðurinn ógur-
legi. ■
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR