Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 2
2 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Rjúpnastofnin hefur ríflega þrefaldast á tveimur árum: Vei›ar á rjúpu hefjast á n‡ RJÚPNAVEIÐAR Rjúpnaveiðar hefj- ast aftur í haust, Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra tilkynnti ákvörðun sína þess lút- andi í gær. Enn liggur ekki fyrir hversu margar rjúpur verður heimilt að veiða en reglugerð um veiðarnar lítur dagsins ljós í lok næsta mánaðar eða byrjun sept- ember. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands, er ánægður með tíðindin og segir skotveiðimenn hafa átt von á þessu þar sem niðurstöður rjúpnatalningar Náttúrufræði- stofnunar Íslands bendi til þess að rjúpnastofninn hafi meira en þre- faldast á síðustu tveimur árum. Hann er einnig ánægður með þær breytingar sem liggja fyrir varð- andi stjórn á veiðum. „Það liggur fyrir að sala á rjúpu verði óheimil og því fögnum við skotveiðimenn en við teljum nauðsynlegt að reyna að stemma stigum við magnveiðum, því sem stundum er kallað græðgisveiðar því við leggjum áherslu á að skot- veiði er frístundariðja öðru frem- ur,“ segir Sigmar. Hann segist eiga von á því að flestir séu sáttir við þessa ákvörð- un ráðherrans. -jse Sex íslensk ungmenni eru í Palestínu og ætla á alþjóðlega æskulýðsráðstefnu: Freista fless a› komast til Nablus MIÐAUSTURLÖND „Það er óvíst að við komumst til Nablus vegna ástandsins sem hér ríkir,“ segir Margrét Scheving Thorsteins- son, ein sex íslenskra ungmenna sem stödd eru í Palestínu. Vax- andi spennu hefur gætt í sam- skiptum Ísraela og Palestínu- manna Margrét var stödd í Jerúsal- em þegar Fréttablaðið náði tali af henni í gær en til stendur að Íslendingarnir ferðist síðar í vikunni til borgarinnar Nablus á Vesturbakkanum þar sem þau ætla að taka þátt í alþjóðlegri æskulýðsráðstefnu. Arna Ösp Magnúsardóttir ætlaði að vera með í för, en henni var vísað úr landi eftir yfirheyrslur við kom- una til Ísraels í fyrradag. Fjögur ungmennanna ætluðu að leggja af stað til Nablus nú í bítið. Anna Tómasdóttir, ein fjórmenninganna, var bjartsýn á að það tækist. „Við höfðum samband við einn skipuleggj- enda ferðarinnar og skildist á henni að hún væri nú þegar búin að sjá fyrir því að við kæmumst til borgarinnar.“ -ht Ógna› í yfirheyrslum MIÐAUSTURLÖND „Ég var óörugg um mína stöðu enda fékk ég aldrei upplýsingar um hvað gerðist næst,“ segir Arna Ösp Magnúsardóttir, tvítugur Palest- ínufari. Arna er komin til Lund- úna eftir að ísraelsk yfirvöld handtóku hana á flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael á mánudag. Örnu var haldið af lögreglu í þrjátíu klukkustundir áður en henni var vísað úr landi. „Vega- bréfið og töskurnar mínar voru teknar af mér þegar ég kom á flugvöllinn og ég færð til yfir- heyrslu,“ segir Arna Ösp. „Þar var mér haldið í tíu klukku- stundir, með einu stuttu hléi þegar ég fékk samloku að borða.“ Að sögn Örnu var henni gefið að sök að hafa veitt hryðju- verkamönnum aðstoð. „Mest af yfirheyrslunni snerist um að fá nöfn og upplýsingar um annað fólk, en minnst um hvað ég væri að gera eða ætlaði að gera.“ Arna segist hafa upplifað yfir- heyrsluna sem yfirþyrmandi og ógnandi. Þá hafi henni verið hót- að. „Einn þeirra sem yfirheyrðu mig sagðist hafa fengið leyfi yf- irmanns síns til þess að gera við mig hvað sem hann vildi ef ég væri ekki samvinnu- þýð.“ Arna segir bónir hennar um að fá að hafa samband við ræðis- mann Íslands og fjöl- skyldu sína ekki hafa verið virtar. „Mér var ýtt inn í klefa og það var hlegið að mér þeg- ar ég minntist á rétt- indi mín,“ segir Arna. „Svo var öskrað að ég hefði engin réttindi og ætti ekki rétt á neinu.“ Ástæður handtök- unnar telur Arna hafa verið starf hennar í Palestínu, en þar var hún í þrjá mánuði síðast- liðið sumar og starfaði með alþjóð- legu samtökunum International Solid- ary Movement. „Þetta var greinilega í tengslum við að ég hef verið að vinna með Palestínumönnum,“ segir Arna. „Þeir vilja koma í veg fyrir að fólk fari til Palest- ínu og verði vitni að því sem þar er að gerast.“ A r n a h y g g s t dvelja um tíma í L u n d ú n - um og reyna að l e i t a r é t t a r síns. „Ég mun að m i n n s t a kosti hafa s a m b a n d við utanrík- isráðuneytið og sjá síðan til.“ helgat@frettabladid.is Landbúnaðarstofnun: Jón Gíslason rá›inn forstjóri LANDBÚNAÐUR Guðni Ágústsson hefur skipað Jón Gíslason for- stjóra Landbúnaðarstofnunar til fimm ára frá 1. ágúst næstkom- andi. Alls sóttu 23 um starfið. Jón er næringarlífeðlisfræðing- ur og hefur síðustu ár starfað hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel. Landbúnaðarstofnun er ný stofnun sem mun hafa með höndum störf yfirdýralæknis, veiðimálastjóra, aðfangaeftir- litsins, kjötmatsmanns, plöntu- eftirlitsins og ýmis stjórnsýslu- verkefni sem Bændasamtök Ís- lands hafa farið með til þessa. ■ HREINDÝR Í LÓNI Það sem af er veiðitíma- bilinu hafa þrjú dýr verið skotin vestan Hornafjarðar. FLUTTUR TIL FREKARI RANNSÓKNA Lestar- vagninn sem var sprengdur nærri Edgware Road lestarstöðinni var fluttur af vettvangi í fyrrinótt. Hryðjuverkin í London: Ma›ur tekinn í Pakistan LONDON, AP Pakistanska lögreglan hefur mann í haldi sem hún segir hafa átt beinan þátt í sprengjutil- ræðunum í Lundúnum 7. júlí. Lögreglurannsókn á árásunum á Lundúnir er í fullum gangi. Lundúnablaðið Times greindi frá því í gær að heimildarmaður þess í lögreglunni hefði tjáð því að talið væri að meintur skipuleggj- andi árásanna hefði verið í Leeds, heimabæ árásarmannanna, og Lundúnum í júlíbyrjun en yfirgef- ið landið nokkrum klukkustund- um fyrir sprengingarnar. Háttsettur pakistanskur emb- ættismaður sagði í viðtali við AP- fréttastofuna í gær að yfirvöld hefðu mann í varðhaldi sem talinn er hafa átt í tilræðunum. ■ SPURNING DAGSINS Hrafn, stafar krummanum ógn af minknum? Ég er viss um að í þessari samkeppni verður krumminn sér ekki til minnkunar. Hrafn Gunnlaugsson lét aflífa nokkra minnka við heimili sitt í Laugarnesinu. ÍSRAELSKIR LÖGREGLUÞJÓNAR Ísraelsk yf- irvöld hafa bæði áhyggjur af fylgjendum Palestínumanna og einnig mótmælendum þess að landnemabyggðir Ísraela verði rýmdar. Ítalir og Frakkar: Auka eftirlit á landamærum SAMGÖNGUR Bæði Frakkar og Ítal- ir hafa í kjölfar hryðjuverka- árásanna í Lundúnum á dögunum ákveðið að taka upp landamæra- eftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins. Ferðamenn og aðrir geta því búist við því að þurfa að sæta vegabréfaeftirliti við komu og brottför frá þessum löndum. Búist er við því að fleiri aðild- arríki Schengen-samningsins fylgi í kjölfar þeirra á komandi vikum og auki landamæraeftir- litið. -grs Hreindýraveiðar hafnar: Sex d‡r skotin SKOTVEIÐI Hreindýraveiðar fara rólega af stað en veiðitímabilið hófst 15. júlí og var úthlutað 800 leyfum eins og í fyrra. Fram til 1. ágúst má eingöngu skjóta tarfa og segir Jóhann G. Gunnarsson, starfsmaður Um- hverfisstofnunar, að í gær hafi verið búið að skjóta sex dýr. „Það hafa fáir verið að veiðum enda þoka búin að vera á hreindýra- slóðum að undanförnu. Betra veð- urútlit er fram undan og þá á ég von á að fleiri haldi til veiða,“ seg- ir Jóhann. -kk FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B B ÁTÖK Í PALESTÍNU Óvíst er um ferð sjö íslenskra ungmenna til borgarinnar Nablus á Vest- urbakkanum vegna mikillar spennu sem gætir í samskiptum Ísraela og Palestínumanna. ARNA ÖSP MAGNÚSAR- DÓTTIR Komin heil á húfi til Lundúna RJÚPA Rjúpnaveiðar hefjast á ný 15. októ- ber. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I Arna Ösp Magnúsardóttir Palestínufari, er komin til Lundúna en hún var flrjátíu klukkustundir í haldi ísraelskra yfirvalda eftir komu sína til Tel Aviv á mánudag. Mátti Arna sæta tíu klukkustunda yfirheyrslu á›ur en henni var vísa› úr landi. LÖGREGLUFRÉTTIR RÉTTINDALAUS Á STOLNUM BÍL Lögreglan í Keflavík stöðvaði för sextán ára pilts sem tekið hafði bifreið ófrjálsri hendi og ekið henni utan í kyrrstæðan bíl fyrir utan söluturn í bænum. Var hann réttindalaus en var látinn laus eftir yfirheyrslur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.