Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 62
Þeir segja ekki farir sínar slétt- ir hljómsveitarmeðlimirnir í hipp hopp-sveitinni Forgotten Lores sem sóttu plötusnúð sinn á Keflavíkurflugvöll á föstu- dagskvöld en á leiðinni til baka voru þeir handteknir vegna grunsemda um ólöglegan inn- flutning á vopnum. „Þegar við vorum að keyra eftir Reykjanesbrautinni var búið að setja upp vegartálma,“ segir Kristinn Helgi Sævarsson, rappari úr hljómsveitinni. „Við vorum rifnir út úr bílnum, skellt á húdd bílsins og handjárnaðir,“ segir hann og fannst aðfarir lög- reglunnar full harkalegar. Þeir voru síðan settir hver í sinn lögreglubílinn og keyrðir til Hafnafjarðar þar sem þeir voru yfirheyrðir. „Við vorum látnir strippa og það var fenginn leit- arheimild hjá eiganda bílsins og hann tekinn í gegn hátt og lágt.“ Að sögn Kristins Helga stóð þetta yfir í einn og hálfan til tvo tíma. „Þegar þetta var allt búið og þeir fundu ekki neitt, enda ekkert að finna, báðust þeir af- sökunar á ónæðinu.“ Kristinn segist ekki skilja hvaðan toll- gæslan hafi haft sínar grun- semdir. Ellisif Tinna Víðisdóttir, stað- gengill sýslumanns á Keflavík- urflugvelli, staðfestir að drengirnir hafi verið handtekn- ir. Aðgerðirnar hafi verið sam- starfsverkefni lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli, Tollgæsl- unnar og lögreglunnar í Hafnar- firði. Ellisif Tinna sagði Toll- gæsluna hafa mjög mikið svig- rúm til að athafna sig ef grunur vaknaði um ólöglegt athæfi. „Þessi ríka heimild er þar af leiðandi líka mjög vandmeðfar- in,“ segir hún. Tollgæslumenn hafi í þessu tilviki haft heimild- ir fyrir að eitthvað gæti hugsan- lega verið í gangi og það væri hlutverk þeirra að bregðast við því. Aðspurð hvort aðgerðirnar hafi verið harkalegar segir hún að þeir sem lent hafi í þessu gæti fundist það. Hún minnir engu síður á að ef grunurinn hefði verið á rökum reistur væri slíkt nauðsynlegt. „Mitt fólk fór út í þetta verkefni á mjög fag- mannlegan hátt og gerði allt rétt,“ segir hún og bendir á að þeir hafi verið stöðvaðir á besta staðnum á Reykjanesbrautinni. „Ef þessi grunur myndi vakna á nýjan leik myndum við gera þetta aftur. Þeir kæmust kannski ekki svona langt út úr flughöfninni.“ freyrgigja@frettabladid.is 46 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Ígær birti Fréttablaðið frétt umryskingar á tískusýningunni Iceland Fashion Week. Snigillinn Guðmund- ur Zebitz hafði í kjölfarið samband við blaðið en öryggisgæslan á sýn- ingunni var í höndum Sniglanna sem eru ýmsu vanir í þessum efn- um. Hann vildi koma því á framfæri að Kolbrún Aðalsteinsdóttir, sem hafði veg og vanda af Iceland Fashion Week, hafi ekki lent í slagsmálum þó sést hafi til hennar í rysk- ingum. „Þetta var þannig að stúlka í mjög annarlegu ástandi hljóp í gegnum tísku- sýning- arsvæð- ið og sló til gest- anna og í lokin sló hún til Kolbrúnar sem lét fjarlægja hana. Þess vegna var lögreglan kölluð til.“ Vilhjálmur Þ. Vil-hjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavík- ur, mætti á laugardag- inn eldress í viðtal til Ei- ríks Jónssonar sem situr við hljóð- nemann á Talstöðinni á laugardags- morgnum. Eiríkur fékk Vilhjálm til þess að viðurkenna það að hann væri félagslega sinnaður en náði þó ekki að sannfæra hann um að hann væri í röngum flokki. Vil- hjálmur ætlar, eins og allir vita, að gefa kost á sér í efsta sæti framboðs- lista Sjálf- stæðismanna í Reykjavík, og fer ekki í grafgötur með það að hann býr yfir mestri reynslu starfandi borg- arfulltrúa. Hann tók svo af öll tví- mæli um að hann er tilbúinn til að gera það sem þarf til að skyggja á aðra frambjóðendur þegar hann tók lagið fyrir Eirík og söng „Vert'ekki að horfa svona alltaf á mig“ með mikl- um bravúr í beinni útsendingu. Lárétt: 1 fámáll, 6 hress, 7 hest, 8 í röð, 9 stórborg, 10 gufu, 12 gangur í klukku, 14 rödd, 15 komast, 16 sagnorð (sk.st.), 17 elskar, 18 mikill. Lóðrétt: 1 viðfangsefni, 2 fugl, 3 sam- hljóðar, 4 margarínið, 5 fugl, 9 bók, 11 fituskán, 13 flagg, 14 bakhluti – r, 17 ryk- korn. Lausn. 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Humar 1.290,-kr.kg Ótrúlegt verð á fínum humri. Ómar Örn Hauksson sem er best þekktur fyrir að vera rappari í hljómsveitinni Quarashi hefur nú brugðið sér í annað gervi og gefið út teiknimyndasögu. „Bókin er komin út og það er ég sjálfur sem gef hana út. Þetta er meira og minna gert í höndun- um,“ segir Ómar en bókin fjallar um strák sem heitir Óli Píka og er með helj- arinnar sköp á andlit- inu á sér. „Hugmynd- in kom frá þessu orðatiltæki, „ég líka, Óli píka,“ þá datt mér allt í einu í hug strák- ur með sköp í stað andlits og fannst það fyndið. Óli lendir í fullt af vandræð- um í sambandi við þennan van- skapnað sinn og fer meðal annars á túr, fær krampa og upplifir megnið af því sem kona fer í gegnum í sam- bandi við þennan ákveðna hluta lík- ama hennar,“ segir Ómar og tekur fram að þær stelpur sem hafi lesið sögurnar hafi haft mjög gaman af þeim. „Þetta höfðar eiginlega meira til stelpna en stráka því þær sjá senni- lega eitthvað í þessu sem þær kann- ast við. Þetta eru samt frekar ógeðs- legar sögur og alls ekkert fyrir krakka.“ „Það tók mig svona tvo mánuði að klára þetta. Aðalvinnan fór í að binda sögurnar inn, það tók skelfi- lega langan tíma en ég fékk hjálp frá vinkonu minni. Bókin er um 26 síður og það er einn brandari á hverri síðu.“ Myndasagan fæst í Nexus og kostar venjuleg útgáfa 995 krónur en innbundin útgáfa 1500 krónur. ■ Höf›ar frekar til stelpna ÓMAR ÖRN HAUKSSON Hann gefur nú frá sér sína fyrstu teikni- myndasögu. FORGOTTEN LORES Hluti sveitarinnar var handtekinn á Reykjanesbrautinni grunaður um ólöglegan innflutning á vopnum. Staðgengill sýslumanns á Keflavíkurflugvelli segir tollgæsluna hafa fengið ábendingu um að eitthvað gæti verið í gangi. FRÉTTIR AF FÓLKI AÐ MÍNU SKAPI ARNMUNUR ERNST TILVONANDI LEIKARI. TÓNLISTIN Það er enginn einn tónlist- armaður í uppáhaldi þessa dagana. Ég hlusta á alla tónlist en fíla samt ekki svona rosalega meginstraumstónlist eins og er spiluð á Popptíví. Þeir flytj- endur sem eru spilaðir þar eru bara frægir því einhver ákvað að gera þá fræga en ekki vegna tónlistarinnar. Mér finnst kvikmyndatónlist oft mjög góð því í hana er lagður mikill metnaður. Svo stendur gamla góða rokkið alltaf fyrir sínu. BÓKIN Ég les helst ævintýrabækur eins og Hringadróttinssögu og Harry Potter. Ég hef nú reyndar ekki lesið mikið þessa dagana en ég fíla Harry Potter og er stoltur af því. Ég kem pottþétt til með að lesa nýju bókina. Svo þarf ég auðvitað að lesa skólabækurnar. Maður verður að reyna að hafa gaman að þeim ef stefnan er sett á nám. BÍÓMYNDIN Ég held að Sin City verði í uppáhaldi þegar ég er búinn að sjá hana. Ég get yfirleitt fundið á mér hvort kvikmynd verði góðar eða ekki og ég hef mjög góða tilfinningu fyrir henni. Annars hef ég gaman að japönskum anime-teiknimyndum. BORGIN Í augnablikinu er New York í algjöru uppáhaldi. Ég fór þangað í febr- úar í fyrra og skemmti mér ótrúlega vel. Þetta er alveg einstök borg. Ég gekk um hana stanslaust í viku og sá eitthvað nýtt á hverjum einasta degi. Svo er verðlagið þar líka svo hagstætt. BÚÐIN Ég mæli alveg sérstaklega með Sælkerabúðinni á Suðurlands- braut því þar er seld besta núðlusúpa í heimi. Fiskbúðin Hafrún er líka frá- bær því þar fæst alveg yndislegur fiskur. Fötin kaupi ég svo helst í Spútnik. VERKEFNIÐ Ég er með vikuleg verkefni á Sirkus þar sem ég er í Kvöldþættinu á hverjum þriðjudegi. Kalli á þakinu er í sumarfríi þessa dagana og kemur sterk- ur inn í haust en núna er ég er að vinna að þáttum fyrir Bændasamtökin. Ég er svo að fara að hefja mína fyrstu önn í menntaskóla en í framtíðinni stefni ég hiklaust að því að verða leik- ari. Það hefur nú eiginlega verið óum- flýjanlegt frá fæðingu. Harry Potter, Sin City og New York ...fær hljómsveitin Sigur Rós fyrir að hafa heillað Dani upp úr skónum á tónleikum sínum í Kaupmannahöfn. HRÓSIÐ FORGOTTEN LORES: STÖÐVAÐIR Á REYKJANESBRAUTINNI Grunaðir um vopnasmygl FRÉTTAB LAÐ IÐ /VALG ARÐ ÓLI PÍKA Ný teiknimyndasaga frá rapparanum Ómari Erni Hauks- syni fjallar um drenginn Óla sem er svo seinheppinn að hafa fengið sköp í stað andlits. » FA S T U R » PUNKTUR Lárétt:1þögull,6ern,7jó,8mn,9 róm,10eim,12tif, 14alt,15ná,16so, 17ann,18stór. Lóðrétt:1þema,2örn,3gn,4ljóminn, 5lóm,9rit,11flot,13fána,14ass,17 ar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.