Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 42
21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
> Við erum svekktir ...
... yfir því að lið FH skyldi falla úr leik í 1.
umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Vonir stóðu til að FH, sem hefur haft
algera yfirburði hér heima, ætti von til
þess að standa sig betur í
Evrópukeppninni en mörg önnur
íslensk félagslið hafa gert í
gegnum tíðina. Úrslit
gærkvöldsins eru
reiðarslag fyrir
íslenska knattspyrnu.
Því miður.
Allir þeir bestu mæta
Íslandsmótið í golfi hefst í dag í Leirunni í
Keflavík og er von á öllum okkar bestu
kylfingum til leiks, þar á meðal Birgi Leifi
Hafþórssyni og Ólöfu Maríu Jónsdóttur
sem hafa verið að gera það gott
undanfarið á mótaröðunum í Evrópu.
sport@frettabladid.is
26
> Við vonumst til ...
.... að Magnús Gylfason þjálfari KR taki nú
fram skóna og sýni lærisveinum sínum í
verki hvernig eigi að leika
knattspyrnu. Magnús fékk
í gær leikheimild með
KR eftir að hafa verið
skráður leikmaður
Víkings frá Ólafsvík
undanfarin sex ár.
Viktor Bjarki sá um HK-inga
Fylkismenn eru komnir áfram í undanúrslit VISA-bikarsins eftir 2-0 sigur á
HK-ingum á Kópavogsvelli í gær. Leikurinn var ansi lítil skemmtun en Viktor
Bjarki Arnarsson sá um a› skora.
FÓTBOLTI Það er óhætt að segja að
þau tvö lið sem áttust við í Kópa-
voginum í gær séu sannkölluð bik-
arlið. 1.deildarlið HK komst alla
leið í undanúrslit í fyrra og sló
bikarmeistarana í Keflavík úr leik
í sextán liða úrslitum í ár. Fylkis-
menn unnu bikarinn 2001 og 2002
en leikur liðsins í sumar hefur
verið ansi sveiflukenndur. Oftast
hefur liðið þó spilað mjög vel á
útivöllum en annað var uppi á ten-
ingnum í gær.
HK-ingar fengu hættulegustu
færi fyrri hálfleiksins, það besta á
áttundu mínútu
þegar Bjarni
Þórður Halldórs-
son markvörður
Fylkis varði frá-
bærlega í horn
frá Eyþóri Guðn-
asyni sem kom-
inn var i dauða-
færi. Undir blá-
lok fyrri hálf-
leiks fór boltinn í
höndina á Vali
Fannari Gísla-
syni, varnar-
manni Fylkis,
innan vítateigs.
Dómarinn Jó-
hannes Valgeirs-
son sá þó ekkert
athugavert og
flautaði til leik-
hlés skömmu síð-
ar. HK-ingar
hópuðust að Jó-
hannesi og létu
óánægju sína í
ljós.
Fátt var um
fína drætti í
þessum leik og skemmtanagildið í
minnsta lagi. HK saknaði Harðar
Más Magnússonar og Rúriks
Gíslasonar í þessum leik en þeir
eru venjulega þeirra hættuleg-
ustu menn í sóknarleiknum. Fylk-
ismönnum gekk brösuglega að
skapa sér færi gegn varnarsinn-
uðum HK-mönnum en á lokamín-
útunum gerðu þeir út um leikinn.
Viktor Bjarki skoraði tvívegis,
fyrst laglegt mark eftir sendingu
Ragnars Sigurðssonar þar sem
hann setti boltann í fallegum boga
yfir Gunnleif og svo af löngu færi
í viðbótartíma í autt markið en
Gunnleifur var kominn framar-
lega á völlinn í þeirri veiku von að
fá leikinn framlengdan.
„Það er erfitt að spila á móti
liði sem liggur svona aftarlega.
Þetta var bara ekta bikarslagur
þar sem úrslitin réðust ekki fyrr
en undir lokin,“ sagði hetjan Vikt-
or Bjarki Arnarsson sem verið
hefur á skotskónum hjá Fylki.
„Vonandi heldur maður áfram að
skora, meðan það gengur vel hjá
liðinu þá er gaman.“
elvar@frettabladid.is
Watford samþykkti í vikunni tilboð Rea-
ding í landsliðsmanninn Brynjar Björn
Gunnarsson og mun hann af öllum lík-
indum ganga formlega frá samning-
um í dag eða á morgun. Þetta er
fjórða enska félagið sem Brynjar
Björn leikur með en hann hefur
áður verið á mála hjá Stoke City,
Nottingham Forest og vitaskuld
Watford þar sem hann, ásamt
Heiðari Helgusyni, var með betri
mönnum liðsins á síðustu leik-
tíð. Heiðar Helguson var
seldur til Fulham í úr-
valsdeildinni og nú
Brynjar Björn og þó
svo að hann sé
enn í 1. deild-
inni hefur
hann ekki
gefið úrvalsdeildardrauminn upp á bát-
inn.
„Það er auðvitað draumur minn eins og
allra annarra að spila í úrvalsdeild-
inni. Þar hef ég aldrei fengið að
spreyta mig en það væri gaman
að fá tækifæri til þess,“ sagði
Brynjar Björn í gær. „Ég verð þrí-
tugur í október næstkomandi og
þetta eiga að vera bestu ár mín
sem knattspyrnumanns,“ bætir
hann við. Reading er sterkt
félag og þó nokkuð
stærra en Watford
en lið félagsins
átti góðan séns
á úrvalsdeild-
arsæti í vet-
ur en lauk
keppni í 7. sæti, einu sæti frá því sæti
sem veitir þátttökurétt í umspilskeppn-
inni um síðasta lausa sæti úrvalsdeild-
arinnar.
Brynjar Björn segist vissulega hafa verið
smeykur við að söðla um í enn eitt
skiptið en að hlutirnir hafi gengið hratt
fyrir sig og hann sé nú spenntur fyrir
nýjum ferli hjá nýju félagi. Hann vonast
þó til að þurfa ekki að flytja búslóðina.
„Þetta er um klukkutíma akstur frá okk-
ur og ég ætla að sjá til hvernig gengur
að keyra þessa leið – alla vega til að
byrja með. Okkur líður vel þar sem við
erum og ég var alls ekki að leitast eftir
því að skipta um félag. Ég átti enn eitt
ár eftir af samningi mínum og ef þeir
hefðu boðið mér framlengingu á hon-
um hefði ég eflaust tekið því.“
BRYNJAR BJÖRN GUNNARSSON: SÖÐLAR UM OG GENGUR TIL LIÐS VIÐ READING
Draumurinn enn a› spila í úrvalsdeildinni
VR MÓTIÐ
Verðlaun (með og án forgjafar)
1. sæti: Evrópuferð fyrir tvo með Icelandair
2. sæti: 20.000 króna gjafakort frá Nevada Bob
3. sæti: 10.000 króna gjafakort frá Nevada Bob
Mótsgjald er kr. 3.000 fyrir félagsmenn VR og kr. 3.500 fyrir aðra.
Skráning hjá GR í síma 585 0210 og á www.golf.is.
Opna VR mótið verður haldið laugardaginn 30. júlí á Grafarholtsvelli.
Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni. Hámarksforgjöf er 24 hjá
körlum og 28 hjá konum. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punkta-
keppni, einnig verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í höggleik.
Nándarverðlaun eru á öllum par 3 holum vallarins. Fyrir mót býður VR
keppendum uppá bolta á æfingasvæðinu í Básum.
Verðlaun fyrir flesta punkta kvenna: 20.000 króna gjafakort frá Nevada Bob.
Nándarverðlaun 10.000 gjafakort frá Nevada Bob.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
HK-INGAR STÖÐVAÐIR Helgi Valur Daníelsson Fylkismaður verst hér HK-ingnum Eyþóri Guðnasyni en Bjarni
Þórður Halldórsson markvörður fylgist með. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR