Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 43
FIMMTUDAGUR 21. júlí 2005 27
Arsenal er óskalið knattspyrnu-mannsins Guti sem nú er í her-
búðum Real Madrid en þetta segja
spænskir fjölmiðlar. Talað er um að
Guti sé á förum frá spænska risalið-
inu og hafa mörg ensk lið sýnt hon-
um áhuga, þar á meðal Everton og
Tottenham auk Arsenal.
Manchester City hefur gert samn-ing við sóknarmanninn Andy
Cole en þessi fyrrum enski lands-
liðsmaður hefur skrifað undir fjög-
urra ára samning við félagið. Cole
verður 34 ára gamall í október en
hann kemur frá Fulham sem hefur
fest kaup á Heiðari Helgusyni eins
og kunnugt er.
Íslenska U18 landsliðið í knatt-spyrnu er nú að leika í fjögurra
þjóða móti í Svíþjóð og á leik gegn
heimamönnum í dag. Á þriðjudag
lék liðið sinn fyrsta leik á þessu
móti og gerði sér lítið fyrir og vann
3-1 sigur á Tyrklandi. Þetta er sér-
lega góður árangur í ljósi þess að
Tyrkir eru Evrópumeistarar U17
landsliða. Birkir Bjarnason, Eggert
Gunnþór Jónsson og Elvar Freyr Arn-
þórsson skoruðu mörk íslenska liðs-
ins í leiknum en mótherjarnir léku
einum færri frá tólftu mínútu eftir
rautt spjald.
ÚR SPORTINU
LEIKIR GÆRDAGSINS
VISA-bikar karla:
HK–FYLKIR 0–2
0–1 Viktor Bjarki Arnarsson (85.), 0–2
Viktor Bjarki Arnarsson (90.)
Meistaradeild Evrópu:
FH–NEFTCHI 1–2
0–1 Tomislav Misura (49.), 1–1 Allan
Borgvardt (60.), 1–2 Nadir Nabien (75.)
Neftchi vann samanlagt, 4–1 og mætir
Anderlecht frá Belgíu í 2. umferð.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
19 20 21 22 23 24 25
Sunnudagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
19.15 Fram tekur á móti ÍBV á
Laugardalsvelli í VISA-bikarkeppni
karla.
19.15 KR fær Val heimsókn í
Frostaskjólið í VISA-bikarkeppni
karla.
■ ■ SJÓNVARP
16.35 Formúlukvöld á RÚV. Þáttur
þar sem er farið yfir það nýjasta í
formúluheiminum
16.50 Bikarkvöld á RÚV.
FH mætti ofjörlum sínum frá Bakú
FH féll úr leik í forkeppni meistaradeildar Evrópu er li›i› tapa›i fyrir Neftchi frá Bakú í Aserbaídsjan,
2–1 og samanlagt 4–1. Neftchi mætir Anderlecht frá Belgíu í næstu umfer› en FH flarf fær sennilega
tækifæri aftur a› ári.
FÓTBOLTI Skynsamur leikur Neftchi
lagði grunninn að sigri liðsins gegn
FH í gær, þegar Íslandsmeistar-
arnir féllu út úr forkeppni Meist-
aradeildar Evrópu.
FH byrjaði leikinn gegn Neftchi
af krafti og gerði harða hríð að
marki deildarmeistaranna frá Az-
erbaídjan. Minnstu munaði að Ás-
geir Ásgeirsson og Auðun Helga-
son skoruðu, en skallar þeirra fór
naumlega yfir markið. Jón Þor-
grímur Stefánsson var sprækur á
hægri kantinum til þess að byrja
með og tókst að koma boltanum
tvisvar fyrir markið, en Allan
Borgvardt rétt missti af boltanum
í bæði skiptin.
Neftchi komst síðan smám
saman inn í leikinn og náði að
ógna marki FH í þrígang. Sérstak-
lega var það framherjinn
Tomislav Misura sem var hættu-
legur, en Daði Lárusson varði vel
frá honum úr dauðafæri. Í Evr-
ópukeppninni hefur líkamlegur
styrkur yfirleitt verið helsti
styrkleiki íslenskra félagsliða
sem í henni taka þátt, en leikmenn
Neftchi höfðu styrkinn fram yfir
leikmenn FH í þessari viðureign.
Leikmenn Neftchi voru eldfljótir
og spiluðu harðan varnarleik gegn
leikmönnum FH, sem áttu í erfið-
leikum með að láta boltann ganga
hratt á milli manna.
Þegar stutt var eftir af hálf-
leiknum var einn leikmanna
Neftchi rekinn útaf fyrir að slá til
Jóns Þorgríms Stefánssonar. FH
sótti linnulítið það sem eftir lifði
hálfleiksins en náði ekki skapa sér
marktækifæri. Í seinni hálfleik
þurftu leikmenn FH að skora tvö
mörk til þess að eiga möguleika á
því að komast áfram, þar sem
Neftchi vann fyrri leikinn með
tveimur mörkum gegn engu.
FH hóf seinni hálfleikinn eins
og þann fyrri, með mikilli pressu
og komst Tryggvi Guðmundsson í
ágætt færi sem markvörður
Neftchi varði vel. Neftchi komst
síðan yfir með góðu marki frá
Tomislav Misura, sem fór létt með
að hlaupa varnarmenn FH af sér.
Þetta var slysalegt mark, sem vel
hefði verið hægt að koma í veg
fyrir.
Leikmenn FH gáfust ekki upp
og reyndu hvað þeir gátu til þess
að koma sér inn í leikinn aftur, en
á þessum tíma var ljóst að FH
þurfti að skora fjögur mörk til
þess að komast áfram.
Allan Borgvardt tókst að jafna
leikinn fyrir FH með ágætu skoti
frá vítateigslínu. Örlítill heppnis-
stimpill var yfir markinu, en það
gaf FH von um að hægt væri gera
það sem þurfti til.
Leikmenn FH börðust áfram
og reyndu eins og þeir gátu að
bæta við mörkum en varnarmenn
Neftchi vörðust sóknum FH ágæt-
lega og beittu síðan skyndisókn-
um, en annað mark Neftchi kom
eftir eina slíka.
Leikmenn FH náðu aldrei al-
mennilega undirtökunum í leikn-
um, þrátt fyrir að vera manni
fleiri allan seinni hálfleikinn.
Skynsamlegur leikur Neftchi
gerði leikmönnum FH erfitt fyrir
og eldfljótir sóknarmenn liðsins
gerðu varnarmönnum FH lífið
leitt.
Auðun Helgason, miðvörður
FH, var að vonum óánægður í
leikslok. „Þetta var einfaldlega of
gott lið fyrir okkur. Leikmenn
Neftchi náðu vel saman og vörð-
ust skipulega, sérstaklega í seinni
hálfleik. Það kom mér svolítið á
óvart í fyrri leiknum hvað liðið
var skipulagt, en að auki voru góð-
ir einstaklingar í þessu liði sem
við réðum ekki nógu vel við.“
magnush@frettabladid.is
Einn eftirsóttasti þjálfari landsins búinn að gera upp hug sinn::
HANDBOLTI Handboltaþjálfar-
inn Heimir Ríkarðsson hefur
bundið enda á marga vikna
vangaveltur um framtíð sína
með því að skrifa undir tveggja
ára samning við Val. Þar mun
Heimir gegna starfi aðstoðar-
þjálfara meistaraflokks liðsins
ásamt því að sjá um þjálfun 2. og
3. flokks félagsins. Óskar Bjarni
Óskarsson er sem fyrr aðalþjálf-
ari meistaraflokksins og er fyrir-
hugað að hann og Heimir verði í
mjög nánu samstarfi.
Heimir sagði við Fréttablaðið
að það hefði verið tækifærið að
sameina þjálfun unglinga og
meistaraflokks sem hefði ráðið
mestu um að Valur varð fyrir
valinu. „Á Hlíðarenda er einnig í
byggingu nýtt og glæsilegt
íþróttahús og það er mikið upp-
byggingarstarf í gangi,“ sagði
Heimir sem gat valið úr miklum
fjölda tilboða, en honum stóð
þjálfarastaða til boða hjá KA,
Gróttu/KR, Fylki, FH og Aftur-
eldingu svo einhver félög séu
nefnd. „Ég vildi halda mig í borg-
inni og af þeim tilboðum sem
voru þaðan fannst mér Valur
mest spennandi,“ segir Heimir.
Eins og kunnugt er var Heim-
ir rekinn frá Fram í vor og tók
Guðmundur Guðmundsson við af
honum. Vakti sú brottvikning
hörð viðbrögð meðal handbolta-
áhugamanna í landinu enda
Heimir búinn að ná frábærum
árangri með Safamýrarliðið
þrátt fyrir fámennan og mjög
ungan leikmannahóp. Athygli
vekur að Heimir kýs að halda
áfram unglingaþjálfun þrátt fyr-
ir að honum standi til boða að
verða aðalþjálfari meistara-
flokks. „Ég hef einfaldlega svo
gaman af að vinna með ungum
leikmönnum, fullum af eldmóði
og áhuga. Valur er lið sem ætlar
að vera á toppnum áfram og ég
fæ að taka þátt í því. Svo að ég er
mjög sáttur,“ segir Heimir.
- vig
Heimir tekur vi› fljálfun hjá Val
17.00 FH-Neftchi í Meistaradeild
Evrópu á Sýn. Útsending frá leik
liðanna sem fram fór í gærkvöldi.
18.40 Heimsbikarinn í torfæru á
Sýn.
19.10 PGA mótið í golfi á Sýn.
19.40 Golf Greatest Round á Sýn.
Þáttur þar sem saga golfsins er rifjuð
upp.
20.30 Íslandsmótið í golfi 2005 á
Sýn.
21.30 Kraftasport á Sýn.
22.30 Sterkasti maður heims á
Sýn.
23.30 Strandblak á Sýn.
23.50 Bikarkvöld á RÚV. Sýnd
verða mörkin úr leikjum kvöldsins.
HARÐUR SLAGUR Það var hart tekið á því í leik FH og Neftchi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN