Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 52
Nú er sumarið í hámarki og grilltíminn í algleymingi. Fátt er skemmtilegra en að bjóða til sín vinum og kunn- ingjum í gott grill – nema ef til vill að vera boðið í eitt slíkt. Þá er alsiða að taka með sér flösku af einu góðu rauðvíni í slík boð, en hvernig á að velja rauðvín fyrir hóp af fólki sem fellur vel að bragðlaukum allra? Þá hentar Sunrise Cabernet Sauvignon einstaklega vel, enda eitt vinsælasta rauðvín á Íslandi og mest selda flöskuvín landsins. Sunrise Cabernet Sauvignon ilm- ar af brómberjum, sólberjum, þurrkuðum plómum og vanillu. Það hefur góða fyllingu, langvinnt bragð og hentar með öllu kjöti, pastaréttum og eins með ostum. Framleiðandi Sunrise – Concha y Toro – leggur mikið upp úr gæðum vína sinna, og hefur fyrirtækið verið valið vínframleiðandi ársins í nýja-heiminum af hinu virta víntímariti Wine Enthusiast. Sunrise Cabernet Sauvignon er gott vín á góðu verði, eins og vinsældir vínsins hafa leitt í ljós. 36 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Magnús Friðrik Ólafsson, meist- aranemi í sálfræði, nefnir Kind á spjóti sem sína uppáhaldsupp- skrift. Hann átti þó í nokkrum erfiðleikum með að velja eina uppskrift fram yfir aðra því Magnús er mikill matgæðingur. „Þetta er svona sumar- og stemmningsmatur sem fellur alltaf vel í kramið hjá gestum og fjölskyldu,“ segir Magnús. „Ég legg líka mikla áherslu á að hafa gott íslenskt hráefni.“ Magnús er afar liðtækur í eldhúsinu og sér um elda- mennskuna á sínu heimili ásamt móður sinni. „Á hverju heimili er einn Grill-Guðjón og heima hjá mér er ég hann. Svo er ég í matgæðingafélagi með meiru sem kallast Flottræfilsfélagið, FRF, en það hefur fyrst og fremst það markmið að víkka út sjóndeildarhring meðlima varð- andi mat og vín. Þetta er leyni- félag, eingöngu skipað karl- mönnum, en makar eru þó leyfð- ir á fundum einu sinni á ári,“ segir hann kíminn og vill lítið tjá sig um fjölda félagsmanna. „Við fundum reglulega og prófum okkur áfram í flóknari viðfangsefnum matargerðar. Hjá FRF er sósa til dæmis al- gjört bannorð því hún er svo al- þýðleg. Í stað hennar búum við eingöngu til froðu eða „mousse“. Ég er þó ekki flottræfill alla daga því stundum þarf maður að sætta sig við ódýrari og einfald- ari mat.“ Magnús byrjaði að sýna mat- argerð sérstakan áhuga um tví- tugt. „Þetta hófst allt saman þegar við keyptum gasgrill á heimilið fyrir fimm árum síðan. Það kunni enginn heimilis- manna á gripinn svo ég tók þetta að mér. Þá vatt þetta upp á sig og ég fór af grillinu inn í eldhús- ið. Mér finnst grillið þó alltaf skemmtilegast og þá er stór- steikin toppurinn. Þegar ég er með eina slíka á grillinu líður mér eins og sönnum karlmanni,“ segir Magnús grafalvarlegur. Eins og sannur flottræfill lætur Magnús ekki bjóða sér hvað sem er. „Persónulega myndi ég aldrei elda úr kjöt- farsi því það samræmist ekki hugmyndum mínum um gott hráefni. Við höfum þó einu sinni haft pólskar pylsur á fundi hjá FRF. Það var því gerð undan- tekning, en lykilorðið hér eru „pólskar“ sem þær þurftu að vera til að komast í gegnum nál- araugað. Svo vil ég bara enda á því að minna á Hásumarþing FRF á föstudagskvöld svo taki það til sín sem eiga,“ segir hinn ungi ástríðukokkur sem þegar hefur hafist handa við undirbún- ing. soleyk@frettabladid.is Flottræflar láta ekki bjóða sér hvað sem er MAGNÚS F. ÓLAFSSON Magnús eyðir ófáum stundunum fyrir framan grillið með Maldon-saltið við höndina. Ólífuolían er aldrei langt undan. Hvaða matar gætir þú síst verið án? Ég gæti ekki lifað án rauðs kjöts. Fyrsta minningin um mat? Það var þegar stórfjölskyldan safnaðist saman á sunnudögum heima hjá ömmu og afa á Skólabraut. Þar var boðið upp á ekta gamaldags lamba- hrygg, sem var kryddaður með Season All, og brúnni sósu. Í þá daga var lítið um ólífuhvítlaukstimjan pælingar. Besta máltíð sem þú hefur feng- ið? Síðasta máltíð er alltaf sú besta. Ég er rosalega veikur fyrir rauðu kjöti og núna er hrefnukjöt í mestu uppáhaldi hjá mér. Ég prófaði að grafa hrefnukjötið um daginn og það toppaði allt. Annars hef ég bæði grillað það og steikt og það var líka mjög gott. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Já, mér finnst allur matur vondur sem er mikið eldaður, mauksoðinn, bragð- laus og litlaus. Þegar ég var staddur í Króatíu um daginn fékk ég nánast bara mauksoðinn og bragðlausan mat. Leyndarmál úr eldhússkápunum? Það er að eiga alltaf Tabasco-sósu. Ég elda mikið pasta og ef ég finn að eitt- hvað er að klúðrast hjá mér í eldhús- inu set ég nógu mikið af Tabasco-sósu út á. Hún er svo sterk að enginn finnur bragð af matnum! Hvað borðar þú til að láta þér líða betur? Það fer eftir í hvaða ástandi ég er. Stundum þarf ég ákaflega mikið á sóðamat að halda. Ég er í eðli mínu afar latur við að borða grænmeti, en mér líður þó alltaf mjög vel þegar ég geri átak í grænmetisáti. Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Ég á yfirleitt alltaf mjólk, en ég er líka mjög hrifinn af mysu og drekk mikið af henni. Ef þú yrðir fastur á eyðieyju, hvaða rétt tækir þú með þér? Á háskólaárunum lifði ég á núðlusúpu og túnfiski í olíu því það var það eina sem framfærslumörk stúdentalánanna buðu upp á. Ætli ég tæki ekki þetta tvennt með á eyðieyjuna. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað? Á dögunum var ég í heimsókn á Höfn í Hornafirði. Þar borðaði ég þurrkaða smálúðu sem bragðast ekki ólíkt og harðfiskur, en þó var bragðið svolítið skrítið, í það minnsta svona í fyrsta sinn. Ég upplifi þetta oft þegar ég smakka rétti í fyrsta skipti, mér fannst ostrur til dæmis frekar skrítnar fyrst. MATGÆÐINGURINN BORGAR ÞÓR EINARSSON LÖGMAÐUR Hrefnukjöt í mestu uppáhaldi Gúrkan skorin í litla teninga. Tómatarnir skornir í helminga, fræin skafin úr þeim með skeið og þeir síðan skornir í teninga. Rauðlaukurinn skorinn í litla bita og paprikurnar fræhreinsaðar og skornar í teninga. Öllu blandað saman í skál. Safinn kreistur úr sítrónunni og hristur saman við olíu, steinselju, graslauk, pipar og salt. Hellt yfir grænmetið og blandað vel. Látið standa nokkra stund. Borið fram t.d. sem meðlæti með grillmat eða steiktu kjöti eða fiski. 1 stór íslensk gúrka 3 íslenskir tómatar, þroskaðir 1 lítill rauðlaukur 1/2 íslensk græn paprika 1/4 íslensk gul paprika, má vera rauð 1 sítróna 3 msk. ólífuolía 1/2-1 steinseljuknippi, saxað 3-4 msk. graslaukur, saxaður (má nota vorlauk) 3/4 tsk. nýmalaður pipar, helst regnbogapipar (fimmlit piparblanda) salt Fleiri ljúffengar uppskriftir og fróðleikur á www.islenskt.is ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S G RA 2 85 65 06 /2 00 5 gúrkusalsa Nú er hann loksins fáanlegur aftur þessi sérdeilis prýðilegi bjór sem á uppruna sinn í Boston í Bandaríkjunum. Í vínbúðunum við Stuðlaháls og í Kringlunni fæst nú þessi bragðmikli bjór frá „Evrópuborg“ Banda- ríkjanna. Hér á landi kostar flaskan aðeins 199 krónur sem er hlutfalls- legra miklu lægra verð en í Bandaríkjunum þar sem kippa með sex flöskum er seld á nánast sama verði og heill kassi (24 fl.) af fjöldaframleidd- um bjór. Bjórvinir fagna endurkomu Samuel Adams því þessi bjór hefur mikið og sérstakt bragð sem fáir bjórframleiðend- ur í Bandaríkunum geta státað af. Hér er á ferðinni vandað og bragðmikið öl úr úr- vals hráefnum sem gefur fullan styrk og bragðfyllingu. Samuel Adams á sér stóran hóp dyggra viðskiptavina hér á landi sem hafa kynnst vörunni í Bandaríkjunum. Þessi vara er því gott innlegg í vöruúrval vínbúðanna og uppfyllir óskir þeirra neytenda sem gera miklar kröfur um gæði. Öl fyrir kröfuharða bjórgæðinga! Verð í Vínbúðum 199 kr. í 355 ml flöskum SAMUEL ADAMS: Það er til góður bjór í Ameríku! SUNRISE: Eitt ástsælasta vínið FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M KIND Á SPJÓTI – FYRIR FJÓRA Hráefni: Fjögur löng stálspjót 1 kíló kindafille (án fitu) 1 rauðlaukur 1 rauð og 1 gul paprika 1 kúrbítur sveppir kirsuberjatómatar Maldon-salt Kryddlögur: 1 dl ólífuolía Safi úr einni sítrónu 3 pressaðir hvítlauksgeirar 1 matskeið rósmarín 1 matskeið timjan 1 teskeið nýmalaður svartur pipar Blandið hráefninu í kryddlöginn saman og látið kjötið liggja í leginum í nokkrar klukkustundir. Skerið rauðlauk, papriku og kúrbít í hæfilega bita og penslið með olíu. Raðið svo kjöti og grænmeti til skiptis á spjótin. Grillið spjótin á funheitu grilli í 5-10 mínútur og snúið 2-3 sinnum. Gott er að nota pottaleppa til að snúa því spjótin verða heit. Saltið með Maldon- salti í lok grilltímans. Maldon er lykilatriði, enginn ætti að grilla án þess. Meðlæti: Bakaðar kartöflur og gráðaostasósa Kartöflur skornar í tvennt, penslaðar með ólífuolíu. Saltið með maldon-salti og bætið við örlitlum pipar. Bakið kartöflu- helmingana í ofni við 200 gráður í 40-60 mínútur. Gráðaostasósa: Myljið niður 75 grömm af gráðaosti og hrærið saman við eina dós af sýrðum rjóma (10%).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.