Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 21. júlí 2005 29
STRANDÍÞRÓTTIR Í kjölfar stórbatn-
andi veðurfars við Íslandsstrend-
ur hafa nýjar íþróttagreinar rutt
sér til rúms – íþróttir sem eiga
það sameiginlegt að vera stundað-
ar á sandi.
Með tilkomu Nauthólsvíkur
uppgötvaði almenningur þá
hreyfingu sem felst í strandblaki.
Stöðug þróun hefur verið í íþrótt-
inni síðan þá og hefur nú verið
sett á laggirnar sérstök strand-
blaksnefnd innan BLÍ og hafa
stigamót verið haldin með reglu-
legu millibili í sumar. Þá átti Ís-
land sína fulltrúa í strand-
blakskeppni Smáþjóðaleikana.
Og nú er það hið nýjasta að
stunda sjálfa þjóðaríþrótt okkar
Íslendinga á sandi – handboltann.
Næstu helgi fer fram, annað árið í
röð, strandhandboltamót. Rétt
eins og í blakinu er þátttaka jafn-
an mikil í mótum sem þessum þar
sem flestir þeir sem áhuga hafa
stendur til boða að taka þátt á
meðan pláss er til staðar.
„Það er pláss fyrir 20 lið svo að
það fer hver að verða síðustur til
að skrá sig, bæði konur og karlar,“
segir handknattleiksmaðurinn
Haraldur Þorvarðarson, einn af
aðstandendum strandhandbolta-
mótsins í Nauthólsvík um helgina.
„En þó að þetta sé keppni erum
við aðallega að gera þetta til að
hafa gaman og njóta útiverunnar í
Nauthólsvík. Það verða plötusnúð-
ar á staðnum og mikið fjör,“ segir
Haraldur en hugmyndin af
strandhandbolta kemur upphaf-
lega frá Þýskalandi og eru fimm
leikmenn inni á vellinum með
markverði. Notaður er sérstakur
bolti með betra gripi en hinn hefð-
bundni handbolti, sem þolir bæði
sand og sjó. „Og það er hægt að
drippla honum,“ bætir Haraldur
hlæjandi við.
Sævar Már Guðmundsson,
verðandi framkvæmdastjóri blak-
sambandsins, segir að iðkenda-
fjöldi strandblaksins fari sívax-
andi með ári hverju. „Það koma
einhverjir nýir inn á hverju sumri
en þetta er í fyrsta sinn í sumar
sem við erum með alvöru móta-
fyrirkomulag,“ segir Sævar en
þrjú stigamót eru í sumar og 16
stigahæstu einstaklingarnir úr
þeim mótum spila á úrslitamótinu
sem fram fer í ágúst. „En þetta er
íþrótt fyrir alla sem einstaklega
gaman er að stunda í svona blíðu
eins og hefur verið undanfarna
daga.“
Strandvelli er að finna víða á
landinu fyrir þá sem hafa hug á
því að prófa sig áfram – Í Naut-
hólsvík, Í Fagralundi í Kópavogi,
á Miklatúni og einnig á Akureyri,
Neskaupstað og víðar.
Tenglar: www.bli.is, www.handbolti.is
- vig
N‡jasta æ›i› á Íslandi
BÍLADELLUDAGAR
50% afsláttur
PANTAÐU Í SÍMA 550 5000
EÐA Á VISIR.IS.
F
í t o
n
/ S
Í A
F
I 0
1
5
7 2 9
FÓTBOLTI Kristján Guðmundsson,
þjálfari Keflavíkur, telur að það
verði KR og ÍBV sem komist í
undanúrslit VISA-bikarsins með
naumum sigrum í tveimur há-
spennuleikjum í kvöld. KR-ingar
fá Valsara í heimsókn á meðan
Fram tekur á móti Eyjamönnum í
Laugardalnum og býst Kristján
við tveimur leikjum þar sem
spennustigið verður gríðarlegt.
„Það verður fullt af fólki á
vellinum í Frostaskjólinu, gríðar-
leg stemning og mikil spenna.
Þess vegna á ég von á mjög föst-
um og hörðum leik þar sem eitt
ef ekki fleiri rautt spjald líta
dagsins ljós,“ segir Kristján, sem
að þessu sinni hallast frekar að
naumum heimasigri. „Þetta verð-
ur ekkert 3-0 fyrir Val eins og í
deildarleiknum á Hlíðarenda á
dögunum. Þá pressuðu Valsmenn
þá hátt og það kom KR-ingum á
óvart og sló þá út af laginu. Nú
kemur það þeim ekki á óvart,“
segir Kristján.
„Ég sá KR-inga gegn Fram á
dögunum og maður sá hvað hafði
verið í gangi hjá þeim á æfingum
og fundum fyrir þann leik. Það
var miklu meiri festa í leiknum
og sjálfstraustið óx með hverri
mínútu. Leikmennirnir hafa
fengið meiri trú á því sem þeir
eru að gera og ég spái þeim 2-1
sigri í kvöld. En þetta verður
gríðarlega jafn og spennandi
leikur.“
Kristján segir að það sé nánast
ómögulegt verk að spá fyrir um
leik Fram og ÍBV. „Ef marka má
síðustu leiki þá er meiri uppgang-
ur í Eyjaliðinu. Þeir voru að ná
sér í sitt fyrsta útivallarstig í
deildinni á meðan Framarar hafa
tapað fimm deildarleikjum í röð.
Ég held að þessi leikur fari í
framlengingu og vítaspyrnu-
keppni,“ segir Kristján og hallast
þar frekar að því að Eyjamenn
hafi betur.
„Gunnar Sigurðsson í marki
Fram hefur orð á sér að vera
vítabani en ég held að þetta verði
dagur Birkis Kristinssonar í
marki ÍBV. Hann tekur tvö víti og
verður hetjan.“ - vig
MJÖG FASTUR LEIKUR Kristján Guðmundsson segir að spennustigið verði gríðarlega hátt í
Frostaskjólinu í kvöld og spáir því að rauð spjöld eigi eftir að fara á loft. Garðar Örn Hinriks-
son fær það verðuga verkefni að hafa hemil á leikmönnum inni á vellinum í kvöld.
KR-sigur í háspennuleik
Kristján Gu›mundsson spáir heimasigri flegar KR-
ingar taka á móti Valsmönnum í 8-li›a úrslitum
VISA-bikarsins í Frostaskjóli í kvöld.
STRANDHANDBOLTI Strandhandboltamót
fyrir alla verður haldið í Nauthólsvík um
næstu helgi.
Strandíþróttir verða sífellt vinsælli yfir sumartímann: