Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 22
Baugur Group er í viðræðum við eiganda tískuversl-
unarkeðjunnar Jane Norman um kaup á 30-40 pró-
senta hlut í fyrirtækinu samkvæmt the Times. KB
banki er sagður fjármagna kaupin fyrir Baug.
Fjárfestingarfélagið Graphite Capital hefur verið eig-
andi Jane Norman síðan árið 2003. Þá var kaup-
verðið um 70 milljónir punda sem gerir um átta
milljarða króna í dag. Stjórn félagsins gekk til við-
ræðna við Baug eftir að ákveðið var að selja hluta
keðjunnar fyrr á þessu ári. Þetta gætu orðið fyrstu
kaup Baugs á Bretlandseyjum eftir að félagið dró sig
úr hópi fjárfesta sem hyggjast yfirtaka Somerfield.
Verslanir Jane Norman eru um eitt hundrað en keðj-
an var stofnuð árið 1952 af Norman Freed.
- eþa
Færri Moggar
Mogginn seldist í 2.322 færri eintökum að meðal-
tali á dag á fyrstu sex mánuðunum í ár miðað við
sama tímabil árið 2004. Að jafnaði selst blaðið í
tæpum 51.000 eintökum á dag. En hver gæti
tekjumissir blaðsins verið? Mánað-
aráskrift að Mogganum kostar
2.400 krónur á mánuði og
eintakið út úr búð á virk-
um degi um 220 krónur
þannig að gera má ráð
fyrir að útgáfufélagið Árvak-
ur verði að minnsta kosti af
um fimm milljónum króna á
mánuði vegna samdráttar í
áskrift og lausasölu. Á ári gerir
þetta um 60 milljónir króna. Erfitt er
að áætla hvort félagið tapi einnig auglýsingatekj-
um en þó má ætla það í ljósi lækkandi auglýsinga-
verðs á prentmiðlamarkaði og minni lesturs á
blaðinu.
Hækkandi áskriftarverð
Oft er sagt að það fyrsta sem fólk losar sig við þeg-
ar illa árar séu fjölmiðlar. Góðæristími sem þessi er
sennilega eina leiðin fyrir fjölmiðla að hækka
áskriftargjöld. Ein leið fyrir Moggann til að bregð-
ast við þessum tekjumissi er að
hækka áskriftarverðið eins og Stöð
2 hefur tilkynnt um. Hækkaði
áskrift stöðvarinnar um átta
prósent í gær og kostar
mánuður í almennri áskrift
5.295 kr. Forráðamenn
Stöðvar 2 segja að eftir hækk-
unina hafi áskriftarverðið hækk-
að um 3,6 prósent að meðaltali
á ári frá 1998 en afnotagjald RÚV
um 3,7 prósent. Einnig benda þeir á
að launavísitalan hafi hækkað um 5,2 prósent og
neysluverðsvísitalan um 3,45 prósenta á sama
tíma. Ekki er vitað af hverju viðmiðunin miðast við
sjö ára tímabil en varla getur það verið tilviljun ein.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.209,80
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 192
Velta: 2.60 milljónir
+0,20%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Kynningarfundur KB banka fyr-
ir hluthafa og markaðsaðila verð-
ur haldinn föstudaginn 29. júlí..
Þar mun Hreiðar Már Sigurðs-
son kynna afkomu bankans og
svara spurningum.
Alþjóðlega matsfyrirtækið
Moody’s Investors Service stað-
festi í gær lánshæfiseinkunn Ís-
lands og breytist hún þar af leið-
andi ekki.
Í ljósi aukinnar hættu á verð-
bólgu vegna veikingar krónunnar
á næsta ári telur greiningardeild
Landsbankans að Seðlabankinn
hækki vexti um 0,25-0,5 prósent-
ur í byrjun ágúst og aftur um 0,25
prósentur í lok september.
22 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 41,10 +0,00% ... Bakkavör
38,60 +0,26%... Burðarás 16,40 +0,00%... FL Group 14,50 +0,00% ...
Flaga 4,75 +0,00% ...HB Grandi 8,20 +0,00% ... Íslandsbanki 13,55
+0,00% ... Jarðboranir 21,60 +0,00% ... KB banki 549,00 +0,18% ...
Kögun 58,80 +0,00% ... Landsbankinn 17,70 +0,57% ... Marel 58,40
+0,00% ... SÍF 4,82 +0,00 ...Straumur 12,25 -0,41% ... Össur 78,50
+0,64%
Og Vodafone +0,73%
Össur +0,64%
Landsbankinn +0,57%
Atorka -3,23%
Icelandic Group -1,40%
Mosaic Fashions -0,74%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Bandaríski hlutabréfa-
markaðurinn harður hús-
bóndi en um leið hvetj-
andi, segir Kári Stefáns-
son forstjóri ÍE.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskr-
ar erfðagreiningar, sagðist líta á það
sem forréttindi að stjórna fyrirtæki
sem skráð væri á bandaríska Nas-
daq-markaðinn, þegar það kom í
hans hlut að opna fyrir viðskipti á
Nasdaq í gærmorgun. Þar væru
helstu tæknifyrirtæki heimsins í
dag skráð.
Tilefnið var að fimm ár eru liðin
frá því að deCODE genetics var fyrst skráð á markað í Bandaríkjun-
um.
Í samtali við Fréttablaðið sagði
Kári að viðskiptaumhverfið þar
ytra væri allt annað en þekktist á Ís-
landi, sem væri dvergmarkaður í
samanburðinum. Þetta væri harðari
heimur og ekki alltaf dans á rósum.
Um leið væri umhverfið hvetjandi,
veitti aðhald og krefðist þess að all-
ir legðu sig fram við að skapa gott
og framsækið fyrirtæki. Með
skráningu á Nasdaq fengi deCODE
aðgang að peningum, erlendir
greiningaraðilar fjölluðu um fyrir-
tækið og skoðuðu það á gagnrýninn
hátt og bandaríska fjármálaeftirlit-
ið tryggði ákveðinn trúverðugleika.
„Það er mikilvægt atriði fyrir rekst-
ur fyrirtækis og fyrir það er ég
þakklátur,“ sagði Kári.
Hann sagði þetta hafa verið
mikla ævintýraför, spurður um það
hvað standi uppúr síðustu fimm ár.
Gaman væri að horfa til baka frá
því að fyrirtækið var stofnað fyrir
níu árum. Sambærileg fyrirtæki,
sem voru stofnuð á svipuðum tíma,
væru ekki lengur starfandi. Fyrst
fyrirtækja hefði deCODE náð að
einangra meingen og í kjölfarið þró-
að lyf sem nú væri í klínískum próf-
unum. „Ég er þakklátur fyrir þetta
allt saman,“ sagði Kári. – bg
Síðan deCODE var skráð á Nas-
daq-markaðinn fyrir fimm árum
hefur rekstrarumhverfi líftækni-
fyrirtækja gjörbreyst. Sú bjartsýni
sem ríkti meðal fjárfesta í garð
þessara fyrirtækja er horfin að
mestu leyti en mikill taprekstur
hefur einkennt geirann.
Áður en deCODE var skráð hafði
nýtt hlutafé verið boðið út fyrir
sautján milljarða króna á geng-
inu átján dalir á hlut. Lokagengi
fyrsta viðskiptadags hjá fyrirtæk-
inu var 25,44 dalir á hlut. Síðan
hefur verð á hlutabréfum í félag-
inu fallið um 60 prósent.
Í samanburði við önnur líftækni-
fyrirtæki hefur deCODE spjarað
sig vel. Transgenomic er líftækni-
fyrirtæki sem var skráð á Nasdaq
sama dag og deCODe og var
lokagengi þess fyrsta daginn um
24 dalir á hvern hlut. Gengi þess
hefur á þessum fimm árum fallið
um 95 prósent og er komið und-
ir einn dal.
Kaup á Jane Norman í bígerð
RAFRÆN UNDIRSKRIFT Eftir að hafa flutt stutta tölu og opnað Nasdaq markaðinn í
gær þurfti Kári Stefánsson að skrifa nafn sitt á skjá.
Skráningarlýsing Icelandic Group - júlí 2005
Skráningarlýsingin er gefin út vegna hækkunar á hlutafé Icelandic Group h
fjárhæð 616.707.297 krónur að nafnverði þann 30. maí 2005. Hækkunin var sk
Kauphöll Íslands hf. 10. júní 2005.
Hækkunin var afhent hluthöfum í Sjóvík ehf. sem hluti af greiðslu fyrir alla h
þeirra í Sjóvík ehf.
Hlutafé félagsins eftir hækkunina er 2.168.091.382 kr. að nafnverði.
Þar sem hlutafé Icelandic Group hf. hefur verið hækkað samtals um meira en
nemur 10% af heildarhlutafé ber félaginu að gefa út skráningarlýsingu samkvæ
gr. A-lið 3tl. viðauka IV við reglugerð nr. 434/1999.
Allt hlutafé Icelandic Group hf. er skráð á Aðallista Kauphallar Íslands hf. u
auðkenninu SH.
Skráningarlýsinguna er hægt að nálgast hjá Icelandic Group hf., Borgartún
Reykjavík og á vefsíðu félagsins www.icelandic.isog hjá umsjónaraðila skrán-
ingarinnar, Fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka Íslands hf., Hafnarstræti 5, Reykjavík
vefsíðu bankans www.landsbanki . is
Landsbankinn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
H
E
N
AS
D
AQ
S
TO
C
K
M
AR
KE
T
IN
C
.
Kaupverð er 125 milljónir
króna. Framkvæmdastjóri
365 horfir til nágranna-
landanna.
365 ljósvakamiðlar hafa keypt allt
hlutafé í Sagafilm, sem framleiðir
auglýsingar og efni fyrir sjónvarp.
Segir í tilkynningu frá 365 að Jón
Þór Hannesson, stofnandi og fram-
kvæmdastjóri Sagafilm, muni
starfa áfram að uppbyggingu og út-
rás fyrirtækisins.
Kaupverð er 125 milljónir króna
og nema vaxtaberandi skuldir fé-
lagsins 45 milljónum. Áætluð árs-
velta Sagafilm er um 580 milljónir
króna og gert er ráð fyrir jákvæðri
afkomu rétt eins og í fyrra.
Gunnar Smári Egilsson fram-
kvæmdastjóri 365 ljósvakamiðla
segist hafa mikla trú á Sagafilm:
,,Fyrirtækið hefur verið starfrækt í
tæp þrjátíu ár og er réttnefnt móð-
urskip í þessum bransa.“
Gunnar segir markmið 365 að
einingar innan fyrirtækisins geti
starfað sjálfstæðar og sótt fram á
eigin forsendum: ,,Starfsemin þarf
ekki endilega að einskorðast við Ís-
land og lítum við þá helst til ná-
grannalandanna. Til að mynda er
Sagafilm framarlega í framleiðslu
auglýsinga, og þá þekkingu má nýta
til sóknar.“ -jsk
Afneita ummælum stjórnanda
FL Group sendi frá sér tilkynningu til Kauphallarinnar í gær vegna
ummæla sem voru höfð eftir Jóni Karli Ólafssyni, framkvæmda-
stjóra Icelandair – eins af fjórtán dótturfélögum FL Group – sem
birtust í breska blaðinu Scotsman þann 13. júlí síðastliðinn. Þar á
hann hafa sagt að Icelandair og breska lággjaldaflugfélagið easyJet
ættu ekki margt sameiginlegt og ekki væri stefnt á samruna félag-
anna. FL Group er næststærsti eigandinn í easyJet. Jón Karl sagði
enn fremur að fjárfestingin í easyJet hefði margborgað sig.
FL Group segir að orð Jóns Karls endurspegli ekki viðhorf stjórn-
enda móðurfélagsins til easyJet en allar ákvarðanir um fjárfestingar
FL Group séu teknar af stjórn þess.
- eþa
JANE NORMAN Baug-
ur Group er kominn í
viðræður við fjárfesting-
arfélag um kaup á hlut í
Jane Norman.
JÓN KARL
ÓLAFSSON
JÓN ÞÓR HANNESSON STOFNANDI
SAGAFILM Jón Þór mun áfram starfa hjá
Sagafilm þrátt fyrir að fyrirtækið sé nú í
eigu 365 ljósvakamiðla.
365 kaupa Sagafilm
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Forréttindi að stjórna
fyrirtæki á Nasdaq