Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 27
3FIMMTUDAGUR 21. júlí 2005 Hátískan (haute couture) er ólík þeirri tískuframleiðslu sem er til- búin til notkunar (prêt-à-porter) að því leyti að hún er eingöngu framleidd fyrir tískusýningar og eftir pöntunum viðskiptavina sem eru um tvö hundruð í heiminum. Ólíkt öðrum sýningum er þetta tíska komandi árstíðar en ekki ár fram í tímann eins og á dögunum þegar herratíska næsta sumars var kynnt. Nánast allt er handsaum- að og oft á tíðum um tvö hundruð vinnutímar á bak við hvern kjól jafnvel meira. Þetta átti örugglega við um brúðarkjól Karls Lager- feld fyrir Chanel sem var alsettur handsaumuðum kamelíum. Hverri hátískusýningu lýkur einmitt á útgáfu hönnuðarins af brúðarkjól. Talsvert hefur verið talað um það í tískublöðum og fjöl- miðlum hvort hátískan sé deyjandi hönnun (listform) og víst er að þeim tískuhúsum sem eru í hátískunni hefur fækkað. Gífurleg vinna liggur á bak við hverja flík og verðið er eftir því, oft á tíðum mill- jónir króna fyrir kjólinn. Í samhengi við hátískuna er oft talað um „litlar hendur“ það er að segja margar hendur sem koma að því að sauma einn kjól. Það er sjaldgæft að nýliðar bæti sér í þröngan hóp þeirra tísku- húsa sem framleiða hátísku. Ekki er langt síðan að Jean-Paul Gaulti- er blandaði sér í þennan hóp og hannar nú bæði fatnað sem er til- búinn til notkunar og hátísku. Sýning Gaultier var undir rússneskum og úkraínskum áhrifum, babúskur í bland við prinsessur. Giorgio Armani sýndi nú í annað sinn hátísku, en er þó enginn nýliði þegar tíska er annars vegar, sjötíu og tveggja ára. Armani er eitt af stærstu tískufyrirtækjum í heimi og Giorgio Armani einn sá efnaðasti. Hann sagðist sjálfur gefa sér þá gjöf að skella sér í hátískuna og sýna að Armani tískuhúsið sé enn í fullu fjöri. John Galliano minntist hundrað ára fæðingarafmælis Christian Dior með afturhvarfi til fortíðar. Hestvagn kom inn á sviðið sem var eins og draugalegur garður og út steig kona, afturganga Madame Dior með lítinn dreng, Christian. Fyrirsæturnar sýndu kjóla með líf- stykkjum en þar á eftir sveif stíll „New look“ yfir vötnum og í Hollywood-hlutanum mátti sjá toppfyrirsætur, Naomi Campbell, Evu Herzogovu og Lindu Evangelista. Í febrúar var tískuhús Christian Lacroix selt frá LVMH til banda- ríska fyrirtækisins Duty free. Enginn vissi hvað úr yrði og spáði ég jafnvel að tískuhúsið yrði að safni líkt og hjá YSL þegar hátískunni var lokað. En svo virðist sem að Lacroix hafi endurheimt listrænt frelsi sitt og var sýning hans tvímælalaust sú glæsilegasta í þessari röð tískusýninga. Hátískan virðist því enn eiga lífdaga framundan. Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Hátískan enn á lífi Christina kaupir brúðarkjól SÖNGSTJARNAN VILL AÐEINS KLÆÐ- AST KJÓL FRÁ CHRISTIAN LACROIX. Söngstjarnan Christina Aguilera verslaði sér brúðarkjól frá Christian Lacroix á tískuvikunni í París fyrr í mánuðinum. Söngkonan er trúlofuð Jordan Bratman og ætla þau að gifta sig í vetur. Christina vildi ekki klæðast neinum öðrum brúðarkjól en frá Christian Lacroix enda dýrkar hún hönn- uðinn. „Hann er ótrúlegur. Smáat- riðin í vinnu hans eru mögnuð. Hann er einn af mínum uppáhaldshönnuð- um. Hann gerir einstaklega fallega brúðarkjóla og ég hlakka til að klæðast mínum,“ sagði Christina í samtali við blaðamann á tískuvikunni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY Nýr pöntunarlisti frá Addition FATNAÐUR OG HÚSBÚNAÐUR Í MIKLU ÚRVALI. Haust- og vetrarlistinn 2005 frá Addition er kominn út. Í listanum er að finna fatnað og skó á alla aldurshópa og dömufatnað í stórum númerum. Þar fyrir utan er í listanum húsbúnaður, allt frá rúmteppum upp í sófasett, leikföng og vefnaðarvara. Listann er hægt að panta hjá B. Magnússyni hf. og afhend- ingartími vörunnar er um það bil tvær vikur. ÚTSALA! Enn meiri afsláttur S: 588 5518 Opnunartími • Mörkinni 6 mán. – fös. 10 – 18 • lau. 10 – 16 Mikið úrval af yfirhöfnum á 50% afslætti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.