Fréttablaðið - 21.07.2005, Side 6

Fréttablaðið - 21.07.2005, Side 6
6 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Auglýsingar á bloggsíðum barna: Grímulausar áfengisaugl‡singar ÁFENGISAUGLÝSINGAR „Ég skil ekki hvað fólki gengur til með því að setja áfengisauglýsingar á bloggsíður barna eins og gert er á blogcentral.is,“ segir Árni Guðmundsson æskulýðs- og tómstundarfulltrúi í Hafnar- firði. „Svo virðist vera sem lágkúr- an eigi sér engin takmörk því þessar auglýsingar virka eins og börnin séu að hýsa auglýsing- arnar á síðum sínum og því er gengið skrefinu lengra í ósvífn- inni en annars er farið að gera í grímulausum áfengisauglýsing- um,“ bætir Árni við. Hann segir marga foreldra hafa haft samband við sig vegna þessara auglýsinga og hann seg- ir þær vinna gegn því samkomu- lagi sem ríki í þjóðfélaginu um að hlífa börnum og unglingum við áreiti sem þessu. Þorsteinn Eyfjörð, forstöðu- maður vefútgáfu 365, segir að umrædd auglýsing auglýsi leiki vegna þjóðhátíðar í Eyjum og hún sé í engu frábrugðin heil- síðuauglýsingum sem birst hafa í blöðum og mætti því birtast í netmiðli líka. Hann segir að bloggsamfélag- ið í rauninni opið öllum eins og allir stórir miðlar í landinu. -jse Viðhald hvalstöðvar og hvalbáta: Kostna›urinn tugir milljóna á hverju ári HVALVEIÐAR „Ég er ekki með tölurn- ar í hausnum en þetta eru hundruð milljóna,“ segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, þegar hann er spurður um uppsafnaðan kostnað við Hvalstöðina í Hvalfirði og hval- bátana frá því hvalveiðar lögðust af. „Þetta eru hafnargjöld, tryggingar, laun, viðhald og kostnaður við eftir- lit.“ Hvalur hf. á auk verksmiðjunn- ar og bragganna í Hvalfirði fjögur hvalveiðiskip sem ekki hafa verið notuð við veiðar frá árinu 1990. Kristján segir að það hafi alltaf verið tveir möguleikar í boði; að henda þessu öllu eða halda því við í von um að veiðar hæfust á ný. Hann vandar stjórnmálamönnun- um ekki kveðjurnar. „Það hefur verið gefið undir fótinn með að hvalveiðar verði leyfðar fljótlega hvert árið eftir annað og svo heyk- ist þetta lið á þessu á hverju ári. Þeir eru svo lafhræddir við Amer- íkanana að þeir þora sig hvergi að hreyfa.“ Að sögn Kristjáns hefur kostn- aðurinn verið greiddur af Hval hf. þó hann hafi engar tekjur haft á móti. - grs Páll hættur á Stö› 2 og vill ver›a útvarpsstjóri RÚV Páll Magnússon segist ósammála grundvallarstefnu fjölmi›lafyrirtækisins 365 og hefur láti› af störfum hjá félaginu. Hann ætlar a› sækja um stö›u útvarpsstjóra í dag. Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur veri› rá›inn fréttastjóri Stö›var 2. Róbert Marshall st‡rir n‡ju fréttasvi›i 365. FJÖLMIÐLAR Breytingar urðu hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365 í gær þegar Páll Magnússon lét af starfi sjónvarps- og fréttastjóra Stöðvar 2. Sigmundur Ernir Rúnarsson lét af störfum sem fréttaritstjóri Fréttablaðsins og tók í gær við stöðu Páls sem fréttastjóri Stöðvar 2 en mun einnig starfa sem ritstjóri nýrr- ar fréttastöðvar á vegum 365 sem hefur göngu sína í haust. „Ástæðan er einföld. Ég var ósammála þeirri grundvallar- stefnu sem fyrirtækinu hafði verið mörkuð,“ segir Páll um ástæðu uppsagnar sinnar en vill ekki segja nánar til um í hverju sá ágreiningur fólst. „Þessi ágreiningur er þess eðlis að ég vil ekki tjá mig um hann. Þó get ég sagt það að þetta er faglegur og heiðarlegur ágreiningur en ekki persónuleg- ur. Það eru engin illindi á milli einstaklinga og ég skil sáttur við fyrirtækið. Ég gerði eigend- um og stjórnendum grein fyrir sjónarmiðum mínum þar að lút- andi um og eftir síðustu helgi. Ég er þannig gerður að ég vil frekar stíga frá borði en að vera að sigla með skipi á stað sem mig langar ekki að fara á,“ seg- ir Páll. Páll segist ætla að sækja um stöðu útvarpsstjóra en frestur til að sækja um rennur út í dag. „Ég hef ekki sótt um en ætla að gera það,“ segir hann. „Ég vil engu bæta við útskýr- ingar Páls um hvers vegna hann sagði störfum sínum lausum,“ segir Gunnar Smári Egilsson, framkvæmdastjóri 365. Sigmundur Ernir segist kveðja Fréttablaðið með sökn- uði og hóf í gær störf sem fréttastjóri Stöðvar 2. „Ég hlakka mjög til þessa nýja verk- efnis. Ég lít á það sem mikla áskorun að auka og bæta frétta- þjónustu 365-ljósvakamiðla,“ sagði Sigmundur Ernir. Róbert Marshall hefur verið ráðinn framvæmdalegur for- stöðumaður nýs fréttasviðs 365 og til að stýra undirbúningi að hinni nýju fréttastöð sem verð- ur síðar undir hans stjórn. Ró- bert mun láta af störfum sem formaður Blaðamannafélags Ís- lands í kjölfar hinna nýju starfa. Fjölmiðlafyrirtækið 365 gefur meðal annars út Frétta- blaðið. hjalmar@frettabladid.is Framsókn flýtir fundi: B‡r sig undir lok R-listans FRAMSÓKNARFLOKKUR Gestur Gests- son, formaður Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis norður, segir framsóknarmenn ekki bíða endalaust eftir niðurstöðum um framhald samstarfsins innan R- listans. „Þess vegna flýtum við að- alfundi sem verður haldinn annað kvöld en ekki í haust,“ segir Gest- ur. „Slitni upp úr verðum við að vera tilbúin í kosningabaráttu.“ Guðjón Ólafur Jónsson, félagi í Framsóknarfélaginu, segir líklegt að framhald verði á samstarfi inn- an R-listans fyrir borgarstjórnar- kosningarnar á næsta ári. „Við klárum þessar viðræður,“ segir Guðjón. - jh Týndur maður: Skila›i sér heill á húfi LEIT Maður á níræðisaldri fannst heill á húfi skömmu fyrir hádegi í gær en hans hafði þá verið leit- að frá því snemma í fyrrinótt. Maðurinn varð viðskila við fjöl- skyldu sína sem dvaldi á tjald- stæðinu við Ásólfsstaði í Þjórs- árdal um klukkan ellefu í fyrra- kvöld. Lögregla og björgunarsveitir voru fljótlega kallaðar út og leit- uðu mannsins þar til hann fannst við Sandá, skammt frá þeim stað sem síðast sást til hans. Maðurinn hafði verið á gangi alla nóttina og var ramm- villtur. - ht Getur Samfylking boðið fram R-lista án hinna flokkanna ? SPURNING DAGSINS Í DAG: Viltu að Páll Magnússon verði útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 45,0% 55,0% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN ÁRNI GUÐMUNDSSON ÆSKULÝÐS- OG TÓMSTUNDARFULLTRÚI Árni gagnrýnir harðlega áfengisauglýsingar á bloggsíðum og spyr hvort þeir sem að þeim standi vilji virkilega að viðskiptahagsmunir eigi að vera hagsmunum barna og unglinga yfirsterkari. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R SI G U RÐ SS O N HVALSTÖÐIN Í HVALFIRÐI Hvalur hf. hefur lagt í ærinn kostnað við Hvalstöðina og fleira þrátt fyrir algert veiðibann í fimmtán ár. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I Breskir hermenn: Ákær›ir fyrir misflyrmingar BRETLAND Ellefu breskir hermenn hafa verið ákærðir fyrir mann- dráp og misþyrmingar á föngum í Írak. Þrír hermannanna hafa verið ákærðir fyrir stríðsglæpi en þeir eru taldir hafa valdið dauða írasks manns í september 2003. Fjórir hermenn til viðbótar eru ákærðir fyrir grófa vanrækslu og enn aðrir fjórmenningar eru taldir hafa borið ábyrgð á því að Íraki í þeirra haldi drukknaði í skurði. Mennirnir verða ekki dregnir fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag heldur breskan herrétt. Ættingjar hinna látnu eru ósátt- ir við að herinn skuli sjálfur dæma í málinu en auk þess gagnrýna þeir hversu langan tíma rannsókn málanna hefur tekið. ■ NORÐUR-KÓREA VIÐRÆÐUR TEKNAR UPP Á NÝ Stjórnvöld í Pjongjang, höfuð- borg Norður-Kóreu, hafa lýst því yfir að þau hyggist snúa aftur að samningaborði um kjarnorkumál 26. júlí næstkom- andi. Þrettán mánuðir eru síðan slitnaði upp úr sex ríkja við- ræðunum svonefndu og á með- an er talið að Norður-Kóreu- menn hafi náð að framleiða kjarnorkusprengju. LÖGREGLUFRÉTTIR ELDUR Í SKÚR Ekki er talið að verulegar skemmdir hafi orðið þegar lítill skúr við Grettisgötu brann í fyrrinótt. Tilkynnt var um eldinn skömmu eftir mið- nætti og gekk slökkvistarf greiðlega. REYKJANESBRAUT LOKUÐ Mikil umferð fór um íbúðarhverfi Hafnarfjarðar eftir að Reykja- nesbraut var lokað vegna fram- kvæmda í gær. Umferð gekk þó að mestu vel að sögn lögregl- unnar í Hafnarfirði. Einn öku- maður var stöðvaður grunaður um ölvun við akstur í bænum í fyrrinótt. PÁLL MAGNÚSSON Lætur af störfum sem fréttastjóri Stöðvar 2 og sækir um útvarps- stjórastöðu. RÓBERT MARSHALL Verður forstöðumaður nýs fréttasviðs og stýrir undirbúningi að nýrri fréttastöð. SIGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON Tekur við sem fréttastjóri Stöðvar 2 og ritstjóri nýrrar fréttarásar 365.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.