Fréttablaðið - 21.07.2005, Side 16

Fréttablaðið - 21.07.2005, Side 16
Bi› eftir enska boltanum Tæknimenn Símans hafa ekki undan a› afgrei›a umsóknir um áskrift a› enska boltanum á Skjá einum og flurfa áhugasamir a› bí›a í mánu› hi› minnsta eftir ADSL-tengingu. Boltinn byrjar a› rúlla eftir flrjár vikur. NEYTENDUR Þrátt fyrir að neytend- ur geti gert góð kaup víðast hvar á útsölum sumarsins eru verslunar- eigendur og stjórar sammála um að lítil stemning hafi myndast á útsölunum þetta árið. Segja þeir tvennt koma til; annars vegar hefjist þær of snemma og hins vegar endist þær of lengi. Í báðum verslunarmiðstöðvun- um sem og víðar verða flestar verslanir með útsölur sínar út mánuðinn en fyrstu verslanirnar hófu útsölur sínar 29. júní síðast- liðinn. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur sala almennt verið í meðallagi og undir vænt- ingum en vafalítið er að þeir sem nýtt hafa sér útsölurnar hafa fengið meiri og betri þjónustu en ef útsölutíminn væri styttri. Á móti kemur að ýmsir neyt- endur telja að þær vörur sem mest er slegið af klárist fljótlega og því er víða ekki hægt að gera eins hagstæð kaup nú og var í byrjun júlí. Þó eru ýmsar verslan- ir sem auka afslátt sinn þegar á líður enda mörgum eigendum í mun að minnka lager sinn áður en haustvörurnar koma til landsins. -aöe 16 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Íslenskir bankar og sparisjóðir hafa auglýst fátt meira síðustu daga og vikur en kosti þess að verða sér úti um viðbótarlífeyris- sparnað. Meðan satt og rétt er að slíkur sparnaður skipti máli þegar á ald- ur er komið er áríðandi að hægt sé að gera sér góða grein fyrir greiðslum þegar sextugsaldri er náð en ekki er hlaupið að því. Áhugasömum er bent á að reikna út hver sparnaðurinn yrði þegar komið er á eftirlaun miðað við mis- munandi forsendur á vefsíðum fyr- irtækjanna en Neytendasíðan hefur komist að því að ekki er allt sem sýnist og samanburður allur erfiður. Það skýrist af mismunandi for- sendum á reiknivélum fyrirtækj- anna á netinu og þeirri staðreynd að afar erfitt, ef ekki vonlaust, er að reikna upp á hár lífeyrisgreiðsl- ur 30 til 40 ár fram í tímann. Nið- urstaða sumra er fyrir skatta með- an tölur annarra eru eftir skatta auk þess sem þjónustukostnaður fyrirtækja er mismunandi. Enginn ábyrgist heldur að sú ávöxtun sem notuð er við útreikninga verði raunverulega rétt þegar upp er staðið. Niðurstaðan er að heillavænst sé að áhugasamir fari milli fyrirtækj- anna í eigin persónu og fái út- reikning miðað við sínar forsendur en ekki viðkomandi banka eða sparisjóða. Einfalt gert flóki› VIÐBÓTARLÍFEYRISSPARNAÐUR BANKA OG SPARISJÓÐAVERÐBÓLGA > BREYTING SAMRÆMDRAR NEYSLUVÍSITÖLU FRÁ JÚNÍ 2004 TIL JÚLÍ 2005 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I hagur heimilanna NEYTENDUR Hafi menn hug á að gerast áskrifendur að enska bolt- anum hjá Skjá einum í vetur verða áhugasamir að gera sér að góðu að segja upp áskrift sinni hjá öðrum internetfyrirtækjum elleg- ar vona að tæknimenn Símans hafi tengt breiðband inn á heimil- ið. Ásóknin er engu að síður það mikil að tæknimenn gefa sér heil- an mánuð til uppsetningar á ADSL sé það ekki fyrir á heimilinu og þar sem sparktíðin í Englandi hefst þann sjöunda ágúst næst- komandi með leiknum um Góð- gerðarskjöldinn er hætt við að ýmsir missi af byrjuninni. Ekki er nóg með að nýir áskrif- endur verði að sætta sig við bið heldur hafa truflanir orðið vegna uppfærslu ADSL kerfis Símans og hafa allnokkrir viðskiptavinir fyr- irtækisins fengið þær upplýsing- ar að þeir verði sambandslausir í nokkra daga meðan það gengur yfir. Íhuga allnokkrir þeirra að skipta um þjónustuaðila. Byrjunarkostnaður vegna ADSL-þjónustunnar er að lág- marki 8.485 krónur. Greiða þarf stofngjald að upphæð 3.995 kr., sem reyndar er frítt til 1. ágúst, greiða þarf að lágmarki 2.500 krónur fyrir tenginguna sjálfa í hverjum mánuði og að lokum tæp- ar 2.000 krónur fyrir áskrift að enska boltanum. Í þessu verði er ekki gert ráð fyrir internetað- gangi en það eykur kostnaðinn frekar. Ennfremur miðast áskrift- in að enska boltanum við bindingu til tíu mánaða en taki menn aðeins einn mánuð í einu er það dýrara. Margir þeir sem hafa ADSL- tengingar nú þegar frá öðrum fyr- irtækjum en Símanum hafa agnú- ast út í nauðsyn þess að skipta um þjónustuaðila en margir eru samningslega bundnir til margra mánaða. Samkvæmt upplýsingum frá Og Vodafone er þó tiltölulega einfalt að skipta. Um tölvuvinnu er að ræða og þarf ekki að fá tæknimann aftur í heimsókn. Þó einföld sé tekur það fimm til sex virka daga að fá breytinguna í gegn. Þá er lína viðkomandi flutt yfir á Símann en öll önnur við- skipti fara áfram fram á sama stað og áður. Auglýsingar Símans gefa til kynna að 90 prósent allra heimila geti tengst annaðhvort ADSL eða breiðbandinu. Sé smáa letrið skoðað er þó sá fyrirvari gerður að ekki sé hægt að ábyrgjast að allir geti tengst sjónvarpi með ADSL. Til þess verði vegalengdin frá símstöð til viðskiptavinar að vera innan við þrír kílómetrar að lengd. albert@frettabladid.is Sannleikurinn um erfðabreytt matvæli KOSTIRNIR Fyrir uppskeru · Meira bragð og gæði · Þroskast fljótar · Næringarríkara og þolnara · Aukin vörn gegn pestum og skordýr- um · Nýjar tegundir Fyrir dýr · Meiri framleiðsla · Bætt heilsa Fyrir umhverfið · Bættur og betri áburður · Vernd jarðvegs, vatns og orku · Bætt vinnsla úrgangs Fyrir samfélagið · Aukið matvælaöryggi GALLARNIR Öryggi · Hugsanleg áhrif á heilsu manna · Ófyrirséð víxlræktun milli tegunda Aðgengi og eignarréttur · Matvælaframleiðsla í höndum fárra fyrirtækja · Vanþróuð ríki enn háðari iðnríkjun- um en nú er Siðferðilegir · Inngrip í náttúrlegt ástand og tilurð plantna og dýra · Dýragenum blandað við plöntugen og öfugt · Álag á dýrin Merkingar · Mismunandi milli landa og sums staðar engar · Blöndun erfðabreyttra matvæla við venjubundin vekur spurningar um merkingar Samfélagið · Framfarir verða bundnar við iðnríkin Sumarútsölurnar með rólegasta móti: Of snemmt fari› af sta› JÁKVÆTT OG NEIKVÆTT Plúsinn við langar útsölur er að flestir geta verslað í þokkalegu næði og fá þjónustu en mínusinn hins vegar sá að stemningin sem á að fylgja spennandi tilboðum er horfin. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I ÆVIÁRIN Vænlegt er að skrá sig í viðbótarlífeyris- sjóð til að eiga meira milli handanna þegar starfsæv- inni lýkur. Verra er þó að gera marktækan saman- burð milli tilboða banka og sparisjóða. BANDARÍKIN NOREGUR ÍSLAND BRETLAND DANMÖRK FINNLAND SVÍÞJÓÐ 2,5% 1,6% 0,3% 2,0% 1,7% 1,0% 0,8% Heimild: HAGSTOFAN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.