Fréttablaðið - 21.07.2005, Side 20

Fréttablaðið - 21.07.2005, Side 20
Fyrir nokkrum vikum skók hræði- legt lestarslys Ísrael. Þungaflutn- ingabíll var að fara yfir lestarteina þegar lest nálgaðist á miklum hraða. Lestarstjórinn sá bílinn en gat ekki numið staðar í tæka tíð. Bílstjórinn sá lestina en gat ekki farið af teinunum í tíma. Afleiðing- in var sú að margir fórust, margir særðust og eyðileggingin var al- gjör. Nú, þegar brottflutningurinn frá Gush Katif nálgast, vofir svip- að slys yfir. Lest landtökumann- anna nálgast banvæn brautarmótin á fullum hraða. Aðeins kraftaverk getur fengið landtökumennina til að bremsa í tæka tíð. Aðeins kraftaverk getur komið í veg fyrir banvænan árekstur. Eins og mál horfa við núna, þá virðist líklegt að áreksturinn leiði af sér mestu breytingar í sögu Ísr- ael síðan í stríðinu 1967. Landtökumennirnir geta ekki stoppað og vilja það ekki heldur. Þá hungrar í orrustu. Þeir eru full- vissir um mátt sinn. Eftir margra ára leynilegt samstarf eru þeir sannfærðir um að ráðamenn í rík- issstjórninni, embættismenn hers- ins og opinberir starfsmenn standi með þeim. Þeir fyrirlíta fólkið í hinum herbúðunum. Þeir hafa í raun svipaðan ímugust á lýðræðis- legum meirihlutanum og fasísku einræðisherrarnir á þriðja ára- tugnum höfðu á „úrkynjuðu“ og „rotnuðu“ lýðveldunum. Jafnvel þó landtökumennirnir vildu stöðva lestina eins og vesal- ings lestarstjórinn, þá gætu þeir það ekki. Það er í eðli ofstækis- fullra hreyfinga að ala af sér enn ofstækisfullari hreyfingar sem loks geta af sér hreyfingar sem eru jafnvel enn þá öfgafyllri. Þær geta ekki haft taumhald á afkvæmum sínum og öflin á jaðrinum ráða ferðinni. Einhver hefur ofbeldið og hleypir af fyrsta skotinu. Þúsundir aðdáenda Yigals Amir, launmorð- ingja Yitzhaks Rabin, þyrstir í sinn skerf af dýrðinni. Uri Avnery er rithöfundur, stjórn- málamaður og stofnandi ísraelsku friðarsamtakanna Gush Shalom. Grein hans er birt í heild á skoðana- síðunni á netmiðlinum Vísi. ■ Dapurlegt var að lesa nýlega yfir- lýsingu frá Hvalaskoðunarsamtök- um Íslands þar sem samtökin fundu veiðum á hrefnu í vísindaskyni allt til foráttu og töldu þær skaða ferða- þjónustuna. Að sama skapi er svo ánægjulegt að lesa fréttir um það að hrefnukjötið fær afbragðs viðtökur neytenda. Íslendingar eru óðum að uppgötva að þetta er úrvals matur. Fitusnautt kjöt af villibráð sem nær- ist á krabbadýrum og fiski í hreinu og ómenguðu hafi norðurslóða. Það er slæmt að við skulum ekki nýta hvalastofna við landið meira en raun ber vitni. Hvalirnir skipta tug- um þúsunda. Okkur ber að stunda veiðar á þessum dýrastofnum, rétt eins og við nýtum villta dýrastofna sem lifa á landi. Þrátt fyrir þetta er í gildi fáránlegt hvalveiðibann. Ein- ungis er leyft að skjóta örfáar hrefnur á hverju sumri til vísinda- rannsókna. Í ár verða þær alls 39. Í fyrra voru þær 25 og 36 árið 2003. Þetta er í raun ekkert til að gera veður út af. Síðustu áratugi hefur ferðaþjón- ustu vaxið fiskur um hrygg. Ekkert nema gott um það að segja. Gleym- um þá ekki að við sem búum í þessu landi erum hluti af þeirri náttúru og menningu sem við seljum ferða- löngum. Hvalveiðar og ferða- mennska (þar með talin hvalaskoð- un) geta vel farið saman. Við eigum ekkert að skammast okkur fyrir það að nýta endurnýjanlegar náttúru- auðlindir eins og hvalastofnana. Ís- lenska eyþjóðin hefur frá landnámi aflað sér lifibrauðs af því sem nátt- úran gefur – það að sækja mat úr hafinu er hluti af menningu þeirra þjóða sem lifa við Norður-Atlants- haf. Viljum við vera öðruvísi en ná- grannar okkar í Noregi, Færeyjum og Grænlandi þar sem hvalveiðar eru stundaðar án þess að sjá megi að ferðaþjónusta þar bíði skaða af? Þegar litið er til hvalveiða undan- farin ár, er einmitt áhugavert að skoða reynslu nágrannalandanna. Norðmenn hafa til dæmis um árabil veitt fleiri hundruð hrefnur árlega. Í sumar verða tæplega 800 dýr tek- in á hafsvæðinu frá Norðursjó og norður að Svalbarða. Norðmenn láta ekki mótmæli hvalaverndunarsinna slá sig út af laginu. Enda engin ástæða til. Þeir stunda einnig öfluga markaðssetningu á afurðunum. Markaðssamtök fyrir hrefnukjöt í Noregi (www.hvalbiff.no) auglýsa grimmt og eru með góða heimasíðu sem ætti að vera okkur íslendingum til fyrirmyndar. Þar eru ótal upp- skriftir að gómsætum kjötréttum, en líka fróðleikur. Til dæmis um veiðar, hvalategundir, rannsóknir og krækjur á heimasíður hvala- friðunarsinna og hvalveiðiskoðun- arfyrirtækja. Árangur Norðmanna vekur svo aftur upp spurningar um hvernig staðið er að þessum málum hér á landi. Ríkisstjórnin á lítið lof skilið fyrir það hvernig hún hefur höndlað hvalveiðimálin. Vinnubrögðin ein- kennast af kjarkleysi og hálfkáki. Sjávarútvegsráðuneytið eyddi rúm- lega 100 milljónum króna í kynn- ingu á málstað Íslands í hvalveiði- málum á árunum 1998 til 2003. Það er ráðgáta í hvað og hvert þessir peningar hafa farið, því sorglega hægt hefur miðað í þessum málum alltof lengi. Einungis 39 hrefnur til boða á diska landsmanna sumarið 2005 segja meira en mörg orð um það. ■ Í kjölfar hryðjuverkanna í London hefur farið fram mikil umræða í fjölmiðlum um þá hugmyndafræði sem býr á bak við slíkra siðlausra árása. Hvað er það eiginlega sem fær menn til þess að myrða saklaust fólk á þennan hátt, með því að sprengja sjálfan sig í loft upp innan um varnarlausa borgara? Lengi hefur það verið haft fyrir satt að það sem knýr menn til að fremja voðaverka af þessu tagi sé fátækt og vonleysi, örvænting, fá- fræði og úrræðaleysi einstaklinga sem aldir eru upp við ill kjör í fá- tækrahverfum þriðja heimsins. Hryðjuverkaárásir séu því í raun- inni á ábyrgð Vesturlanda sem hafa farið illa með fyrrum nýlendur sín- ar. Nú hefur aftur á móti komið í ljós að þeir sem frömdu morðin í London voru breskir ríkisborgarar úr millistétt, menn sem á engan hátt liðu skort né þeirra fjölskyldur. Hið sama átti við morðingjana sem flugu farþegaþotunum á turnana í New York 11. september árið 2001 og þá sem stóðu á bak við árásirnar í Madríd fyrir skömmu. Þeir voru allir vel stæðir og vel menntaðir. Þannig að ekki var það vonleysi eða fátækt sem að baki bjó. Svo virðist sem drifkrafturinn hafi verið hug- myndafræði sem kennd er við ís- lamska bókstafstrú. Morðingjarnir töldu sig vera að þjóna einhverjum æðri trúarlegum málstað, heilögu stríði gætum við kallað það. En hvað er þessi bókstafstrú? Og hvað er það við bókstafstrú sem fær menn til að fremja slík voðaverk? Með hugtakinu bókstafstrú er ekki aðeins átt við bókstaflega trú á merkingu einhvers trúarrits. „Bók- stafstrú“ er þýðing á enska orðinu „Fundamentalism“. Merking orðs- ins er í raun „grundvallarhyggja“ eða trú á grundvallaratriðin. Hugtakið var fyrst notað um tólf bæklinga sem voru gefnir út af íhaldsömum kristnum guðfræðing- um í Bandaríkjunum á árunum 1910-1915. Í þessum bæklingum færðu guðfræðingarnir rök fyrir því að veröldin væri á valdi hins illa en það eina sem gæti bjargað henni væri ef menn sneru sér aftur til hinna gömlu gilda, til grundvallar- ins. Síðan hefur þetta orð verið not- að um ákveðna tegund öfgatrúar- hópa af öllum trúarbrögðum heims- ins, hindúíska, búddíska, kristna, gyðinglega og múslímska. Samkvæmt fundamentalistum eða bókstafstrúarmönnum er heim- urinn í dag á villigötum. Þannig kenna íslamskir fundamentalistar Veturlöndum um allt sem miður fer í hinum múslímska heimi því Vest- urlönd standa fyrir nútímann með lýðræðishugsjónum sínum og tján- ingarfrelsi. Þeirra verst eru Banda- ríkin „hinn mikli Satan“ eins og Komeini erkiklerkur í Íran kallaði þau. Fundamentalistunum finnst nútíminn þrengja að sér og niður- lægja menningu sínu og trú. Þeir sjá aftur á móti ekki að rót vandans er ekki síst óstjórn, stöðnun, kúgun og einræði í hinum íslamska heimi. Þeir trúa því að áður fyrr hafi verið gullöld þegar trúin, þeirra trú, var leiðandi afl í samfélaginu. Eina leið- in til að bjarga heiminum telja þeir vera að hafna nútímanum og snúa sér aftur til grundvallarins, til upp- hafsins. Upphafið er síðan að finna í Kóraninum. En vel að merkja, það getur ekki hver sem er túlkað trúarritin. Að- eins ákveðnir leiðtogar geta það. Þeirra túlkun ein er rétt. Og þar liggur hin leynda hætta funda- mentalismans. Ekki í trúarritunum eða átrúnaðinum, heldur leiðtogun- um. Því sumir leiðtogarnir segja sem svo að ekki sé nóg að hafna heiminum og leita á náðir trúarinn- ar. Nei, það verður að sprengja nú- tímann í loft upp, ráðast gegn hon- um með alvæpni, hrinda af stað heilögu stríði til að hann farist. Þetta á við alla fundamentalista, sama á hvað þeir trúa. Upp úr ófrið- arbálinu rís síðan ný gullöld trúar- innar, nýtt Ísrael, nýtt heimsveldi Íslam, ný öld kristninnar, allt eftir því úr hvaða herbúðum er predikað. Og þá skiptir heldur engu þó öll þessi trúarbrögð séu á móti morð- um og boði miskunn – ef leiðtogarn- ir segja annað. Þess vegna eru ung- ir menn, ungir vel menntaðir múslímar, tilbúnir að myrða og sprengja sig í loft upp. Þeir trúa því að þeir séu með því að fórna sjálf- um sér að koma á nýrri og betri ver- öld. Sjálfir öðlist þeir fyrir laun á himnum. Til að stöðva þá ógn sem frá fundamentalistum stafar þarf því að ráðast gegn forystumönnum slíkra hreyfinga. Og að sjálfsögðu þeim aðstæðum sem hjálpa þeim að fá til sín nýliða. Í þeirri baráttu þurfa hófsamari trúarleiðtogar að leggja sitt að mörkum með stjórn- völdum ef árangur á að verða. Ekk- ert annað getur þegar til lengri tíma er litið komið í veg fyrir sjálfs- morðsárásir bókstafstrúaðra múslíma svo dæmi sé tekið. Það er ekki nóg að fordæma árásirnar sem slíkar. Það þarf að fordæma þá hug- myndafræði sem þær byggja á og þá leiðtoga og skóla sem á bak við standa. Það hafa trúarleiðtogar múslíma ekki gert. En á meðan flykkjast ungir menn undir merki öfgasinna eins og Komeinis sem sagði: „Þeir sem vita ekkert um ís- lam segja að það sé friðarátrúnaður. Þeir eru heimskir. Íslam segir þvert á móti; drepið alla óvini ykkar“. ■ 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR20 MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON ALÞINGISM. FRJÁLSLYNDA FLOKKSINS UMRÆÐAN HVALVEIÐAR SÉRA ÞÓRHALLUR HEIMISSON UMRÆÐAN HRYÐJUVERK OG BÓKSTAFSTRÚ URI AVNERY UMRÆÐAN LANDNEMA- BYGGÐIR Í ÍSRAEL Vi› flurfum a› fá fleiri hvali á grilli› Bókstafstrú - hin leynda hættaMorgundagurinn Jafnvel fló landtökumennirnir vildu stö›va lestina eins og vesal- ings lestarstjórinn, flá gætu fleir fla› ekki. fia› er í e›li ofstækis- fullra hreyfinga a› ala af sér enn ofstækisfullari hreyfingar sem loks geta af sér hreyfingar sem eru jafnvel enn flá öfgafyllri. Bílaeign Seltirninga sem og annarra landsmanna hefur farið hraðvax- andi á undanförnum árum. Víst erum við háð þessum arftaka þarfasta þjónsins en væri ekki í lagi að staldra við á þessum tímamótum og skoða aðra raunhæfa valkosti. Tímamótin felast í því að um næstu helgi verður í fyrsta sinn tekið upp nýtt og samræmt leiðakerfi Strætó fyrir allt höfuðborgarsvæðið, leiða- kerfi sem er beinlínis hannað með þarfir íbúa höfuðborgarsvæðisins í huga. Núverandi kerfi er arfleifð und- anfarinna ára og áratuga þar sem sífellt hefur verið bætt við eldra kerfi. Nú hefur hins vegar verið far- ið í sérstaka vinnu til að skilgreina þarfir íbúa og markmið leiðakerfis- ins. Markmiðin eru eru einföld: • Að veita núverandi notendum betri þjónustu • Að fjölga farþegum • Að efla almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Stofnleiðir verða sex og þær eiga að þjóna fjölmennustu leiðunum og með meiri tíðni en aðrar leiðir. Al- mennar leiðir verða einnig sex og hverfaleiðir sjö. Tvær almennar leiðir þjóna Seltjarnarnesi og stoppa á sömu stöðum og „þristur- inn“ og „Grandavagninn“ gera nú þó svo framhald leiðanna verði ekki alveg það sama og áður. Nesleiðin, sem verður nú númer 11, ekur sama hring um Nesið eins „þristurinn“ gerir nú. Fyrir utan sjálfan Neshringinn fer hann að mestu leyti sömu leið fram og til baka um Nesveg, Lækjartorg, Hlemm, Háaleitisbraut, Bústaða- veg, Mjódd og loks um Dalveg í Smárann og Smáralind. Þetta þýðir ekki endilega að fljótlegasta leiðin í Smáralind sé að sitja í sama vagni alla leið, en fyrir þá sem það vilja er það hægt. Grandavagninn fer hins vegar hring í vesturbænum og það- an um Lækjartorg, Hlemm, Löngu- hlíð framhjá Perlunni og Kringlunni að Landsspítala í Fossvogi. Nýtt leiðakerfi Strætó miðar að því að þjóna betur fjölmennustu vinnustöðunum á höfuðborgar- svæðinu, einnig fjölmennum íbúða- hverfum og verslunarmiðstöðvum, skólum og sjúkrastofnunum svo eitthvað sé nefnt. Ferðatími styttist og skiptingar verða færri. Ferðir verða tíðari á álagstímum. Með þessu verður Strætó hagkvæmari, notendavænni og einfaldlega um- hverfisvænni valkostur. Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja en vissulega má reyna að breyta venjunum smám saman til dæmis með því að venja sig á að geyma bílinn heima einn dag í viku til að byrja með. Kannski verða heimadagarnir þeir tveir eða þrír áður en við vitum af. Þannig getum við stefnt að því að gera al- menningssamgöngur að raunhæf- um valkosti og í leiðinni sparað fyr- ir okkur sjálf og minnkað stressið með því að losna við umferðaöng- þveitið. Seltirningar, gefum nýja leiða- kerfinu verðskuldað tækifæri! Tök- um Strætó alla leið. Höfundur er verkfræðingur og fulltrúi Seltjarnarness í stjórn Strætó. ■ Páll Magnússon hættur á Stöð 2 og sækir um embætti Útvarpsstjóra Fundaði með ráðherra um embætti útvarpsstjóra N‡ja lei›akerfi› er fyrir Seltirninga INGA HERSTEINSDÓTTIR UMRÆÐAN NÝTT LEIÐA- KERFI STRÆTÓ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.