Fréttablaðið - 21.07.2005, Side 28
Sexí, dimmt og
drungalegt
Hátískan var kynnt fyrir skemmstu í tveimur af tísku-
borgum heimsins, París í Frakklandi og Róm á Ítalíu.
Það þarf varla að segja frá því þegar þessar tvær borg-
ir eru annars vegar að tískan er glæsileg, fáguð og
flott og tískuvikurnar í báðum borgunum fóru af-
skaplega vel fram. Jarðarlitirnir og hvítur eru ríkj-
andi í hátískunni eins og svo oft áður. Tískan er
frekar dimm og drungaleg og virðist eiga að auka
enn á dulúð konunnar. Línurnar í hátískunni eru
mjúkar og kvenlegar en jafnframt ögrandi og töff
svo ekki sé minnst á hvað þær eru rosalega sexí.
Njótið vel.
4 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Opið mán-fös 10-18
www.atson.is
Brautarholti 4
Útsalan í
fullum gangi
Ásnum - Hraunbæ 119 - Sími 567 7776
Opið virka daga kl. 11:00-18:00
Útsala
20 - 50% afsláttur
Laugavegur 58 • 101 Reykjavík • S: 551-4884
ÚTSALA
20% AUKAAFSLÁTTUR!!
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
O
G
G
ET
TY
Perlur, perlur og aftur perlur frá Fausto
Sarli á Ítalíu.
Geggjað tjull og fínerí frá
Gianni Calignano á Ítalíu.
Svart og djarft frá Stephane Rolland í
Frakklandi.
Fágaður brúnleitur kjóll frá
Elie Saab í Frakklandi.Gulleitt hafmeyjupils frá Sumbell Zigazovaya.
Það er svo gaman að horfa á hvernig
stjörnurnar klæða sig en enn þá
skemmtilegra væri að fá að klæða
þær sjálf/ur!
Á vefsíðunni paperdollhea-
ven.com er það einmitt hægt. Þar
eru dúkkulísur fyrir fjölda margar
stjörnur og hægt að klæða þær upp
eins og manni langar til. Hægt er að
velja um föt, háralit, málningu, skó,
aukahluti og hvað eina og gaman að
sjá hvernig stjörnurnar breytast
eftir því hvernig þær eru klæddar.
Eina sem þarf að gera á Paperdoll
Heaven er að skrá sig inn en hægt er
að velja um ókeypis aðgang sem
veitir aðgang að flestum dúkkulísun-
um eða VIP- aðgang sem veitir að-
gang að öllum dúkkulísunum.
Eini gallinn er að hægt er að týna
sér klukkustundum saman á vefsíð-
unni og því algjör tímaþjófur – en
mjög skemmtilegt.
Hægt er að
klæða Johnny
Depp upp –
eða bara horfa
á hann á nær-
buxunum.
Klæddu
stjörnuna
þína!
Á paperdollheaven.com er hægt
að dressa stjörnurnar upp í alls
kyns múnderingar.
Angelina Jolie er alltaf smart í tauinu og því leikur einn að dressa hana upp.
Harrison Ford
er gamall í
hettunni en
samt gaman
að klæða
karlinn upp.
Leikkonan
Halle Berry
er tískutákn
og gaman
að klæða
hana.