Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.07.2005, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 21.07.2005, Qupperneq 30
Skreytingar Það þarf oft ekki mikið til að lífga upp á heimilið. Prófaðu að kaupa þér skærlituð kerti, diskamottur eða fjóra nýja bolla. Það getur breytt heilmiklu enda breytingar oftast af því góða.[ ] Íslensk list allerie r g ó ð g j ö f Arinbúðin Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið) · Sími 567 2133 · www.arinn.is Ný sending af kristalsljósakrónum El ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Kringlunni - sími : 533 1322 Vandaðar heimilis- og gjafavörur Sumarlegir dúkar Verð frá 990 Friðsæll Búdda situr í garð- inum og róar heimilisfólkið Margrét með líkneskið góða sem hún keypti í búð í Reykjavík en ekki hjá munkum í Tíbet. Margrét Alice Birgisdóttir nuddari á skemmilegt búdda- líkneski sem er í miklu uppá- haldi hjá henni. Þegar blaðamaður hringir í Mar- gréti og segist hafa frétt að hún væri með risastórt búdda- líkneski í stofunni fer Margrét að hlæja. „Hann er nú ekkert svo stór. Ætli hann sé ekki svona 50- 60 sentimetrar sitjandi. Hann situr á skenknum í stofunni og er ósköp friðsæll. Ég held hann virki róandi á allt heimilisfólkið. Það haggar honum ekkert og það er ágætt að hafa einn svona kyrrlátan einstakling í kringum sig þegar það er erilsamt á heim- ilinu,“ segir Margrét og hlær. Uppruni búddalíkneskisins er dálítið óljós. „Staðurinn var ekki merkilegri en svo að ég man ekkert hvar ég keypti hann,“ segir Margrét. „Þetta var í ein- hverri búð uppi á Höfða að mig minnir. Ég ætlaði ekki að kaupa neitt en þegar ég sá hann þá kol- féll ég fyrir honum. Auðvitað vildi ég óska þess að ég hefði keypt hann á ferðalagi um Tíbet eða eitthvað slíkt en það er bara ekki þannig.“ Þótt líkneskið sé ekki notað til tilbeiðsluathafna segist Margrét hafa stúderað búddisma dálítið. Bæði sér til skemmtunar og eins í gegnum vinnu sína við nuddið. „Þetta er ákaflega heillandi hug- myndafræði og margt í henni sem við getum lært af. Í búdd- ismanum ber maður til dæmis sjálfur ábyrgð á því hvernig maður hefur það í stað þess að skella skuldinni á einhverja aðra,“ segir Margrét. thorgunnur@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Þetta skemmtilega fuglahús í garðinn er hannað og handunnið af bandaríska lista- manninum J. Schatz. Fuglahúsin eru til í tíu litum, en auk fuglahús- anna hannar Schatz lampa og vasa. Schatz er með vinnustofu í Greene í New York-fylki, en fyrir þá sem vilja kynna sér verk hans frekar er slóðin www.jschatz.com. Fuglahús Hreinsiburstar eru ekki til í hvaða stærð og gerð sem er. Þegar burstinn þinn nær ekki þangað sem þú vilt ná eru oft góð ráð dýr. Oft þarf þó ekki að leita langt því til eru á heimilum alls konar burst- ar sem virka vel sem hreinsiburst- ar. Það er um að gera að endurnýta bursta sem áður gegndu öðru hlut- verki til að ná blettunum sem þú hélst þú næðir aldrei. Uppþvottaburstar eru góðir til að ná hnitmiðaðri sveiflu á af- markaða staði. Langa skaftið gerir þá einnig heppilega til að skrúbba bletti sem eru á milli tveggja hluta. Naglaburstar eru tilvaldir til að ná góðu átaki utan í hringlaga hlut- um, til dæmis þegar á að skrúbba gulu röndina sem er í kringum kranann í vaskinum. Einnig eru þeir heppileg tæki til að einbeita sér að erfiðum blettum á flötu yfir- borði, til dæmis borðum og gólf- um. Tannburstar ná lengra en putt- arnir sjálfir og virka eins og nagla- burstarnir að mörgu leyti. Þeir eru líka góðir á horn og annað því mjúkt plastið getur komið að góð- um notum til að fjarlægja erfiða skítaskán. Burstar fá nýtt hlutverk Góðir hreinsiburstar eru ekki á hverju strái.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.