Fréttablaðið - 21.07.2005, Page 32
Notaðir hlutir kitla
ímyndunaraflið
21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Þegar farið
er inn á
vefsíðuna
estherx.nl er
hægt að finna
ýmislegt sniðugt
eftir hina holl-
ensku Esther Derkx.
Þar á meðal leirtau
með karlmönnum og konum á sem er afar sér-
stakt. Fréttablaðið sló á þráðinn til Hollands
og kynntist Esther aðeins betur.
„Ég lærði hönnun í listaskóla í Utrecht í Hollandi á
árunum 1989 til 1991. Ég byrjaði að vinna sem vöru-
hönnuður árið 1999 þegar ég var enn að vinna í litlu
prentunarfyrirtæki. Þar gat ég gert ýmsar tilraunir
með prentun og fékk hugmyndina að því að prenta
myndir á leirtau sem fólk hendir. Þessi hugmynd
mín vakti mikla athygli í galleríum og hönnunarbúð-
um þannig að ég hætti í prentunarfyrirtækinu og
stofnaði mitt eigið hönnunarfyrirtæki árið 2000,“
segir Esther en leirtauið sem heillaði blaðamenn
Fréttablaðsins heitir Improved!
„Ég safna leirtaui á flóamörkuðum og í „second
hand“-búðum. Ég gef leirtauinu nýtt líf með gamal-
dags myndum af lifandi manneskjum sem ég prenta
á bolla, diska og annað leirtau. Ég reyni að blanda
manneskjum og skreytingunum á leirtauinu saman
þannig að það virki vel hvert fyrir annað. Ég nota
bara myndir af dönsurum og íþróttamönnum því
hreyfing þeirra er svo flæðandi og fullkomnar út-
línur leirtausins.“
Esther lætur sér ekki nægja að hanna leirtau
enda afar hugmyndarík. „Ég hanna líka aðrar vörur
eins og töskur, hreinlætisvörur með áprentun,
gluggatjöld og einnig listaverk sem hægt er að sjá á
heimasíðunni minni. Ég er með fimm verslanir í
Hollandi sem selja vörurnar mínar, og víða annars
staðar eins og í Bretlandi, Brussel, London, París,
Tókýó, Chicago, Oaklandi, tvær í New York og
kannski eina á Íslandi bráðum,“ segir Esther og hlær
og bætir við að verslarnir hafi samband við sig
reglulega og vilji selja hönnun hennar.
En hvernig er framtíðin hjá Esther? „Ég held auð-
vitað áfram að hanna því ég verð aldrei uppiskroppa
með hugmyndir. Hlutir sem fólk vill ekki eiga og
hendir fanga sífellt athygli mína og kitla ímyndar-
aflið. Ég hef líka þörf fyrir að breyta þeim í vörur
sem fólk vill kaupa og dáist að.“
Hægt er að hafa samband við Esther á netfanginu
derkx@planet.nl.
lilja@frettabladid.is
Allt til alls í kaffiboðið.
M
YN
D
IR
E
ST
H
ER
D
ER
K
X
Ungur herramaður teygir sig í blóma-
skreytingar á disknum.
Engir tveir bollar eru eins hjá Esther og fallegt að sjá
lifandi líkamana leika um bollana.