Fréttablaðið - 21.07.2005, Side 44

Fréttablaðið - 21.07.2005, Side 44
Landsbankadeildarlið ÍBV í karla-flokki hefur fengið liðsstyrk því danskur knattspyrnumaður, Rune Lind að nafni, mun leika með liðinu út þessa leiktíð. Lind var lengi meðal efnilegustu knattspyrnumanna Dana og á 24 landsleiki með U-17 og U-18 ára landsliðum að baki og fjögur mörk. Eyjamenn hafa ekki breiðan leikmannahóp og því ætti koma Lind að bæta þau mál að einhverju leyti. Sóknarmaðurinn Albert BrynjarIngason úr Fylki verður líklegast lánaður frá félaginu út þessa leiktíð. Albert er ekki ánægður með hve fá tækifæri hann hefur fengið með meistaraflokki fé- lagsins en hann er 19 ára og er sonur Inga Björns Alberts- sonar. Hann hefur leikið bæði fyrir U17 og U19 ára landslið- ið og hefur komið við sögu í fjórum af tíu leikjum Fylkis í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði hann sigurmark gegn Þrótti í fyrri umferðinni. Kvennalið HK í handboltanum hef-ur samið við Tatjönu Zamoreva frá Lettlandi en hún er örvhent og lék með liði ÍBV á síðustu leiktíð. Handknattleiksdeild HK teflir fram meistaraflokksliði í kvennaflokki í fyrsta sinn og ákvað að styrkja liðið með tveimur erlendum leikmönnum, en einnig er búið að gera samning við litháenska leikmanninn Auksé Vysniauskaité. Sóknarmaðurinn Peter Crouch skrif-aði í gær undir fjögurra ára samn- ing við Liverpool eftir að hafa gengist undir læknisskoðun. Þessi 24 ára leik- maður kostar Liverpool sjö milljónir punda frá Southampton. Hann er gjörsamlega í skýjunum yfir að vera kominn á Anfield og segir það mikinn heiður að Rafael Benitez, kanttspyrnu- stjóri liðsins, skuli hafa viljað fá sig. „Ég get ekki beðið eftir því að klæðast rauðu treyjunni og leika fyrir framan The Kop.“ sagði Crouch. Arsenal er óskalið knattspyrnu-mannsins Guti sem nú er í her- búðum Real Madrid en þetta segja spænskir fjölmiðlar.Talað er um að Guti sé á förum frá spænska risaliðinu og hafa mörg ensk lið sýnt honum áhuga, þar á meðal Everton og Tottenham auk Arsenal. Zoran Vekic, umboðsmaður Guti, segir að leikstíll Arsenal henti leikmanninum vel og segir að félagið sé fyrsti valkostur hans. FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen segir að Chelsea ætli sér að verja Englandsmeistaratitilinn sem liðið vann á síðustu leiktíð en gerir sér fyllilega grein fyrir því að til að það takist megi liðið hugsanlega ekki tapa einum einasta leik. „Við töpuðum einum leik í fyrra en Arsenal tapaði engum leik tíma- bilið þar á undan. Þetta sýnir ein- faldlega að gæðin í deildinni eru orðin meiri og að leiktíðin þarf nán- ast að vera hnökralaus til að eiga möguleika á titlinum,“ sagði Eiður Smári í samtali við breska fjöl- miðla í gær. Hann segir markmið komandi leiktíðar einfalt – að ná betri árangri í ár en á síðasta tíma- bili. „Háleitt markmið er það sem drífur okkur áfram,“ segir hann. „En það verður erfitt. Newcastle eru búnir að styrkja sig, rétt eins og Liverpool, og ég tel að þau ásamt okkur, Arsenal og Man. Utd verði liðin sem berjist á toppnum. En við ætlum að endurtaka leikinn frá því í vetur. Um leið og við finn- um toppsætið ætlum við að halda okkur þar. Við reynum að ríghalda í toppsætið.“ Eiður Smári lýsti einnig yfir ánægju sinni með komu Hernan Crespo til Chelsea og kveðst hann ætla að gera allt sem í sínu valdi stendur til að hjálpa honum að finna sitt rétta form. „Við leikmennirnir styðjum hann allir. Hann átti mjög erfitt hér fyrsta árið sitt þar sem allt var svo nýtt fyrir honum, menn- ing, tungumál og loftslag. En nú er hann búinn að ná meiri stöðugleika í einkalífi sínu og það á ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að hann slái í gegn í vetur,“ segir Eiður, sem efast ekki um hæfileika argentínska sóknarmannins sem átti svo frá- bært tímabil með AC Milan á Ítalíu í fyrra, sem lánsmaður frá Chelsea. „Crespo er frábær leikmaður og vonandi getum við hjálpað honum að framkalla öll sín töfrabrögð. Enginn sem að félaginu kemur hef- ur efast um getu Crespo en þetta er aðeins spurning um hvort hann geti einbeitt sér að boltanum. Vonandi verður hann laus við meiðsli og skorar nokkur mörk í upphafi. Þá fær hann sjálfstraustið sem gerir hann að gríðarlegri ógn,“ segir Eið- ur. - vig 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR ÚR SPORTINU 28 Ei›ur Smári Gu›johnsen segir ekkert anna› koma til greina hjá Chelsea en a› vinna ensku úrvalsdeildina anna› ári› í rö›. Eiður segir Chelsea ætla að verja meistaratitilinn Í SÓLINA Jón Arnór er á leið til Ítalíu að leika með liði Pompea Napoli. Jón Arnór Stefánsson: KÖRFUBOLTI Landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson, sem lék með liði Pétursborgar á síðustu leiktíð, hefur gert samning um að spila með ítalska liðinu Pompea Napoli á næstu leiktíð. Napoli hafnaði í 7.-8. sæti í ítölsku A seríunni í fyrra og hefur farið vaxandi síðustu ár. Liðið verður fimmta liðið sem Jón leik- ur með á síðustu fimm árum, en þar hittir hann fyrir nokkra sterka leikmenn sem spilað hafa í NBA-deildinni. Ítalska deildin er ein sterkasta körfuboltadeildin í heiminum og ljóst að Jóns bíður krefjandi verkefni á næsta tíma- bili. Auk þess að hafa orðið Evr- ópumeistari með liði Dynamo Pet- ersburg á síðustu leiktíð, var hann einnig valinn í evrópska störnu- leikinn sem fram fór á Kýpur. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náði Fréttablaðið ekki tali af Jóni Arnóri, sem er önnum kafinn við að halda sér í formi í sumarfríinu heima á Íslandi. - bb Manchester United: FÓTBOLTI Wayne Rooney, leikmaður enska landsliðsins og Manchester United, sendi í gær frá sér yfir- lýsingu þar sem hann neitar sögu- sögnum um að hann og Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hafi deilt harkalega eftir æfingarleik gegn Peterborough. Rooney fór með bílaleigubíl til Manchester, ásamt Cristiano Ron- aldo og Rio Ferdinand, en aðrir leikmenn fóru með rútu. Leik- mennirnir voru ósáttir með að þurfa að keyra langa vegalengd, frá bænum Clyde til Manchester, en það eru rúmir sex hundruð kílómetrar. Rooney sagðist í yfr- lýsingunni hafa fengið leyfi til þess að fara með bílaleigubíl og að ekkert illt væri á milli sín og Ferguson. „Rooney og Ferguson geta vel starfað saman. Rooney er mikill atvinnumaður sem ber öll svona atriði undir Alex Fergu- son.“ - mh Mótsgjald 3000.- Skráning í síma 5667415 Rástímar frá 8:00 - 10:20. Glæsileg verðlaun fyrir 5 fyrstu sætin. Nándarverðlaun á 1/10 og 6/15 holu. Og lengsta teighögg á 8 holu. Mótið er punktakeppni með forgjöf hæst gefið 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Teiggjafir í boði SS. verður haldið laugardaginn 23. júlí hjá Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ. 1 sæti úttekt. 25.000.- 2 sæti úttekt. 20.000.- 3 sæti úttekt. 15.000.- 4 sæti úttekt. 10.000.- 5 sæti úttekt. 8.000.- FÓTBOLTI Brasilíski framherjinn Ronaldo ætlar að hætta að spila með brasilíska landsliðinu eftir HM í Þýskalandi sem fram fer á næsta ári. Ronaldo ætlar að klára samninginn sinn við Real Madrid og leggja síðan knattspyrnuskóna á hilluna vorið 2009. „Þetta verður fjórða heims- meistarakeppnin mín og ég tel mig þurfa að gefa yngri leikmönnum sín tækifæri,“ sagði hinn 28 ára gamli framherji sem varð heims- meistari með Brasilíu 1994 og 2002 og í öðru sæti í Frakklandi 1998. Ronaldo hefur skorað 56 mörk fyr- ir Brasiíu einu meira en Romario en hann á enn eftir að skora 19 mörk til þess að jafna Pele og nær því örugglega ekki spili hann að- eins í eitt ár til viðbótar. „Ég á 4 ár eftir af samningi mínum við Real Madrid og eftir að hann rennur út þá legg ég skóna á hilluna,“ sagði Ronaldo sem þá verður aðeins 32 ára gamall sem þykir ekki mikið í dag. Ronaldo hefur skorað 12 mörk í úrslitakeppni HM, fjögur mörk 1998 og átta mörk 2002 í Japan og Kóreu en þá varð hann marka- hæsti leikmaður keppninnar. Ron- aldo er jafn landa sínum Pele á list- anum yfir þá sem hafa skorað flest mörk í lokakeppninni og vantar þrjú mörk til viðbótar til þess að slá met Þjóðverjans Gerd Muller sem skoraði 14 mörk á árunum 1970 til 1974. - ooj FRAMHERJAPARIÐ Á NÆSTU LEIKTÍÐ? Eiður Smári segir að Hernan Crespo hafi alla burði til að verða ein skærasta stjarnan í enska bolt- anum á næstu leiktíð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES Ronaldo á tímamótum í Þýskalandi næsta sumar: Hættir me› Brasilíu eftir HM í fi‡skalandi 2006 HETJAN ÁRIÐ 2002 Ronaldo skoraði bæði mörk Brasilíu í úrslitaleik HM 2002 og alls átta mörk í keppninni. Hér skorar hann í leiknum fram hjá þýska markverðin- um Oliver Kahn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES Rooney og Ferguson deila Samdi vi› Napoli á Ítalíu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.