Fréttablaðið - 21.07.2005, Síða 48
Bókaforlagið Hljóð-bók.is hefur í sam-
vinnu við Ríkisútvarpið
gefið út Sveitasælu,
spennandi gamanleikrit
með nokkrum af okkar
helstu gamanleikurum.
Höfundur er Kristlaug
Sigurðardóttir og leik-
stjóri Randver Þorláksson.
Diddi og Gússí, sem eru lunkin
við að hafa peninga út úr félagslega
kerfinu, verða fyrir hálfgerðu áfalli
þegar þeim berst tilkynning um að
þau fái engar greiðslur næstu 16
vikurnar. Til allrar hamingju kemur í
ljós að Gússí er erfingi að bújörð
vestur í Tálknafirði og flytja þau
hjón þangað, ásamt dóttur sinni og
rússneskum vini, Nikka. Þeim dettur
í hug að opna bændagistingu á
staðnum og þá hefst fjörið fyrir al-
vöru!
Bókaforlagið Hljóð-bók.is hefur gefið út
Emil í Kattholti, Lottu og
Línu langsokk eftir Astrid
Lindgren.
Í þessari 132 mínútna
löngu hljóðbók les Vil-
borg Dagbjartsdóttir
fyrstu bókina um Emil í Kattholti. Þá
les Jón Ingi Hákonarson leikari sög-
urnar Víst kann Lotta að hjóla og
Þekkir þú Línu langsokk?
Á vefsíðunni www.hljodbok.is er
hægt að skoða bókina og hlusta á
hljóðsýnishorn.
Bókaforlagið Hljóðbók.is hefur ísamvinnu við
Ríkisútvapið gefið
út Líkræðuna,
spennandi leikrit
eftir Þorstein Mar-
elsson í leikstjórn
Hallmars Sigurðs-
sonar.
Séra Einar er nýr
prestur í litlu
prestakalli úti á
landi þar sem kona hans ólst upp.
Kvöld nokkurt hringir síminn og
hann er beðinn um að koma til
bæjarins Norður-Heiði, Böðvar
bóndi sé látinn. Konu hans finnst
þetta undarlegt. Hún man ekki bet-
ur en að Böðvar hafi dáið fyrir
mörgum árum.
32 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
...tónleik-
um banda-
ríska stúlkna-
kórsins
Pennsyl-
vania Gir-
lchoir í Hall-
grímskirkju
klukkan
12.00 í dag.
...tilfinningatorgi á Kaffi
Hljómalind klukkan 15 á morg-
un. Öllum er frjálst að tjá tilfinn-
ingar sínar, stuttar eða lengi, í
gríni eða alvöru.
...þriðju helgi Sumartónleika í
Skálholti á laugardaginn og á
sunnudaginn.
Í Ketilhúsinu á Akureyri klukkan 21:30 í kvöld
leikur píanistinn Sunna Gunnlaugs ásamt
bandaríska trommaranum Scott McLemore og
norska bassaleikaranum Eivind Opsvik en þau
eru meðlimir í kvartett Sunnu Gunnlaugs sem
hefur gert út frá New York og farið í tónleika-
ferðir um Evrópu, Kanada og Japan undanfar-
in ár.
Sunna Gunnlaugsdóttir hefur um árabil verið í
röð okkar fremstu djasspíanóleikara. Henni
hafa hlotnast margs konar viðurkenningar og
hún vakið athygli með leik sínum bæði austan
hafs og vestan. Hún bjó um árabil í New York,
en er nú flutt heim.
Á efnisskránni er nýtt efni eftir meðlimi tríós-
ins í bland við eitthvað eldra en það stendur
til að hljóðrita nýja tríó plötu í vikunni á eftir.
Tónlist Sunnu hefur verið sögð „heillandi
blanda af fáguðum Evrópujassi með brenn-
andi bandarískum rythma.“
Tríóið leikur einnig í Gamla bænum við Hótel
Reynihlíð í Mývatnssveit á föstudagskvöldið og
á Jómfrúnni í Reykjavík klukkan 16.00 á laug-
ardaginn.
Í Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar standa yfir sýningar í tengsl-
um við Listahátíðina í Reykjavík.
Það eru listamennirnir Wilhelm Sasnal,
Bojan Sarcevic, On Kawara og Elke
Krystufek sem sýna verk sín í Hafnarborg.
Jessica Morgan, sýningarstjóri á sviði sam-
tímalista við Tate Modern safnið í London
er sýningarstjóri hátíðarinnar.
menning@frettabladid.is
Tríó Sunnu Gunnlaugs
!
NÝJAR HLJÓÐBÆKUR
SUNNA GUNNLAUGS Tríó Sunnu Gunnlaugs leikur í
Ketilhúsinu á Akureyri í kvöld og á Jómfrúnni í Reykja-
vík á laugardaginn.
MAMMÚTHljómsveitin Mammút spilar á
Bar 11 í kvöld ásamt rokksveitinni Pan.
Hljómsveitin Leaves, sem hefur
verið á tónleikaferð um Bretland,
heldur tónleika á skemmtistaðn-
um Nasa á föstudag. Þar verða
spiluð lög af nýjustu plötu sveitar-
innar, The Angela Test, sem kem-
ur út 15. ágúst á vegum Is-
land/Universal Records.
Nú þegar hafa lögin Shakma og
The Spell verið í spilun, en næsta
smáskífulag Good Enough fer í
spilun í næstu viku. Tónleikarnir
á Nasa byrja klukkan 22.00 og er
miðaverð 500 krónur. Forsala er
hafin í Smekkleysu og í Skífunni á
Laugavegi. ■
Hljómsveitirnar Pan og Mammút
spila á Bar 11 í kvöld. Tónleikarn-
ir eru hluti af Grapevine Bad
Taste tónleikaröðinni. Pan gaf ný-
verið út plötuna Virgins og þykir
afar efnileg rokksveit. Mammút
vakti mikla athygli þegar hún
vann Músíktilraunir, þar sem
blanda hennar af listapoppi og
hefðbundnara rokki þótti takast
vel. Sveitin er að taka upp plötu
sem kemur út fyrir jólin.
Annað kvöld spilar hljómsveit-
in Ske í Gallerí humar og frægð
og á laugardag spila Úlpa og
Lights on the Highway í Sirkus-
garðinum. Þessir tónleikar eru
einnig hluti af Grapevine Bad
Taste tónleikaröðinni. ■
Pan og Mammút
troða upp
„Það er svo gaman með okkur Ís-
lendinga að þegar við komum til
Kaupmannahafnar þá líður okkur
oft eins og við séum komin heim
jafnvel þó að fólk sé að koma þang-
að í fyrsta skipti. Það er einhver
ósýnileg taug sem tengir okkur við
Kaupmannahöfn. Þetta er auðvitað
makalaus borg fyrir okkur Íslend-
inga því þarna gerðist saga okkar í
400 ár, á pínulitlu svæði sem var
ekki stærra að flatarmáli en Viðey
og Íslendingar tengjast því hverju
götuhorni og næstum hverju húsi á
einhvern hátt ,“ segir Guðlaugur
Arason rithöfundur sem var að gefa
út bókina Gamla góða Kaupmanna-
höfn sem fjallar um sögu Íslendinga
í Kaupmannahöfn auk þess sem
hann tvinnar inn í frásögnina sögu
borgarinnar.
G u ð l a u g u r
fluttist til Kaup-
mannahafnar fyrir
fimmtán árum og
hefur bókin verið í
vinnslu síðan þá.
Síðustu fimm árin
hefur Guðlaugur
boðið upp á
gönguferðir um
borgina auk þess
sem hann hefur
helgað sig skrif-
um bókarinnar
sem hann segir hafa falið í sér
mikla yfirlegu og grúsk. „Yfirleitt
þegar ég skrifa eitthvað þá skrifa
ég til að skemmta sjálfum mér en
svo verður bara að ráðast hvort öðr-
um líkar við það eða ekki.“
Í gönguferðunum gengur Guð-
laugur um borgina og fræðir fólk
um Kaupmannahöfn og þá Íslend-
inga sem þar hafa búið. Gönguferð-
irnar eru á sunnudögum, þriðjudög-
um og miðvikudögum og hefjast við
Ráðhúströppurnar, á Ráðhústorginu
klukkan 13.00.
„Fyrst og fremst fjalla ég um
sögu Íslendinga í Kaupmannahöfn,
til dæmis þá Baldvin Einarsson,
Fjölnismenn, Bendikt Gröndal og
Jón Sigurðsson. Við heimsækjum
staði sem Íslendingar hafa búið á í
kringum háskólahverfið og svo
enda ég í Jónshúsi eða
Kóngsins nýja Torgi en það
fer allt eftir því hvernig
veðrið og stemmningin er.
Svo blanda ég inn í þetta sögu Kaup-
mannahafnar og alls kyns fróðleik,“
segir Guðlaugur og bætir því við og
sér finnist að gert hafi verið of lítið
úr hlut Baldvins Einarssonar í sjálf-
stæðisbaráttu Íslendinga.
Bókin er byggð upp eins og upp-
flettirit, er í stafrófsröð eftir þeim
180 götum sem þar eru teknar fyrir.
Svo fylgir umfjöllun um hverja
götu fyrir sig á eftir hverju heiti
auk ítarlegri umfjallana um einstök
atriði eða menn í römmum þar til
hliðar.
„ Það hefur fest dálítið mikið við
íslenska stúdenta í Kaupmanna-
höfn að þeir hafi verið svo drykk-
felldir en þeir skáru sig ekki út frá
öðrum sem þar voru, þetta er ein-
hver goðsögn sem Íslendingum
þykir voða gaman að hafa eftir, en
ég reyni ekki að halda þessari goð-
sögn við í bókinni,“ segir Guðlaug-
ur en segir að ekki sé mikið um
drykkjusögur í bókinni, því Íslend-
ingar kunni þær allar utanbókar og
líklega séu þær nú tilbúningur
hvort sem er.
„Við vitum svo lítið um sögu
Kaupmannahafnar, þessarar gömlu
höfuðborgar okkar. Við vitum að
þarna hafi menn verið við nám og
eitthvað slíkt en lítið meira en það
og ég reyni að bæta úr því í þessari
bók,“ segir Guðlaugur. ■
Gamla góða Kaupmannahöfn
Guðlaugur Arason rithöfundur hefur síðastliðin fimm ár boðið upp á gönguferðir
um Kaupmannahöfn þar sem hann fræðir fólk um sögu borgarinnar og þá Íslend-
inga sem þar hafa búið. Nú hefur hann gefið út veglega bók um efnið.
GAMLA GÓÐA KAUPMANNA-
HÖFN Bók Guðlaugs er 328 síður
og prýdd fjölda mynda. Atriðis-
orða-og heimildaskrá er aftast .
Aftast er einnig yfirlit yfir bústaði
nokkurra Íslendinga í Kaupmanna-
höfn, yfirlit yfir konunga Danmerk-
ur og listi með gagnlegum heimil-
isföngum í Kaupmannahöfn. Bókin
er því allt í senn ferðahandbók,
skemmtirit og sagnfræðirit.
GUÐLAUGUR ARASON Rithöfundurinn var að senda frá sér bók-
ina Gamla góða Kaupmannahöfn sem fjallar um sögu Íslendinga í
Kaupmannahöfn en Guðlaugur hefur síðastliðin fimm ár boðið Ís-
lendingum upp á gönguferðir um borgina undir leiðsögn sinni.
Leaves á Nasa