Fréttablaðið - 21.07.2005, Side 56
40 21. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Trúlofun breska hjartaknúsarans
Jude Law og tískugyðjunnar
Siennu Miller hangir nú á blá-
þræði eftir að hann játaði að hafa
átt í ástarsambandi við barnfóstru
barna sinna Daisy Wright. Jude
gaf út yfirlýsingu þar sem hann
viðurkenndi opinberlega að sam-
bandið við fóstruna hefði átt sér
stað í byrjun árs á meðan hann lék
í kvikmyndinni All The King’s
Men.
Daisy sagði frá sambandinu í
ítarlegu viðtali á sunnudag í
breska blaðinu Sunday Mirror.
Þar greindi hún frá því að það
hefði hafist í mars þegar hún var
fengin til að gæta eins af þremur
börnum sem Jude á með fyrrver-
andi eiginkonu sinni, Sadie Frost.
Barnið, sem ekki hefur verið
nafngreint, gekk inn á föður sinn í
rúminu með barnfóstrunni.
Barnið kemur að þeim
„Kynlífið var hreint út
sagt ótrúlegt því Jude er
frábær elskhugi og veit
hvernig á að fullnægja
konu. Við vorum saman í
rúminu eitt kvöld þegar
ég heyrði hurðina opnast
og skyndilega var barnið
komið inn í herbergið.
Jude reis upp og þá sagði
barnið: „Pabbi, ég er með
martröð.“ Jude sagði ekk-
ert að óttast og um leið og
barnið fór út, hófum við
samfarirnar aftur,“ sagði
barnfóstran.
Barnið sagði móður
sinni frá því sem það sá
og Sadie rak Daisy nánast sam-
stundis. Þar með lauk ástarsam-
bandinu.
Sienna óvinnufær
Jude og Sienna kynntust við tökur
á myndinni Alfie og hafa verið
saman í tvö ár. Vinir þeirra segja
þau vera að reyna að vinna sig í
gegnum þetta leiðinlega mál. Jos-
ephine Miller móðir Siennu segir
hana vera of reiða til að gráta.
Hún hefur einnig tekið niður trú-
lofunarhringinn sem Jude gaf
henni. „Sienna er bæði sár og
svikin. Okkur hefði aldrei
nokkurn tíman dottið í hug að
hann gæti gert slíkt. Ég vil ekkert
segja um það hvort þau haldi
áfram að vera saman,“ sagði Jos-
ephine.
Sienna hefur þurft að taka sér
frí frá vinnu vegna ástarsorgar en
hún leikur um þessar mundir eitt
aðalhlutverkið í leikritinu As You
Like It í West End leikhúshverf-
inu í London. „[Sienna] hefur átt
mjög erfitt þar sem einkalíf henn-
ar hefur verið í sviðsljósinu,“
sagði David Lan leikstjóri sýning-
arinnar þegar hann tilkynnti fjar-
veru hennar.
Ekki í fyrsta skipti
Aðeins mánuður er síðan
skilnaður Jude við Sadie
Frost gekk í gegn og ein
ástæða skilnaðarins var
meint framhjáhald Laws.
Jude og Sienna hafa þurft að
ganga í gegnum erfiða tíma
undanfarið vegna skilnaðar-
ins og þessar fréttir eru því
enn eitt reiðarslagið fyrir
sambandið. „Sienna treystir
sér ekki út úr húsi, nú þegar
allur heimurinn veit hvað
Jude gerði henni. Jude er al-
veg í rusli og það versta við
það er að hann getur aðeins
sjálfum sér um kennt,“ sagði
vinur leikarans.
soleyk@frettabladid.is
Jude heldur framhjá Siennu
JOSEPHINE MILLER, JUDE LAW OG SIENNA MILLER Hér er Jude með unnustu sinni og tengdamóður á meðan allt lék í lyndi.
PEARL LOWE OG SADIE FROST Sadie er fyrrverandi eiginkona
Jude en þau skildu að borði og sæng fyrir tveimur árum. Pearl
var ein besta vinkona Sadiear en það slettist heldur betur upp á
vinskapinn þegar Jude og Pearl áttu í stuttu ástarsambandi á
meðan bæði voru enn gift.
SIGUR RÓS Frá tónleikum Sigur Rósar í Fríkirkjunni. Sveitin er um þessar mundir á tón-
leikaferð um Evrópu til að kynna efni sinnar nýjustu plötu.
Sigur Rós er
gimsteinn Geffen
Nýverið var birt stór grein um
hljómsveitina Sigur Rós í banda-
ríska dagblaðinu L.A. Times í til-
efni af útkomu plötunnar Takk
þann 13. september.
Í greininni er rætt við Jordan
Schur, forseta Geffen-plötufyrir-
tækisins, sem gefur plötuna út í
Norður-Ameríku. „Við erum bara
ánægðir að hafa þá með okkur í
liði,“ segir Schur um Sigur Rós.
„Þeir eru eins og gimsteinn og við
viljum ekki gera neitt til að eyði-
leggja hann.“
Að sögn Schur ætlar Geffen að
leggja meiri áherslu á að kynna
nýju plötuna en áður, enda seldist
sú síðasta, (), í 250 þúsund eintök-
um í Bandaríkjunum. „Ég hef far-
ið nokkrum sinnum til Íslands og
drukkið með þeim alla nóttina,“
bætir hann við. Hann segir að
hann hafi, ásamt samstarfsmönn-
um sínum, átt fundi með Sigur
Rós og umboðsmönnum þeirra í
Los Angeles og New York þar sem
rætt hafi verið um það hvernig
kynningarherferð plötunnar ætti
að vera. „Umboðsmennirnir
sögðu mér að þetta væri í fyrsta
sinn sem þeir [Sigur Rós] hefðu
hist fyrir útgáfu á plötu til að
ræða hvað ætti að gera í fram-
haldinu. Þeir hafa aldrei staldrað
við og leitt hugann að því hvernig
eigi að markaðssetja plöturnar
sínar,“ segir hann og virðist mjög
undrandi.
Schur bindur miklar vonir við
Sigur Rós í framtíðinni og nefnir
sem dæmi um styrk hljómsveitar-
innar að hún spili á hinum fræga
tónleikastað Hollywood Bowl í
haust. Hann ætlar samt ekki að
hvetja sveitina til að semja vin-
sældavænni tónlist en áður. „Við
verðum að horfast í augu við það
að tónlistarbransinn er einn stór
leikur,“ segir hann. „Þú verður að
semja lag sem nær vinsældum,
búa til frábært myndband, fara í
tónleikaferð og skapa læti í kring-
um þetta allt. En ef þú ætlar að
vinna þá [meðlimi Sigur Rósar] á
þitt band skaltu ekki leika þennan
leik.“
Georg Holm, bassaleikari Sig-
ur Rósar, segir í sömu grein að
nýja platan sé jákvæðari en sú
síðasta. Gefur hann jafnframt í
skyn að þreytumerki hafi sést á
mörgum lögunum á síðustu plötu
því þau hafi verið spiluð mikið á
tónleikum áður en þau voru tekin
upp. „Í þetta sinn ákváðum við að
spila ekki nýju lögin á tónleikun-
um. Þannig myndum ekki hafa
hugmynd um hvert við ætluðum
með þau þegar við færum í hljóð-
ver og í framhaldinu gætum við
verið meira skapandi og skemmt
okkur betur.“
Georg segir litlar líkur á að
Sigur Rós fikri sig úr jaðrinum og
verði vinsældavænni, aðallega
vegna lengd laganna. „Reyndar er
eitt fjögurra mínútna lag á plöt-
unni sem er hugsanlega poppað-
asta lagið okkar til þessa,“ segir
hann. „Þannig að það er aldrei að
vita.“
freyr@frettabladid.is
Í YFIRLÝSINGU JUDE SEGIR
MEÐAL ANNARS:
„Í kjölfar umfjöllunar í blöðunum í
dag [sunnudag] vil ég segja að ég er
þjakaður af eftirsjá og skömm þar
sem ég hef sært Siennu og það fólk
sem stendur okkur næst. Ég vil opin-
berlega biðja Siennu afsökunar og
fjölskyldur okkar beggja fyrir allan
sársaukann sem ég hef valdið. Hegð-
un mín er óverjandi og ég óska þess
að fólk sýni okkur nærgætni á þess-
um erfiðu tímum“.
Rokkdúettinn Hot Damn! leikur á
átta tónleikum á fjórum dögum á
næstunni. Þeir félagar Smári „Tarf-
ur“ og Jens Ólafsson ætla að koma
við á Vestfjörðum og Norður-, Suð-
ur- og Vesturlandi á reisu sinni um
landið.
Sjálfir segjast þeir vera dreif-
býlisdurtar og líður þeim því vafa-
lítið eins og heima hjá sér á tónleik-
unum. Að sögn Smára verður spilað
tvisvar sinnum í hverjum bæ til að
sinna þeim krökkum sem komast
ekki inn á vínveitingastaðina. „Það
er mjög gaman að standa í þessu og
þetta hefur smollið sterkt saman
hjá okkur enda erum við með mjög
svipaðan áhuga á tónlist. Það er
þessi gamaldags stemning sem er
hæst metin hjá okkur,“ segir Smári.
„Það er líka gaman að vera bara
tveir því þá getum við leyft okkur
að detta í svo rosalegan fíling.“
Hot Damn! hélt nýverið útgáfu-
tónleika á Kvíabryggju vegna plöt-
unnar The Big’n Nasty Groove’O
Mutha. „Það var kærkomin tilbreyt-
ing að spila á stað þar sem allir
hlustuðu. Það voru allir 100% ein-
beittir að hlusta og spyrja út í lögin.
Við eigum alveg pottþétt eftir að
gera eitthvað svona aftur.“ Svo gæti
farið að tónleikarnir verði gefnir út
á vinyl en það kemur í ljós síðar.
Frítt verður inn á alla átta tón-
leikana og geta tónleikagestir jafn-
framt keypt nýju plötuna með góð-
um afslætti. ■
HOT DAMN! Rokkdúettinn Hot Damn!
ætlar að halda átta tónleika á næstu dög-
um.
Átta tónleikar á fjórum dögum
TÓNLEIKAFERÐ HOT DAMN!
Fimmtudagur 21. júlí kl.16.00: Afmælishátíð Götusmiðjunnar
Fimmtudagur 21. júlí kl.21.00: Unglist-hátíð á Hvammstanga
Föstudagur 22. júlí kl. 20.00: Félagsmiðstöðin X-ið í Stykkishólmi
Föstudagur 22. júlí kl. 22.00: Narfeyrarstofa í Stykkishólmi
Laugardagur 23.júlí kl. 17.00: Þorpið á Patreksfirði
Laugardagur 23. júlí kl.22.00: Þorpið á Patreksfirði
Sunnudagur 24. júlí 18.00: Félagsmiðstöðin í Ólafsvík
Sunnudagur 24. júlí 21.00: Hótel Ólafsvík