Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 2
2 10. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR SLYS Tæplega tvítugur íslenskur piltur slasaðist illa eftir að hann kastaðist úr leiktæki í tívolí í spænska bænum Torremolinos í fyrrakvöld. Pilturinn er nem- andi í Menntaskólanum við Sund og er í útskriftarferð ásamt um 150 samnemendum sínum. Unnusta hans og vinir voru með honum í tívolíinu og horfðu á eftir honum út úr tækinu. Leiktækið sem um ræðir mun vera þeytari, sem snýst á mikill ferð. Öryggisstöng sem átti að halda honum föstum brást með þeim afleiðingum að hann kastaðist úr tækinu og lenti illa. Hann meiddist töluvert á baki og höfði og var fluttur af vett- vangi með sjúkrabíl. Hann reyndist þó óbrotinn en ekki hafði verið útilokað seint í gær- kvöld hvort um innvortis meiðsl væri að ræða. Pilturinn fór að eigin ósk af sjúkrahúsinu í gær en hélt kyrru fyrir á hóteli Íslending- anna í staðinn. Móðir piltsins fór utan nú í morgun vegna slyssins. - grs Hjálmar vill hækka fjármagnstekjuskatt fiingflokksforma›ur Framsóknarflokks segir vel koma til greina a› hækka fjármagnstekjuskatt. Vinna vi› skattkerfisbreytingar er hafin innan flingflokk- anna sem koma fljótlega saman til a› ræ›a fjárlagager›. GAZA, AP Mahmoud Abbas, for- seti Palestínsku heimastjórnar- innar, lofaði í gær að þingkosn- ingar færu fram í janúar. Hann hvatti Palestínumenn til að halda ró sinni þegar brottflutn- ingur ísraelskra landnema frá Gaza-ströndinni hefst í næstu viku. Róstusamt hefur verið á Gaza að undanförnu vegna brottflutn- ingsins, bæði í röðum Ísraela og Palestínumanna, og er búist við að ólgan stigmagnist á næstu dögum. Í ræðu á þinginu í gær hvatti Abbas landa sína til þess að sýna stillingu þegar flutning- arnir hæfust og beindi orðum sínum sérstaklega til herskárra uppreisnarmanna sem hafa skotið eldflaugum að landnema- byggðunum, þrátt fyrir vopna- hléssamninginn. Í ræðu sinni lofaði Abbas að boða til þingkosninga í janúar næstkomandi, án þess að tiltaka sérstaka dagsetningu í þeim efnum. Kosningarnar áttu raun- ar að vera haldnar 17. júlí síð- astliðinn en Abbas ákvað að fresta þeim að eigin sögn vegna brottflutningsins frá Gaza. And- stæðingar hans telja aftur á móti að frestunin hafi helgast af slæmri stöðu Fatah-hreyfingar forsetans vegna spillingarmála. Hamas-hreyfingin hefur þegar sagst ætla að taka þátt í janúar- kosningunum. ■ SPURNING DAGSINS Sigur›ur, eru Íslendingar best- ir í heimi? „Það er ekki nokkur einasta spurning.“ Sigurður Sæmundsson er einvaldur íslenska hestalandsliðsins sem vann til sjö gullverðlauna á HM í Svíþjóð. 2 fyrir 1 til Barcelona 12. eða 19. ágúst frá kr. 19.990 Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til þessar mest spennandi borgar Spánar á ótrúlegum kjörum. Nú er fegursti tími ársins og frábært tækifæri til að skreppa til Barcelona og njóta þess besta sem Spánn hefur að bjóða. Síðustu sætin 19.990 Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð, út 12. eða 19. ágúst og heim 24. ágúst. Netverð á mann. Mahmoud Abbas boðaði loks til kosninga: fiingkosningar haldnar í janúar Tæplega tvítugur drengur slasaðist alvarlega í útskriftarferð á Spáni: Kasta›ist úr tívolítæki SKATTAR „Mér finnst vel koma til greina að hækka skatta á fjár- magnstekjur um nokkur pró- sentustig en það þarf að fara gætilega með hversu mikið skatt- urinn verður hækkaður því hækkanir mega ekki ýta undir að fjármagn fari úr landi, „ segir Hjálmar Árnason, þingflokksfor- maður Framsóknarflokksins. Fyrirhugaðar breytingar á skattkerfinu hafa nú verið rædd- ar meðal stjórnarflokkanna og má búast við því að tillögur þess efnis verði ræddar í þingflokkun- um þegar þeir koma saman á næstu vikum til að ræða fjárlaga- gerð. Nokkuð skiptar skoðanir eru innan þingflokka stjórnar- flokkanna um hvaða áherslur eigi að draga hvað skattalækkanir varðar en viðmælendur Frétta- blaðsins innan þingflokkanna telja að mest sátt náist um lækk- un virðisaukaskatts á matvæli. Hjálmar segir að búast megi við töluverðum tíðindum hvað skatta- mál varðar á næstunni: „Ég tel að það sé í raun allt saman undir, hvort sem er lækk- un á tekjuskatti eða lækkun á þeim hluta virðisaukaskatts sem leggst á mat- væli. Það þarf að meta þessa hluti í tengslum við aðra þætti og ekki síst vel- ferðarkerfið. Við heyrum stöðugar kröf- ur um aukin út- gjöld til hins og þessa, til dæm- is skólamála, heilsugæslunnar og svo framvegis. Það þarf að finna jafnvægi á milli þessara hluta,“ segir Hjálmar. Hann segist vera sammála Einari K. Guðfinnssyni, þing- flokksformanni sjálfstæðis- manna, um afnám vaxtabótakerf- isins. „Ég tek undir hans orð að það megi taka kerfið til endur- skoðunar. Stíga þarf varlega til jarðar. Margir hafa fjárfest í íbúðum og í sínum áætlunum hef- ur fólk gert ráð fyrir vaxtabótum og við megum aldrei koma í bakið á því fólki,“ segir Hjálmar. - hb FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ KYNNT Geir H. Haarde fjármálaráðherra kynnir fjárlagafrumvarp yfirstandandi fjárlagaárs. Búist er við því að lengra verði gengið í átt til skattalækkana á næsta fjárlagaári en gert hefur verið á þessu ári. VÍN, AP Stjórn Alþjóðakjarnorku- málastofnunarinnar IAEA hittist í höfuðstöðvum sínum í Vín í gær og ræddi til hvaða ráða skyldi gripið vegna vinnslu Írana á kjarnorku- eldsneyti. Íranar hófu á mánudag að vinna gas úr hráúrani en það er fyrsta skrefið í auðgun þess. Írönsk stjórn- völd hafa lýst því yfir að þau hygg- ist ekki leiða gasið um skilvindur sem er næsta skrefið í augðunar- ferlinu. Í gær staðhæfði hins vegar íranskur útlagi Alireza Jafarzadeh í samtali við AP-fréttastofuna að 4.000 skilvindur hefðu þegar verið framleiddar. Slíkur tækjakostur gerir Írönun kleift að framleiða úran í kjarnorkusprengjur. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P HVERGI BANGINN Ali Shamkani, varnar- málaráðherra Írans, sagðist frekar vilja sæta viðskiptaþvingunum en láta af úran- vinnslunni. Kjarnorkudeila: Halda úran- vinnslu áfram Ólafsfjarðarbær: Hitaveitan til sölu SVEITARSTJÓRNARMÁL Bæjarráð Ólafs- fjarðarbæjar hefur mælt með því við bæjarstjórn að teknar verði upp viðræður við Norðurorku, orkufyr- irtæki Akureyrarbæjar, um sölu á hitaveitu staðarins. Að sögn Stefaníu Traustadóttir bæjarstjóra hefur endanleg ákvörð- un ekki verið tekin en viðræður hafi verið í gangi. Hún segir verð hafa verið rætt og skipti hvort tveggja máli: að verð sé talið ásættanlegt og að kaupandinn sé úr byggðarlaginu. - grs BROTTFLUTNINGNUM FAGNAÐ Þessi palestínska kona tók forskot á sæl- una í gær og fagnaði yfirvofandi brottflutn- ingi Ísraela frá Gaza ásamt fleira fólki. M YN D /A P HJÁLMAR ÁRNASON Þingflokksformaður Framsóknarflokksins. LÖGREGLUFRÉTTIR VÉLAGEYMSLA BRANN Vélageymsla brann á Hólum í Dýrafirði seinnipartinn í gær. Slökkviliðið á Þingeyri var kallað til og gengu slökkvistörf vel. Þrjár dráttarvélar og einhver heyvinnutæki skemmdust. TÍU TEKNIR FYRIR OF HRAÐAN AKSTUR Lögreglan á Selfossi hefur sinnt umferðareftirliti af kappi undan- farið og tók tíu bíla fyrir of hrað- an akstur í gær. Mesti hraðinn var 123 kílómetrar á klukku- stund. GUNNLAUGUR JÚLÍUSSON Einstaklingar hafa stofnað einkahlutafélög og því minnkar útsvar. Sveitarfélög: Merkja ekki tekjuaukningu SVEITARSTJÓRNAMÁL „Það liggur ekki fyrir hvort útsvarstekjur hækki eitthvað en við erum núna að ljúka við uppgjör á árinu 2004,“ segir Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri hjá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga. Skatttekjur ríkissjóðs hafa aukist umfram fjárlög vegna hærri tekna launþega á síðasta ári og segir Gunnlaugur að sveitarfé- lögin finni ekki beint fyrir tekju- aukningu en það eigi þó eftir að skýrast betur á síðari stigum. „Við höfum hins vegar heyrt að í smærri sveitarfélögum á lands- byggðinni, hafa heyrst raddir um að auknar fjármagnstekjur hafa leitt af sér lægri útsvarstekjur sveitarfélaganna,“ segir Gunn- laugur. - hb MENNTASKÓLINN VIÐ SUND Útskriftar- nemandi við skólann slasaðist alvarlega á Spáni í fyrrakvöld. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Donald Rumsfeld: Meira ofbeldi er líklegt BANDARÍKIN, AP „Ég tel eðlilegt að gera ráð fyrir því að ofbeldi auk- ist á ný um tíma, líkt og gerði fyrir síðustu kosningar,“ sagði Donald Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, þegar hann varaði við auknu ofbeldi í Írak í aðdraganda kosninga um drög að írösku stjórnarskránni 15. október. Rumsfeld tók fram að hann teldi slíka ofbeldisöldu ekki vera til marks um að uppreisnarmönn- um yxi ásmegin heldur væri hún tilraun til þess að draga úr mætti stjórnvalda. Hann vildi ekkert tjá sig um hvenær hermenn yrðu kallaðir heim frá Írak. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.