Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 13
CHICAGO, AP Einn af hverjum átta
fullorðnum sjúklingum í Hollandi
sem sótt höfðu um aðstoð við að
binda enda á eigið líf ákvað að láta
ekki verða af því. Þetta kemur fram
í nýrri könnun á líknardrápum í
Hollandi, sem var fyrsta landið til
þess að lögleiða líknardráp fyrir
fólk sem liggur fyrir dauðanum.
Könnunin náði til tæplega fjögur
hundruð hollenskra lækna og voru
þeir beðnir um að lýsa líknardráps-
beiðnum sem þeim höfðu borist.
Meira en helmingur þeirra hafði
enga beiðni fengið meðan aðrir
höfðu fengið fleiri en eina. Samtals
reyndust beiðnirnar rúmlega 2.500
talsins og var orðið við þeim í nær
helmingi tilfella.
Meginástæður þess að líknar-
dráp var ekki framið var að sjúk-
lingurinn lést áður en til líknar-
dráps kom eða að ferli vegna þess
var enn í gangi. Beðni um líknar-
dráp var auk þess hafnað í tólf pró-
sentum tilfella, en helstu ástæður
sem læknar nefndu fyrir höfnun-
inni var sú að fólk kvaðst heldur
vilja deyja en vera byrði á fjöl-
skyldu sinni eða sagðist þreytt á líf-
inu, frekar en að sjúkdómur ylli því
óbærilegum kvölum. ■
DAUÐINN FRAM UNDAN Holland var fyrsta
landið til þess að lögleiða líknardráp.
MIÐVIKUDAGUR 10. ágúst 2005 13
Makedónskur eiginmaður:
Gleymdi konunni
RÓM Makedónskur maður skildi
eiginkonu sína eftir á ítalskri
vegamiðstöð og uppgötvaði ekki
að hann hefði ekið af stað án henn-
ar fyrr en sex klukkustundum síð-
ar.
Hjónin voru á ferð ásamt fjög-
urra ára dóttur sinni og stöðvuðu
ferð sína til þess að taka bensín,
að því er segir á fréttavef CNN.
Þar fór konan út úr bifreiðinni til
þess að fara á salerni án þess að
eiginmaður hennar tæki eftir því.
Konan hafði hvorki á sér fjár-
muni né persónuskilríki og hafði
því samband við lögreglu, sem
tókst loks að finna manninn í
Mílanó. Hann gaf þá skýringu að
kona hans sæti alltaf í aftursæt-
inu og hann yrði hennar því ekki
var. ■
Öflugur vatnsstrokkur:
Bátum rigndi
yfir bæinn
DANMÖRK Vatnsstrokkur kom upp
að strönd bæjarins Holbæk á
norðanverðu Sjálandi á mánudag-
inn og olli nokkru tjóni. Hrifsaði
hann báta til sín og þeytti þeim
tugi metra upp í loftið. Bátarnir
hröpuðu svo til jarðar í nágrenn-
inu, meðal annars fór einn í gegn-
um húsþak fimmtíu metra frá
höfninni.
Lögregla sagði í samtali við
sjónvarpsstöðina TV2 að engin
meiðsl hefðu orðið á fólki.
Vatnsstrokkar verða til þegar
skýstrokkar nema við sjávarborð-
ið og soga upp sjó. Slík fyrirbrigði
eru sjaldgæf í Danmörku. ■
Ósáttur við Mugabe:
Bóndi brjálast
SIMBABVE Hvítur bóndi sem var
gert að fara af jörð sinni vegna
stefnu Roberts Mugabe forseta
um að færa jarðir hvítra manna til
svartra þegna landsins, varð svo
illur að hann eyðilagði 300 hekt-
ara ræktarlands áður en hann fór.
Mannsins er nú leitað en jörð
hans var færð í eigu sendiherra
Simbabve í Kína á sínum tíma.
Bóndinn fékk ákveðinn tíma til að
koma sér burt og notaði tímann til
að senda bústofn sinn allan til beitar
á besta ræktarlandinu, með þeim
afleiðingum að engin uppskera
verður þar næstu misserin. ■
Ný könnun á líknardrápum í Hollandi:
Um tíu prósent hætta vi›
M
YN
D
/G
ET
TY
Norðmenn uggandi:
Hermannaveiki
greinist á n‡
NOREGUR Hermannaveiki er komin
upp á ný á Østfold-fylki sunnan við
Ósló en yfirvöld hafa staðfest að
tveir menn séu smitaðir af legion-
ellu-bakteríunni
Annar hinna smituðu er fimm-
tugur maður frá Sarpsborg en hinn
er áttræður og býr í Fredrikstad. Sá
fyrrnefndi kenndi sér raunar fyrst
meins í leyfi í Bandaríkjunum og
því er ekki útilokað að hann hafi
smitast þar. Sá áttræði hafði hins
vegar hvergi farið.
Að sögn norska ríkisútvarpsins
er helst talið að bakterían komi úr
Borregaards-kæliturninum í Sarps-
borg en hann var smituppsprettan í
faraldrinum á svæðinu í vor. - shg
Á SKÓLABEKK Margir óttast að íslamskir
skólar séu notaðir til þess að ala á sundr-
ungu og hatri, meðal annars pakistönsk
stjórnvöld sem hafa fyrirskipað að nokkrir
slíkir skólar í landinu skulu leystir upp.
Erfitt er þó að ímynda sér að peyjarnir í
Jamia Islamia-skólanum í Karachi fáist við
nokkurt misjafnt, nema þá helst hefð-
bundin strákapör.