Fréttablaðið - 10.08.2005, Page 21
„Pabbi pabbi, ég er með sting í
hjartanu og hnút í maganum,“
sagði litli veiðimaðurinn skömmu
áður en hann strandaði boldangs-
bleikju úr Eyjafjarðará við bakk-
ann. Góð byrjun hjá þeim stutta,
sem í fyrstu taldi sig hafa fest í
botni þegar hann fékk leyfi til að
„prófa“ flugustöngina hjá pabba
sínum. 2,2 kílóa bleikja var raun-
in. Það eru fleiri af ungu kynslóð-
inni sem fá að prófa, við Elliða-
vatn var sólarlagið eins og í
draumalandi eitt kvöldið og þá
smelltum við mynd af tveimur
ungum veiðimönnum ásamt full-
orðnum fylgdarmanni, betri hug-
mynd að renna í vatnið á svona
blíðviðriskvöldi en að leigja
spólu! Nægilegur var hasarinn í
vatninu, fiskar að skvetta sér um
allt.
Laxveiðiævintýrið heldur
áfram í Eystri Rangá, met á met
ofan og áin komin vel yfir 2.300
veidda laxa. Þar er mesta fjörið
þessa dagana, því eins og oft
gerist í ágúst hægir laxinn á sér,
verður latari í hita og daufara
vatni og tekur ekki nærri jafn vel
og fyrr. Þetta fengu menn að
reyna í Elliðaánum um helgina,
fullt af fiski en lítil taka á fluguna
þótt ormamenn væru að særa upp
fiska úr pyttum neðarlega í ánni.
Það er mjög ánægjulegt að sjá
hve mikið er af fiski í ánum, rúm-
lega 2.300 fiskar gengnir og sum-
ir staðir „pakkaðir“. Teljara-
strengur var með að minnsta
kosti fjörutíu laxa, hylur sem er
ekki stærri en þokkalegt stofu-
gólf! En tregðan er víðar, Korpa
er heldur róleg þótt menn sjái
fisk, og Grímsá líka, þar voru
„stórfyrirtækismenn“ að veiðum
nýlega, einn gaf eftir stöngina
sína þegar hann var búinn að setja
í þrjá eftir einn og hálfan dag, en
aðrir ekki sett í neinn. Svona kall-
ar tregfiskerí á veglyndi manna!
Laxá í Aðaldal fór allt í einu að
gefa, ég ræddi við Orra Vigfússon
á bökkum Laxár í gær og sagði
hann ána vera komna í nær 500
laxa, miðað við 330 á sama tíma í
fyrra. Hann spáði ánni 1.200-1.400
löxum í ár, miðað við rúmlega 900
í fyrra. Þetta er mest smálax í
ánni, en þarna er langmestu
sleppt þetta sumarið, og reyndar
skylt með allan stórlax. Fjögurra
daga hópur sem lauk veiðum fyrr
í vikunni í Aðaldal var með nær
100 laxa, sem er ágætt meðaltal,
heldur rólegra var á sama tíma á
Nessvæðinu í sömu á, sjö daga
hópur var með rúmlega fjörutíu
laxa, á færri stangir auðvitað.
Heilræði vikunnar kemur úr
eldhúsinu: Mjög auðvelt er að
grafa sjálfur lax og silung. Flakið
fiskinn og leggið á fat með roðið
niður. Úti í næsta stórmarkaði
fæst „graflaxkrydd“ sem er
blanda sem maður stráir yfir flak-
ið, setur síðan plast eða álpappír
yfir og geymir í ísskáp í 24 til 36
tíma. Silungur er ekki síðri en lax,
en þarf styttri tíma. Miklu fleiri
mataruppskriftir eru á flugur.is,
margar hafa bæst við í sumar, til
dæmis spennandi „sælkeraupp-
skrift“ að bleikju, og svo bætast
við fleiri næstu daga!
Vegahandbókin
Þegar ekið er um vegi landsins er gaman að hafa Vegahandbókina með í
för. Þá getur maður lesið sér til um það sem fyrir augu ber hverju sinni.[ ]
Síðumúla 11 • 108 Reykjavík • Sími: 588 6500 • www.utivistogveidi.is
OPIÐ Í SUMAR:
laugardaga 10-17, sunnudaga 11-16, virka daga 9-19
Neyðarsími allan sólarhringinn 844 7000
AFSLÁTTUR AF
ÚTSÖLUVÖRUM
Skemmtisögur frekar en sannar sögur
Ólafur B. Schram rekur ferðaáhuga sinn allt til þess er hann var tólf ára og fékk að taka í jeppa í fyrsta sinn.
Ólafur B. Schram rekur fyrir-
tækið Highlander, eða
Fjallafara, sem býður klæð-
skerasaumaðar ferðir um
landið þvert og endilangt.
Flestir viðskiptavinir Ólafs
eru útlendingar, en Íslending-
ar geta líka nýtt sér þjónustu
fyrirtækisins.
„Ég býð upp á tvennskonar
þjónustu, annars vegar fastar
ferðir sem eru skipulagðar löng-
um fyrirvara og hægt er að
kaupa hjá ferðaskrifstofum.
Þær ferðir eru farnar á öllum
árstímum og geta tekið allt frá
fimm dögum upp í tólf. Þess á
milli geri ég bara það sem ég er
beðinn um,“ segir Ólafur, sem
hafði unnið á skrifstofu í 25 ár
þegar hann ákvað að söðla um
og gera það sem honum finnst
lang skemmtilegast, það er að
ferðast og miðla af reynslu sinni
og fróðleik.
„Ég get rakið þetta langt aftur í
tímann, frá því ég var tólf ára og
fékk að keyra jeppa í fyrsta sinn. Ég
var í sveit öll mín æaskuár og fékk
landið og náttúruna beint í æð. Ég
eignaðist svo minn fyrsta jeppa
sautján ára og fór þá rakleiðis til
fjalla. Seinna eignaðist ég líka hesta
og fór reglulega í langar hestaferð-
ir um landið á tuttugu ára tímabili,
meðal annars hringinn í kringum
landið og hringaði alla jökla. Í þeim
ferðum var ég oftast einn á ferð,“
segir Ólafur, sem kveðst þó ekki
vera einfari í eðli sínu heldur kjósa
að vera einn af og til og njóta nátt-
úru og kyrrðar til fullnustu.
„En nei, nei, ég er málgefinn í
meira lagi og hef gaman af að hafa
orðið og segja sögur. Ég er líka
búinn að læra það í samskiptum
mínum við ferðamenn að það er
mikilvægara að sögur séu
skemmtilegar en sannar. En ég fór
út í þetta af því að ég er öruggur
hvar sem er á landinu og þekki mig
alls staðar. Ferðirnar í gegnum tíð-
ina hafa aflað mér þekkingar og
vináttusambanda um allar koppa-
grundir og ég á orðið vini eða kunn-
ingja á nánast hverjum bæ. Þetta
er yndislegt starf, ég er alltaf með
fólki sem er í fríi og þar af leiðandi
afslappað og opið fyrir hvers kyns
skemmtilegheitum.“
Ólafur á marga uppáhaldsstaði
á landinu og sumir eru árstíða-
bundnir. „Á vorin er það Ingólfs-
höfði þar sem eru fuglar í bjargi,
eggjataka, hvalir á sundi,
eyðisandar og jökullinn í baksýn.
Um hásumar er það Landmanna-
afréttur eða Torfajökulssvæðið.
Þar er kyrrðin engu lík eða græni
liturinn á mosanum og andstæð-
urnar eru stórkostlegar, jökullinn
og dökkur sandurinn. Á veturna
eru Mývatn og Dyngjufjallasvæð-
ið toppurinn.“
edda@frettabladid.is
Gerðu þinn eigin grafsilung!
FJÖLBREYTTAR FERÐIR
AÐ FJALLABAKI
Gönguferðir um Strútsstíg, Skælinga og
Laugaveginn
Öku- og gönguferð í friðsæld að Fjallabaki.
Ingvi, með krakkana við Elliðavatn, Arnar og Margrét fengu að spreyta sig á silungsveiði í
kvöldkyrrðinni fyrir skömmu.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI