Fréttablaðið - 10.08.2005, Side 24

Fréttablaðið - 10.08.2005, Side 24
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans. * Nafnávöxtun frá 01.07.2005–31.07.2005 á ársgrundvelli. Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is 410 4000 | landsbanki.is 8,5%* Peningabréf Landsbankans ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 91 39 0 8/ 20 05 Ice in a bucket Sækir á Bretlands- markað Eimskip Umbreytingar- ferli lokið Engin sultarlaun í golfinu Sex milljarðar á ári Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 10. ágúst 2005 – 19. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Burðarási skipt upp | Burðarási var skipt upp milli Landsbankans og Straums fjárfestingabanka. Markaðsvirði félagsins fyrir sam- runann var um 97,5 milljarðar króna. Straumur-Burðarás | Um 57 milljarðar af markaðverðmæti Burðaráss renna inn í Straum. Þar af eru fjórtán milljarðar við- skiptavild, auk hlutabréfa í Ís- landsbanka, Icelandic Group og Skandia. Landsbanki-Burðarás | Lands- bankinn fékk í sinn hlut um 40,3 milljarða króna við uppskiptingu Burðaráss. Stærstu eignirnar sem renna til bankans eru um 10,5 milljarðar í sænska fjárfestingar- bankanum Carnegie og fimm milljarðar í Marel. 17 milljarðar króna voru greiddir með pening- um. Illum Ísland | I-Holding: sem er í eigu Baugs, Straums og Birgis Þórs Bielvedt, keypti áttatíu pró- senta hlut í danska vöruhúsinu Ill- um. Þessir aðilar eiga fyrir Magasin du Nord sem átti um tutt- ugu prósent í Illum en um er að ræða tvö þekktustu vöruhús Dan- merkur. Icex í hámarki | Úrvalsvísitalan fór í fyrsta skipti yfir 4500 stig. Mikið fjör var í hlutabréfavið- skiptum í síðustu viku, hinn fjórða ágúst námu þau rúmum nítján milljörðum og eru þriðju mestu viðskipti á einum degi frá opnun Kauphallarinnar. Enn hækkar olían | Ekkert lát virðist ætla að verða á hækkun olíuverðs. Eftir lokun sendiráða Bandaríkjanna í Sádi-Arabíu fór fatið um tíma yfir 64 dali og hefur verð aldrei verið hærra. Verðið hefur þó lækkað lítillega síðan og kostar fatið nú tæpa 64 dali. Áfram hagrætt Hagnaður Marels nokkuð undir spám. Marel hagnaðist um 169 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi og alls um 310 milljónir á fyrri árs- helmingi. Er það undir meðaltals spá bankanna sem gerði ráð fyrir 214 milljóna króna hagnaði á tímabilinu. Velta var þó í góðu samræmi við spár markaðsaðila. Þessi annar fjórðungur var næstbesti í sögu félagsins. Velta Marels-samstæðunnar jókst um rúm níu prósent á ársfjórðungn- um en um þrettán prósent á fyrstu sex mánuðum ársins. Rekstarhagnaður fyrir fjár- magnsliði og skatta var 262 millj- ónir króna á öðrum ársfjórðungi sem var um fimmtungs sam- dráttur milli ára. Rekstur Marelsfélaganna gekk vel á tímabilinu þrátt fyrir óhagstæð skilyrði. Íslenska krón- an hefur styrkst á árinu og kostn- aður hefur hækkað á Íslandi. Félagið hefur brugðið á það ráð að staðla framleiðsluvörur og breyta skipulagi. Afkoma Carnitech-hlutans er enn óviðunandi þótt hann fari batnandi. - eþa Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar FL Group hefur keypt hlutabréf í easyJet undan- farna daga. Mikil viðskipti hafa verið með bréf í easyJet uppi á síðkastið og skiptu 27 milljónir hluta, eða 2,5 prósent hlutafjár, um hendur á föstudag og mánudag. Enn er óljóst hvort stærstu eigendurnir Stelios Haji-Ioannou og systkini hans, sem samanlagt eiga fjörutíu prósent, vilji selja sína hluti en samkvæmt þessu er augljóst að FL Group styrkir stöðu sína í hluthafahópnum. Hlutur FL Group liggur sennilega á bilinu 13-14 prósent en ekki hefur verið tilkynnt um viðskiptin til bresku kauphallarinnar. Talið er að staða FL Group sé sterk og félagið muni ekki eiga í vandræðum með að selja hlut sinn ef þurfa þykir. Á sama tíma er yfirstjórn hjá breska lággjalda- flugfélagsinu í lamasessi þrátt fyrir góðan rekstrar- árangur á síðasta ársfjórðungi. Colin Day hefur ákveðið að segja sig úr stjórn easyJet og er annar stjórnarmaðurinn sem segir starfi sínu lausu á stutt- um tíma. Hann gerði sér vonir um að taka við for- stjórastarfinu af Ray Webster sem sagði starfi sínu lausu í maí eftir tíu ára starf. The Times segir að stjórnarmenn hafi ekki verið einhuga um að bjóða Day, sem er fjármálastjóri hjá Reckitt Benckiser, starfið. FL Group á engan fulltrúa í stjórn easyJet, en hugsanlegt er að breyting verði þar á. Félagið birti uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung sem sýndi mikinn vöxt og aukningu hagnaðar þrátt fyrir að eldsneytiskostnaður hafi aukist um sextíu prósent. Veltan jókst um fimmtung á milli ára og tekjur af hverjum farþega hækkuðu til að mynda um tæpt prósent. Bréf í easyJet hafa hækkað um tíu prósent frá birtingu uppgjörsins og um 47 prósent á árinu. Forsvarsmenn FL Group vildu ekkert staðfesta um hvort bréf hefðu verið keypt. F R É T T I R V I K U N N A R 16 10-11 7 Björgvin Guðmundsson skrifar Allt virðist stopp í viðræðum milli Íslands og Kína um gerð frí- verslunarsamnings landanna. Samkvæmt heimildum Markað- arins er ástæðan sú að íslensk stjórnvöld heimiluðu utanríkis- ráðherra Taívan að koma til landsins í byrjun júlí í sumar þrátt fyrir mótmæli Kínverja. Davíð Oddsson, utanríkisráð- herra, og Bo Xilai, utanríkisvið- skiptaráðherra Kína, undirrituðu 12. maí samkomulag um að gera könnun til þess að undirbúa frí- verslunarsamning milli land- anna. Ef það gengi eftir yrði Ís- land fyrst Evrópuríkja til að gera slíkan samning við Kína. „Ís- lenskt atvinnulíf hefur aukið verulega samskipti við kínverska aðila á undanförnum árum,“ sagði í tilkynningu, sem var send fjölmiðlum af þessu tilefni. Aug- ljóst er að miklir hagsmunir felast í því að fríverslunarsamn- ingur sem þessi sé gerður. Embættismenn benda á að alltaf getur gengið erfiðlega í viðræðum sem þessum og óvænt atvik komið upp. Það þurfi ekki að benda til þess að ekkert verði af samningum, aðeins að það taki lengri tíma að ganga frá honum. Útrásarvísitalan hækkar: EasyJet á flugi Útrásarvísitalan hefur hækkað um rúmt eitt prósent milli vikna og stendur nú í rúmum 114 stig- um. EasyJet hækkaði mest, um tæp tólf prósent. Þar á eftir kem- ur Low & Bonar, sem hækkaði um átta prósent. Þar á eftir kemur Carnegie, sem hækkar um rúm þrjú prósent. Mest lækkaði finnska fjar- skiptafyrirtækið Saunalahti, um rúm fjögur prósent. Gengi krónunnar veiktist og hækkaði því Útrásarvísitalan meira en gengi félaganna í henni. DeCode hefur hækkað mest frá upphafi eða um 74 prósent en gengi félagsins lækkaði milli vikna um 2,5 prósent. - dh / Sjá síðu 6. FL Group kaupir meira í easyJet Stjórnarkrísa í breska flugfélaginu er talin styrkja stöðu Ís- lendinganna. Hlutur FL Group sennilega 13 til 14 prósent. MEÐ FULLTRÚUM ESB Bo Xilai til hægri skálar hér eftir samning um aukinn innflutning vefnaðarvara á svæði ESB. Fr ét ta bl að ið /A FP Fríverslunarviðræður í strand Kínversk stjórnvöld eru reið Íslendingum. Miklir hagsmunir í húfi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.