Fréttablaðið - 10.08.2005, Síða 41
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2005 17
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Matsfyrirtækið Standard &
Poor’s hefur hækkað einkunn
ÍSB Global Equities úr þremur
stjörnum í fjórar. S&P metur um
sex hundruð sjóði og fá tíu pró-
sent þeirra fimm stjörnur sem er
hæsta einkunnin. Sjóðir sem eru í
sætum 61 til 180 fá fjórar stjörn-
ur.
„Við erum afar kát með ein-
kunnagjöfina, enda mælir hún
frammistöðu okkar yfir nokkuð
langan tíma og sýnir að við erum
að skila arðsemi sem fyrir ofan
meðaltal. Hún þýðir auðvitað að
við stöndum okkur vel í sam-
keppni við aðra sjóði,“ segir Alex-
ander J. Dean, sjóðsstjóri hjá Ís-
landsbanka.
Hann segir að sjóðurinn hafi
stækkað gríðarlega á síðustu
þremur árum eða úr fjórum
milljónum dala í 140 milljónir.
Það eru einkum lífeyrissjóðir
sem fjárfestu í honum en ein-
staklingar hafa í vaxandi mæli
komið inn. „Við viljum stækka
sjóðinn enn frekar. Þóknunin er
aðeins eitt prósent sem er lág
upphæð miðað við þá ávöxtun
sem við höfum skilað.“
ÍSB Global Equities hefur það
að markmiði að fjárfesta í hluta-
bréfum 40-60 skráðra, alþjóð-
legra fyrirtækja hlutabréfum.
Alexander segir að sjóðurinn
fjárfesti meðal annars í Banda-
ríkjunum, Rússlandi, Ungverja-
landi og Indlandi.
Einnig fjárfestir sjóðurinn í
breytanlegum skuldabréfum og
afleiðum. - eþa
Íslandsbankasjóður hærra metinn
Fær fjórar stjörnur af fimm mögulegum.
F Ó L K Á F E R L I
JÓN BJÖRNSSON hefur verið skipaður
forstjóri Magasin du Nord en hann
gegnir nú stöðu
forstjóra Haga hf.
Jón fæddist árið
1968 og útskrifaðist
með BSc-gráðu í
stjórnun frá Rider-
háskóla í New
Jersey árið 1991.
Hann hefur víð-
tæka reynslu í
smásölugeiranum, bæði í matvælasmá-
sölu og í rekstri sérverslana, enda
hefur hann unnið smásölu og rekstur
verslana síðastliðin 14 ár. Jón hefur átt
sæti í stjórn Magasin síðan í ársbyrjun
2005. Frá 2003-2005 sat hann í stjórn
Mosaic Fashions, sem starfrækir versl-
anirnar Oasis, Coast, Karen Millen og
Whistles um allan heim, auk þess að
sitja í stjórn bresku tískuvöruverslana-
keðjunnar MK One. Jón hefur staðið að
opnun nýrra Debenhams-verslana í
Stokkhólmi og Kaupmannahöfn, sem
eru tvær stærstu stórverslanir sem
opnaðar hafa verið á Norðurlöndunum
á undanförnum árum.
ÁRNI PÉTUR JÓNSSON hefur verið ráð-
inn forstjóri Og Vodafone. Árni útskrif-
aðist sem viðskipta-
fræðingur frá Háskóla
Íslands árið 1991. Árni
er með víðtæka
reynslu úr viðskipta-
lífinu en hann hefur
meðal annars starfað
sem framkvæmda-
stjóri Skipaafgreiðslu
Jes Zimsen hf., sem forstjóri Tollvöru-
geymslu Zimsen hf. og sem fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs heildsölu
Olís. Frá árinu 2001 starfaði Árni sem
framkvæmdastjóri matvörusviðs Baugs
og síðar sem framkvæmdastjóri rekstr-
arsviðs Haga hf. Árni var stjórnarfor-
maður Lyfju hf. og situr í stjórn Skelj-
ungs hf. og Húsasmiðjunnar hf.
ÁRNI GEIR PÁLSSON hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Latabæjar. Árni var
framkvæmdastjóri
viðskiptaþróunar hjá
Icelandic Group
(SH) frá árinu 2000.
Á árunum 1999 til
2000 gegndi hann
stöðu forstöðu-
manns viðskiptaþró-
unar hjá Frjálsri fjöl-
miðlun. Hann var framkvæmdastjóri og
einn aðaleigandi auglýsingastofunnar
Mátturinn og dýrðin á árunum 1994 til
1997. Árni Geir var markaðsstjóri Sam-
skipa 1993 til 1994. Hann starfaði sem
verðbréfamiðlari bæði hjá Þjónustumið-
stöð ríkisverðbréfa og VÍB á árunum
1989 til 1993. Árni Geir lauk prófi í við-
skiptafræðum frá Háskóla Íslands árið
1989 og meistaraprófi í alþjóðaviðskipt-
um frá Copenhagen Business School
árið 2000.
F Ó L K Á F E R L I
ÍVAR J. ARNDAL hefur verið ráðinn for-
stjóri ÁTVR. Hann hefur gegnt starfi að-
stoðarforstjóra ÁTVR
frá árinu 2000 og var
settur forstjóri í eitt
ár 2003 til 2004. Ívar
hefur starfað hjá
ÁTVR undanfarin
fimmtán ár. Hann er
vélaverkfræðingur að
mennt, en hefur einnig meistaragráðu í
opinberri stjórnsýslu, auk náms í við-
skipta- og rekstrarfræði.
FINNUR ÁRNASON hefur verið ráðinn for-
stjóri Haga hf. Finnur hefur starfað hjá
Högum, áður Baugi,
frá stofnun fyrirtæk-
isins árið 1998,
undanfarin ár sem
framkvæmdastjóri
Hagkaupa. Finnur er
viðskiptafræðingur
frá Háskóla Íslands
og lauk prófi í rekstr-
arhagfræði frá University of Hartford
árið 1987.
GUNNAR INGI SIGURÐSSON hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Hagkaupa frá
10. ágúst 2005. Gunnar Ingi er 37 ára og
hefur verið rekstr-
arstjóri verslana
Hagkaupa frá árinu
1998. Gunnar Ingi
er viðskiptafræð-
ingur frá Viðskipta-
háskólanum á Bif-
röst og lauk áður
prófi í iðnrekstar-
fræði frá Tækni-
skóla Íslands. Gunnar Ingi var fram-
kvæmdastjóri Bónus birgða 1997-1998
og var sölustjóri hjá Nóa Síríus frá 1994-
1997.
HÆRRI EINKUNN ÍSB Global Equities, alþjóðlegur hlutabréfasjóður, fær fjórar stjörnur af
fimm mögulegum frá Standard & Poor’s.
Þýski sportvöruframleiðandinn
Adidas-Salomon hefur lagt fram
250 milljarða króna tilboð í banda-
ríska framleiðandann Reebok..
Með kaupunum hyggst Adidas
leggja til atlögu við bandaríska
íþróttarisann Nike, sem hefur yf-
irburðastöðu á Bandaríkjamark-
aði.
Kaupin bíða þó samþykktar
samkeppnisyfirvalda í Bandaríkj-
unum. Tilboð Adidas hljóðaði upp
á 59 dali á hlut og ruku hlutabréf í
Reebok upp um sextán prósent er
fréttirnar bárust.
„Þetta var einstakt tækifæri til
að sameina tvö stærstu og þekkt-
ustu íþróttavörufyrirtæki á mark-
aðnum,“ sagði Herbert Hainer,
forstjóri Adidas.
Rúmlega helmingur alls
íþróttavarnings í heiminum selst
á Bandaríkjamarkaði, en talið er
að með kaupunum á Reebok muni
Adidas tvöfalda sölu sína í land-
inu. Samtals seldu fyrirtækin fyr-
ir um 250 milljarða króna í Banda-
ríkjunum á síðasta ári.
Auk Adidas og Reebok hefur
Adidas-Salomon ýmis þekkt vöru-
merki á sínum snærum og nægir
þar að nefna golfmerkin
Taylormade og Maxfli. - jsk
Adidas kaupir Reebok
Evrópski íþróttarisinn vill með kaupunum auka markaðshlutdeild sína í
Bandaríkjunum. Samanlögð sala Adidas og Reebok í Bandaríkjunum nam
á síðasta ári 250 milljörðum króna.
BECKHAM Í ADIDAS David Beckham er
ein stærsta stjarna Adidas. Fyrirtækið hefur
nú fest kaup á bandaríska sportvörufram-
leiðandanum Reebok.