Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 56
FÓTBOLTI Spænska liðið Villareal
gerði góða ferð til Liverpool í gær
er liðið vann Everton á Goodison
Park með tveimur mörkum gegn
einu. Ljóst er að vonbrigðin yfir
úrslitum leiksins eru mikil hjá
leikmönnum og áhangendum Ev-
erton en liðið lék í meistaradeild-
inni í fyrsta sinn.
Everton byrjaði leikinn vel og
var vel stutt af áhorfendum sem
fylltu áhorfendastúkurnar. Þögn
sló á heimamenn á 27. mínútu er
Luciano Figueroa skoraði fyrsta
mark leiksins af miklu harðfylgi
eftir sendingu Marcos Senna.
Figueroa, sem áður lék með
Birmingham, var í þröngu færi en
náði föstu skoti að marki sem fór
fram hjá Nigel Martyn í marki
Everton. Heimamönnum tókst að
jafna á 43. mínútu er James
Beattie skoraði eftir góðan undir-
búning Phil Neville sem lék sinn
fyrsta leik fyrir Everton eftir að
hann gekk til liðs við félagið frá
Manchester United. Aðeins
tveimur mínútum síðar er Josico
skoraði annað mark Villareal eftir
fyrirgjöf Juan-Pablo Sorin.
Leikmenn Everton gerðust að-
gangsharðir við mark andstæð-
ingsins í síðari hálfleik en allt
kom fyrir ekki. Þá fékk Diego
Forlan ágætt tækifæri til að skora
þriðja mark Spánverjanna en
skalli hans var varinn á síðustu
stundu.
Manchester United átti fremur
náðugan dag er liðið vann 3–0 sig-
ur á ungverska liðinu Debrecen.
Wayne Rooney skoraði gott mark
strax á 7. mínútu og leikmenn
United höfðu algera yfirburði í
leiknum. Þá var dæmt að því sem
virtist fullkomlega löglegt mark
af ungverska liðinu og í stað þess
að leikar stóðu jafnir tókst Ruud
van Nistelrooy að bæta við öðru
marki þeirra ensku nokkrum mín-
útum síðar. Það var svo Rooney
sem skóp þriðja mark United en
markið skoraði Cristiano Ronaldo.
Synir Malcolm Glazer, nýs eig-
anda Manchester United, fylgdust
með leiknum frá áhorfendapöll-
unum en það vakti athygli að ekki
var uppselt á leikinn í gær. Um
700 stuðningsmenn liðsins mót-
mæltu hins vegar nýjum eigend-
um liðsins fyrir utan Old Trafford
og er greinilegt á aðsókninni í gær
að margir eru ekki sáttir við þá
stefnu sem félagið hefur tekið
undir nýrri stjórn.
Vålerenga, lið Árna Gauts Ara-
sonar, vann 1–0 sigur á Club Brug-
ge frá Belgíu á heimavelli sínum
og eiga ágæta möguleika á að
komast áfram í riðlakeppni meist-
aradeildarinnar en liðin eigast við
á ný í næstu viku, þá á heimavelli
síðarnefnda liðsins.
eirikurst@frettabladid.is
10. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
> Við hrósum ...
... Valsstúlkum sem gerðu sér lítið fyrir og
lögðu norsku meistarana í Evrópukeppni
félagsliða í Finnlandi í gær.
Sigurinn var stór 4–1 og
ber þess merki að gæði
íslenskrar kvennaknatt-
spyrnu er alltaf að
aukast. Norska
deildin hefur verið
talin ein sú besta í
heiminum.
Tap fyrir Svíum
Íslenska landsliðið í körfubolta kvenna,
skipað leikmönnum 18 ára og yngri,
tapaði í gær fyrir Svíum í B-deild
Evrópumeistaramótsins sem fer fram í
Bosníu. Helena Sverrisdóttir var
stigahæsti leikmaður íslenska liðsins með
fimmtán stig og fimm fráköst. Næsti
leikur Íslands er í dag gegn Lettum.
sport@frettabladid.is
22
> Við veltum því fyrir okkur ...
.... hvort Framarar þori að nota Bo
Henriksen aftur þegar liðin mætast í
úrslitaleik bikarkeppninnar. Sjálfir
segjast Framarar vera með
hreina samvisku en
Valsmenn vilja meina
að Bo megi ekki spila
þegar þessi lið mætast.
firi›ja umfer› forkeppni meistaradeildar Evrópu hófst í gær. Everton laut í
lægri hlut á Goodison Park á me›an a› Manchester United fagna›i sigri á sín-
um heimavelli. Vålerenga vann gó›an sigur á Club Brugge.
Vonbrigði er Everton tapaði LEIKIR GÆRDAGSINS
Evrópukeppni félagsliða:
VALUR–RÖA 4–1
Margét Lára Viðarsdóttir 2, Dóra María
Lárusdóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir.
Landsbankadeild kvenna:
KR–BREIÐABLIK 0–0
STJARNAN–FH 1–2
Harpa Þorsteinsdóttir – Kristín Sigurðar-
dóttir, Sif Atladóttir.
STAÐAN:
BREIÐABLIK11 10 1 0 37–7 31
VALUR 11 9 0 2 50–12 27
KR 11 7 1 3 37–14 22
ÍBV 11 6 0 4 31–20 18
KEFLAVÍK 10 4 0 6 23–28 12
STJARNAN 11 3 0 8 12–30 9
FH 11 3 0 8 8–37 9
ÍA 11 0 0 11 7–54 0
Meistaradeild Evrópu:
ANORTHOSIS–RANGERS 1–2
0–1 Novo (65.), 0–2 Ricksen (70.), 1–2
Frusos (73.).
WISLA KRAKOW–PANATHINAIKOS 3–1
0–1 Olisadebe (4.), 1–1 Brozek (12.),
2–1 Uche (52.), 3–1 Frankowski (70.).
VÅLERENGA–CLUB BRUGGE 1–0
1–0 Steffen Iversen (57.). Árni Gautur
Arason lék allan tímann í marki Vålerenga.
EVERTON–VILLAREAL 1–2
0–1 Figueroa (27.), 1–1 Beattie (42.),
1–2 Josico (45.).
MANCHESTER UNITED–DEBRECEN 3–0
1–0 Rooney (7.), 2–0 Van Nistelrooy
(49.), 3–0 Ronaldo (63.).
REAL BETIS–MONACO 1–0
1–0 Edu (90.).
Enska 1. deildin:
BRIGTHON–READING 0–2
Ívar Ingimarsson lék allan leikinn fyrir Reading
en Brynjar Björn Gunnarsson kom ekki við sögu.
BURNLEY–SHEFFIELD UNITED 1–2
CARDIFF–LEEDS 2–1
Gylfi Einarsson sat allan tímann á varamanna-
bekk Leeds.
LEICESTER–STOKE 4–2
Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan tímann fyrir
Leicester en Þórður Guðjónsson kom ekki við
sögu hjá Stoke.
LUTON–SOUTHAMPTON 3–2
MILWALL–COVENTRY 0–0
NORWICH–CREWE 1–1
PLYMOUTH–WATFORD 3–3
Bjarni Guðjónsson sat á bekknum hjá Plymouth.
QPR–IPSWICH 2–1
SHEFFIELD WEDNESDAY–HULL 1–1
WOLVES–CRYSTAL PALACE 2–1
Enska 3. deildin:
NOTTS COUNTY–WREXHAM 1–0
Guðjón Þórðarson stýrði sínum mönnum í Notts
County til sigurs í fyrsta sinn. Liðið hafði gert
markalaust jafntefli í fyrstu umferð mótsins.
Intertoto-keppnin:
CFR CLUJ–LENS 1–1
HAMBURGER SV–VALENCIA 1–0
DEPORTIVO–MARSEILLE 2–0
Frábær byrjun Valsstúlkna í Evrópukeppni félagsliða:
FÓTBOLTI Valsstúlkur hófu í gær
keppni í sínum riðli í Evrópu-
keppni félagsliða en þær keppa í
Finnlandi ásamt þremur öðrum
liðum. Í gær mættu þær norsku
meisturunum í Röa og gerðu sér
lítið fyrir og unnu stórsigur, 4–1.
Sigurinn er enn merkilegri fyrir
þær sakir að norska deildin þyk-
ir ein sú sterkasta í heiminum.
Margrét Lára Viðarsdóttir
kom Valsstúlkum yfir á 22. mín-
útu leiksins beint úr aukaspyrnu
og Dóra María Lárusdóttir bætti
öðru við eftir góðan undirbúning
Laufeyjar Jóhannesdóttur. Stað-
an í hálfleik var því 2–0 og sótti
norska liðið talsvert í upphafi
síðari hálfleiks. Valsvörnin hélt
vel og náði Margrét Lára að bæta
við þriðja marki Vals á 53. mín-
útu en hún fékk boltann eftir út-
spark Guðbjargar í marki Vals
og skoraði af miklu harðfylgi.
Þar með var sigurinn nokkuð
tryggður en leikmenn Röa náðu
að svara fyrir sig um stundar-
fjórðungi fyrir leikslok áður en
varamaðurinn Guðný Björk Óð-
insdóttir skoraði á lokamínútu
leiksins.
Liðið mætir næst finnsku
meisturunum í FC United en það
lið sem sigrar riðilinn kemst í
næstu riðlakeppni sem fer fram í
byrjun september. - esá
firiggja marka sigur gegn norsku meisturunum
Danski framherjinn Bo Hendriksen hjá
Fram reyndist fyrrum félögum sínum
í Val ljár í þúfu í fyrrakvöld, þegar
hann skoraði bæði mörk Framara
í 2-1 sigri á Völsurum í Lands-
bankadeildinni. Eftir leikinn sök-
uðu Valsmenn Framara um að
hafa brotið heiðursmannasam-
komulag með því að tefla Hen-
riksen fram í leiknum. Vals-
menn höfðu að eigin sögn
samþykkt að láta hann
fara til Fram, gegn því
að hann spilaði ekki
leiki gegn gömlu fé-
lögum sínum, en
það samkomulag
hafi Framarar brotið
í fyrrakvöld.
Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Fram, segir að félagaskipti Danans
hafi farið fram með hefðbundnum
hætti. „Valsmenn buðu okkur
leikmanninn og höfðu ekki not
fyrir hann. Við höfum ekki skrif-
að undir eða samþykkt neitt
svo hljóðandi að Henriksen
mætti ekki spila gegn Val,
enda hefðum við aldrei
samið við hann á þeim
forsendum,“ sagði Brynj-
ar, sem segir Valsmenn
einfaldlega að ljúga.
Börkur Edvardsson, for-
maður knattspyrnudeildar
Vals, er á allt öðru máli. „For-
senda þess að Fram fengi
Henriksen á sínum tíma var
að hann léki ekki á móti okkur á árinu,
það samkomulag hafa Framarar brotið.
Við fórum þess margoft á leit við þá að
þeir stæðu við gefin loforð um að láta
hann ekki spila á móti okkur og því
erum við afar vonsviknir,“ sagði Börkur
og lýsti framkomu Framara sem barna-
skap.
Fram og Valur leika einmitt til úrslita í
bikarkeppninni í haust og því verður
afar forvitnilegt að fylgjast með leiknum
í ljósi deilna félagana tveggja nú, þar
sem liggur í augum uppi að einhver
segir ósatt. Þegar út á völlinn er komið
eru það hins vegar verkin sem tala og
fá bæði liðin kjörið tækifæri til þess í
úrslitaleiknum í haust. Góða skemmtun.
FRAM OG VALUR: HATRÖMM DEILA UM DANSKA LEIKMANNINN BO HENRIKSEN
Hver er a› ljúga a› hverjum?
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
7 8 9 10 11 12 13
Miðvikudagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
19.00 ÍBV tekur á móti Keflavík í
Landsbankadeild kvenna.
19.15 FH mætir Grindavík á
Kaplakrikavelli í Landsbankadeild ka.
■ ■ SJÓNVARP
15.00 HM í frjálsum á Rúv.
16.25 Olíssport á Sýn. (e)
16.55 Meistaradeildin á Sýn. Ev-
erton – Villareal. (e)
18.35 Meistaradeildin á Sýn.
CSKA Sofia – Liverpool.
21.30 Mótorsport á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.30 Meistaradeildin á Sýn.
CSKA Sofia – Liverpool. (e)
ÞRIÐJA MARKINU FAGNAÐ Portúgalinn Cristiano Ronaldo fagnar hér marki sínu gegn
ungverska liðinu Debrecen í gær. Manchester United vann 3–0 sigur í leiknum.