Fréttablaðið - 10.08.2005, Page 61
v/Laugalæk • sími 553 3755
Verðlistinn
40 ára
1965 2005
40% afsláttur af öllum vörum
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
ALGJÖRT VERÐHRUN
SIÐUSTU ÚTSÖLUDAGAR
Kvikmyndafyrirtækið Kisi stendur
í stórræðum um þessar mundir.
Eftir tæpan mánuð verður kvik-
myndin „Strákarnir okkar“ frum-
sýnd en hennar hefur verið beðið
með mikilli eftirvæntingu. Kisi
lætur ekki þar við sitja heldur er
strax kominn á fullt í nýtt verkefni.
Um er að ræða norska framtíðar-
kvikmynd sem verður tekinn upp
að einhverjum hluta hér á Íslandi
en Kisi verður meðframleiðandi að
myndinni. Leikstjóri myndarinnar
er ungur norskur kvikmyndagerð-
armaður, Jens Leam, og er þetta
fyrsta myndin hans í fullri lengd.
Hann hefur vakið athygli fyrir
stuttmyndir sínar og komist í
Cannes-úrvalið með þær.
Að sögn Júlíusar Kemp hjá Kisa
verður myndin ekkert í líkingu við
Blossa heldur meira í ætt við 1984.
„Hún á að lýsa svona stórborg-
arfirringu,“ segir Júlíus en ástæðan
fyrir því að þeir völdu Ísland var sú
að þá vantaði svarta eyðimörk sem
á að umlykja borgina. Júlíus segir
að um fimmtán manna lið komi
hingað til lands auk aðalleikarans
en reiknað er með því að tökur hefj-
ist í lok ágúst. Þá sé verið að ráða ís-
lenska leikara til að taka þátt í
myndinni. „Við verðum bara að
notast við restarnar sem ekki eru að
taka þátt í Eastwood-myndinni,“
segir Júlíus í léttum dúr. ■
Kisi framlei›ir norska kvikmynd
STRÁKARNIR OKKAR Kvikmyndin verður frumsýnd 1. september en ekki gefst mikill
tími til fagnaðarláta því næsta verkefni hefst í lok ágúst.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI