Fréttablaðið - 31.08.2005, Síða 10
Fyrir fjögur bíltæki greiddi hann
tíu grömm af hassi og fyrir far-
tölvuna sem metin er á yfir 200
þúsund krónur og myndavélarnar,
tæp 24 grömm af hassi.
Þá koma einnig við sögu í mál-
unum yngri drengir sem sökum
aldurs sæta ekki ákæru.
Nokkrir ákæruliðanna, sem
eru yfir tuttugu talsins, snúa að
fjársvikum, umferðarlagabrotum
og vörslu fíkniefna, bæði am-
fetamíns og kannabisefna. Þá
gera í málinu tíu aðilar kröfu um
skaðabætur sem hljóða upp á
samtals rúmlega 4,1 milljón
króna.
- óká
Í HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR Fjórir af
fimm strákum, sem meðal annars sæta
ákærum fyrir fjölmörg innbrot á höfuðborg-
arsvæðinu, mættu þegar mál þeirra voru
þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
10 31. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Sextán til átján ára drengir ákærðir fyrir innbrot:
Strákarnir játu›u allir
DÓMSTÓLAR Fjórir drengir á aldrin-
um 16 til 18 ára játuðu allir fjölda
innbrota og þjófnaða á höfuðborg-
arsvæðinu og víðar sem framdir
voru á þessu og síðasta ári.
Sá fimmti, 18 ára gamall, sem
ákærður er fyrir aðild að málum,
mætti ekki við þingfestingu máls-
ins í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær.
Einn úr hópnum, 16 ára gamall,
hefur setið í síbrotagæslu síðan í
lok síðasta mánaðar. Honum er
einnig gefið að sök hylmingarbrot
fyrir að hafa keypt stolinn varn-
ing, bílaútvarpstæki, fartölvu og
stafrænar myndavélar, af þremur
öðrum og greitt fyrir með hassi.
LANDBÚNAÐUR Dýralæknar ætla
að herða enn baráttuna gegn
garnaveiki í sauðfé. Vonir
þeirra standa til að hægt verði
að leggja bólusetningu gegn
veikinni af. Sigurður Sigurðar-
son, dýralæknir smitsjúkdóma,
kallar á samstöðu bænda og
sveitarstjórna í málinu.
„Í haust var áformað, ef skil-
yrði væru til, að hætta bólusetn-
ingu á Austurlandi frá Jökulsá í
Öxarfirði og Melrakkasléttu að
Héraðsflóa og Kárahnjúkum.
Jafnvel einnig frá Reyðarfirði
og Hallormsstað til Berufjarð-
ar,“ segir hann. „En svör bænda
á þessum svæðum við könnun
okkar á síðastliðnu vori eru þó
svo dræm, að óvíst er að hætt
verði að bólusetja í haust. Sveit-
arstjórnir og bændur verða að
bregðast rösklegar við, ef það á
að verða.“
Að sögn Sigurðar er hætta á
að veikin magnist upp þegar
hætt er að bólusetja, sé hún enn
til staðar, þótt engir eða fáir
verði hennar varir meðan bólu-
sett er. Þegar hætt er að bólu-
setja eykst hætta vegna
smitefna sem flutt eru inn á
slíkt svæði í hugsunarleysi og
kæruleysi með heyi, skítugum
gripaflutningabílum, landbún-
aðartækjum og hestakerrum,
sem sauðfé hefur verið flutt í.
„Öllu slíku er hægt að af-
stýra, ef menn sofna ekki á
verðinum,“ segir Sigurður. „All-
ir verða að finna til ábyrgðar.
Það hefur tekist á tilteknum
svæðum hingað til, en þar má
heldur ekki sofna á verði, þótt
vel hafi gengið. Ávinningur við
að geta hætt bólusetningu er
mikill bæði í kostnaði við hana
sem ekki þarf þá lengur að
greiða, minni skemmdum á af-
urðum og betri meðferð á
skepnunum.“
Hann undirstrikar að veikin
hafi verið upprætt á nokkrum
svæðum, þar sem hún hafi áður
verið útbreidd og valdið tjóni.
Ef fylgt sé tilteknum varúðar-
reglum megi ætla að unnt verði,
án umtalsverðrar hættu, að
leggja niður bólusetningu gegn
veikinni á einu svæði eftir ann-
að þar til hún hefur verið upp-
rætt. jss@frettabladid.is
Lögregla á Húsavík blekkt:
Fannst sofandi
eftir ney›arkall
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Húsavík
fékk í fyrrinótt upphringingu frá
manni sem sagðist vera í vanda
staddur. Kallað var á björgunar-
sveitir og þegar hafin leit að
manninum. Leitað var að honum í
rúma þrjá tíma áður en hið sanna
kom í ljós; að maðurinn lá heima í
rúmi steinsofandi.
Að sögn varðstjóra hjá lögregl-
unni á Húsavík hefur maðurinn
áður komið við sögu lögreglu fyr-
ir ýmsar sakir, þó ekki fyrir neitt
þessu líkt. Hann sagði einnig að
auðvitað væri óþægilegt þegar
lögregla væri blekkt á þennan
hátt. - oá
BETRI AFURÐIR Dýralæknar vilja útrýma garnaveiki, hætta bólusetningum og fá þar með
betri afurðir af sauðfénu.
Bændur tefja flarfar breytingar
D‡ralæknar hyggjast her›a enn baráttuna gegn garnaveiki í sau›fé. Markmi› fleirra er a› hægt ver›i a›
leggja bólusetningar af. fia› hef›i í för me› sér minni kostna›, betri afur›ir og betri me›fer› á skepnunum.
UTANBORÐSMÓTORAR
tvígengis- og fjórgengisvélar
2,5 - 275 hestöfl
SPORTVEIÐIBÁTAR
með Volkswagen Marine
dísilvél og hefðbundnum
skrúfubúnaði
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA