Fréttablaðið - 31.08.2005, Page 25
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra
fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.07.2005–31.07.2005 á ársgrundvelli.
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr.
30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingarsjóðir
hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur
en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn,
m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og
fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins,
vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu
sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf.
auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is
410 4000 | landsbanki.is
8,5%*
Peningabréf Landsbankans
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
91
39
0
8/
20
05
Playboy
Stafrænt
strákatímarit
Sjávarútvegurinn
Krónan veldur verkjum
Alan Greenspan
Óttast
verndarstefnu
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 31. ágúst 2005 – 22. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Bakkavör hagnast | Bakkavör
hagnaðist um 11,9 milljónir
punda, eða 1,4 milljarða króna, á
fyrstu sex mánuðum ársins, sem
er 123 prósenta aukning frá fyrra
ári. Heildartekjur námu 26,4
milljörðum króna, sem er rúm-
lega þreföldun frá fyrra ári.
Burðarás selur | Burðarás hefur
selt um 8,2 prósenta hlut í norska
olíuleitarfyrirtækinu Exploration
Resources fyrir meira en 1,9
milljarða króna. Söluhagnaður af
bréfunum er yfir einn milljarður.
Markaðsvirði Exploration Reso-
urces hefur meira en tvöfaldast
frá því að Burðarás tilkynnti um
kaup í því í júní.
Kögun kaupir | Kerfi A/S, dóttur-
félag Kögunar, hefur keypt
danska upplýsingatæknifyrirtæk-
ið Commitment Data A/S. Velta
Commitment Data er rúmir tveir
milljarðar íslenskra króna. Hjá
Kerfi A/S starfa nú sjötíu manns
og er áætluð ársvelta um þrír
milljarðar króna.
Katrín veldur tjóni | Gríðarlegt
eignatjón varð þegar fellibylurinn
Katrín reið yfir Suðvesturríki
Bandaríkjanna.
Vefnaðardeilda leyst? | Peter
Mandelson, framkvæmdastjóri
viðskiptamála hjá Evrópusam-
bandinu, segir að lausn sé í sjón-
máli í vefnaðardeilu ESB við Kín-
verja.
„Eignarrétturinn og framtíðin“
| Rannsóknarmiðstöð um samfé-
lags- og efnahagsmál hélt ráð-
stefnu undir yfirskriftinni „Eign-
arrétturinn og framtíðin“.
Icex í methæðum | Úrvalsvísi-
talan stóð í rúmum 4.600 stigum
við lokun markaða í gær og hefur
aldrei verið hærri. Vísitalan hefur
hækkað um 38 prósent frá ára-
mótum.
Nafni Verslunar-
ráðs breytt
Kynntar verða nýjar áherslur í
starfi Verslunarráðs Íslands á
Hótel Nordic klukkan fjögur í
dag. Hluti af því er að breyta
nafninu í Viðskiptaráð Íslands
sem á að hafa breiðari skírskotun
en Verslunarráð Íslands. Það er
ekki síst vegna breytts umhverf-
is í atvinnulífinu og fjölbreyttari
verkefna, meðal annars vegna
þess hve alþjóðlegt viðskiptalífið
er orðið, sem þessi vinna hefur
farið fram á vegum ráðsins.
Mikið starf hefur verið unnið
innan Verslunarráðs á undan-
förnum árum sem hefur oftar en
ekki hrundið af stað umræðu í
þjóðfélaginu. Til dæmis var gefin
út skýrsla um flata skatta, 15 pró-
sent landið, og hvatt til umræðu
um að auka veg einkaframtaks-
ins í skólakerfinu. - bg
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Stjórnendur Atlantis, sem er þriggja ára gamalt al-
þjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki, ákváðu á þessu ári
að höfuðstöðvar samsteypunnar yrðu staðsettar á Ís-
landi. Fyrirtækið sérhæfir sig í fram-
leiðslu og sölu á laxi og túnfiski til Jap-
ans og hefur vaxið mikið undanfarin ár.
Það er með sextán starfsstöðvar í fjórt-
án löndum og 180 manns í vinnu. Veltan
hefur stóraukist milli ára og stefna
stjórnendur að því að Atlantis verði
skráð félag á hlutabréfamarkaði.
Óli Valur Steindórsson, forstjóri fé-
lagsins, segir rekstrarumhverfi á Ís-
landi hagstætt meðal annars vegna
lágra skatta. Að auki sé að finna mikla þekkingu og
skilning á rekstri sjávarútvegsfyrirtækja innan ís-
lensku bankanna, sem hafi skipt miklu máli í upp-
byggingu fyrirtækisins. Íslandsbanki lauk í miðjum
ágúst við endurfjármögnun lána Atlantis og safnaði
1,7 milljörðum króna í hlutafjárútboði.
Óli Valur segir hluthafa Atlantis vera um tuttugu
talsins og kaupendur hlutafjárins í útboði Íslands-
banka hefðu verið handvaldir. „Helsti flöskuhálsinn í
söluaukningu er aðgangur að fjármagni,“ segir hann
og hlutafjáraukningin gefi Atlantis slagkraft og
tækifæri til að byggja starfsemina
áfram upp. Helstu vaxtarbroddarnir
séu í laxeldi í Chile og túnfiskeldi í
Mexíkó fyrir Japansmarkað. Hvergi sé
borgað jafn hátt verð fyrir hágæða-
vöru.
Tekjur Atlantis voru um 7,6 millj-
arðar króna í fyrra og gera áætlanir
ráð fyrir því að þær verði rúmir ellefu
milljarðar á þessu ári og tæpir sextán
milljarðar króna á því næsta. Í upphafi
snerist starfsemin aðallega um kaup, sölu og dreif-
ingu sjávarafurða en undanfarið hafa sjálfar fram-
leiðslueiningarnar verið keyptar í skiptum fyrir
hlutabréf í samstæðunni. „Meira verður um slíkar
sameiningar í náinni framtíð,“ segir Óli Valur.
F R É T T I R V I K U N N A R
8 12-13 6
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Til verður stærsta einkarekna fyr-
irtækið á sviði heilbrigðisþjónustu
á Íslandi með sameiningu Liðsinn-
is Solarplexus (LSP) og Sögu
heilsu ehf. Sameinað fyrirtæki
tekur til starfa á morgun og verð-
ur Ásta Möller framkvæmda-
stjóri. Um 35 manns munu starfa
hjá LSP.
„Þessi tvö fyrirtæki hafa verið
hvort í sínum rekstrinum,“ út-
skýrir Ásta. Liðsinni hafi verið
með 25 hjúkrunarfræðinga á sín-
um vegum sem sinni tímabundn-
um verkefnum inni á heilbrigðis-
stofnunum, á læknastofum, heim-
ilum og fyrirtækjum. Þetta sé af-
leysingaþjónusta sem hafi létt
álag af starfsfólki stofnana í
manneklu. „Þá er gert samkomu-
lag um að við mönnum ákveðinn
fjölda vakta sem vantar fólk á.
Með þessu höfum við í rauninni
oft komið í veg fyrir að deildum sé
lokað. Þetta er því raunhæfur
kostur fyrir stofnanir til að halda
uppi þjónustu.“
Ásta segir að ráðgjafahlutinn
snúi að heilsuvernd í fyrirtækjum.
„Guðmundur Björnsson læknir og
stofnandi Sögu heilsu kemur þar
inn í með sína starfsemi. Þetta er
vinnuvernd í fyrirtækjum þar
sem boðið er upp á heilsufarsmæl-
ingar, lífstílsráðgjöf, næringar-
ráðgjöf, umsjón með heilsuvikum
og ýmislegt annað til þess að bæta
heilsu starfsmanna sem einstak-
linga og vinnustaðarins í heild,“
segir Ásta. Þá heldur Guðmundur
áfram að bjóða upp á trúnaðar-
lækningar fyrir fyrirtæki.
„Þetta er orðin mjög umfangs-
mikil starfsemi með fjölda starfs-
manna,“ segir Ásta.
Útrásarvísitalan lækkar:
Scribona
hækkar mest
Útrásarvísitalan lækkar um rúm
tvö prósent milli vikna og stend-
ur nú í 113 stigum. Gengi krón-
unnar styrktist, sem verður til
þess að Útrásarvísitalan lækkar
meira en gengi félaganna síðustu
viku.
Mest lækkaði gengi Decode í
vikunni, um 6,3 prósent. Þar á
eftir kemur finnska fjármálafyr-
irtækið Sampo, sem lækkaði um
fjögur prósent. Nokkur önnur fé-
lög lækkuðu um nokkur prósent.
Mest hækkaði gengi sænska
upplýsingatæknifyrirtækisins
Scribona, um tæp átta prósent.
Þar á eftir kemur French Conn-
ection, sem hækkaði um rúm
fjögur prósent. - dh / Sjá síðu 6
Byggja upp alþjóðlegt
sjávarútvegsfyrirtæki
Atlantis er vaxandi alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki með
höfuðstöðvar á Íslandi. Á vegum samstæðunnar eru sextán
starfsstöðvar í fjórtán löndum. Stjórnendur stefna á skrán-
ingu félagsins á hlutabréfamarkað.
Stærsta einkarekna fyrirtækið
í heilbrigðisþjónustu
Á morgun verður starfsemi Liðsinni Solarplexus og Sögu heilsu sameinuð.
ÞÓR SIGFÚSSON Framkvæmdastjóri
Verslunarráðs.
FJÖRÐURINN CUPQUELAN Í
CHILE Í Chile er laxinn alinn upp í
kvíum og stefnt að 20 þúsund
tonna uppskeru á næstu vertíð.