Fréttablaðið - 31.08.2005, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN6
Ú T L Ö N D
Samþjöppun á gasmarkaði
Jón Skaftason
skrifar
Alan Greenspan, seðlabankastjóri Bandaríkjanna,
telur verndarstefnu í viðskiptum og síaukinn fjár-
lagahalla stærstu hætturnar sem steðji að banda-
ríska hagkerfinu. Greenspan segir hvort tveggja
ógna sveigjanleika hagkerfisins sem Greenspan
telur til höfuðkosta þess.
Þetta kom fram í ræðu sem bankastjórinn hélt á
árlegum fundi seðlabankastjóra víðs vegar að úr
heiminum í Jackson Hole í Wyoming-ríki. Green-
span yfirgefur seðlabankann í janúar næstkom-
andi, eftir átján ár í starfi.
Greenspan hafði áður lýst áhyggjum sínum af
afleiðingum vaxtahækkana undanfarinna missera.
Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti skref fyrir
skref undanfarna tíu mánuði. Greenspan sagðist
óttast að hækkun stýrivaxta kynni að leiða til þess
að húsnæðismarkaður í landinu hrynji. Hann varði
þó hækkanirnar og sagði þær nauðsynlegar til þess
að koma í veg fyrir að hagkerfið ofhitnaði og verð-
bólga færi úr höndunum.
Olíufatið fór yfir sjötíu dali á mánudag eftir að
loka þurfti vinnslustöðum vegna fellibylsins
Katrínar sem reið yfir suðurríki Bandaríkjana.
Greenspan sagði hækkanir undanfarinna missera
þó ekki hafa afgerandi áhrif á hagkerfið: „Markaðs-
hagkerfi okkar er svo sveigjanlegt að olíuverðs-
hækkanir undanfarinna tveggja ára hafa ekki haft
teljandi áhrif. Það er því gríðarlega mikilvægt að
við töpum ekki þessum sveigjanleika.“
!" "
#! $%!&'" (#! ")*(++!$!,$ !
,- ( " "'.% /()0$#1 /(!! ! 2
0 " %$!( /1 !'3!$ (#%$!"!! 4
0//! 2, ()0 $/(1/! ("% (!( 4
" "'!$(*5('(" "
" " /! $ (67!#! &8"
1/!//! $ ! ! !$9( !( ! " "
" "#! #: !';("<
=-%!/"$ 4
( ! ( !" "/(! ( />- (2 !?<
=' !
(/"
;5+/(" "/ ! ($"!
*5( @/! AB!"C ( 4/%+'" "
/!"/(! /!($ -%!/"$ (
> DD7"1 /%! $0 !E"
( " "/(,#4" , % - 4
! 'F%!*5('(" "G
#! " "$/(#9 !/
A"( ! '7 !H6" ",$( $ ! /!/
) !, $ #(% /"$/!# # (@
1 # ) # "( $-$( ( (
! /! ! (,9$8'
."( !"'+((-(#> $ " "#: !(
"1!'!()0"///!"(/ !(
$%! ! '
!"
#
$ !"
Fyrirtæki Land Gengi Gjald- (Gengi Breyting
miðill gjaldmiðils)
BTC Búlgaría 11,17 Lev 39,65 2,88%
Carnegie Svíþjóð 87,75 SEK 8,34 -1,74%
Cherryföretag Svíþjóð 27,50 SEK 8,34 -3,64%
deCode Bandaríkin 9,48 USD 63,16 -6,31%
EasyJet Bretland 2,99 Pund 113,91 -1,45%
Finnair Finnland 9,23 EUR 77,65 -0,68%
French Connection Bretland 2,56 Pund 113,91 4,22%
Intrum Justitia Svíþjóð 64,00 SEK 8,34 0,22%
Keops Danmörk 14,67 DKR 10,41 -3,26%
Low & Bonar Bretland 1,14 Pund 113,91 -1,73%
NWF Bretland 5,46 Pund 113,91 -1,05%
Sampo Finnland 12,54 EUR 77,65 -4,03%
Saunalahti Finnland 2,62 EUR 77,65 0,41%
Scribona Svíþjóð 15,30 SEK 8,34 7,98%
Skandia Svíþjóð 41,30 SEK 8,34 -2,15%
Miðað við gengi bréfa og gjaldmiðla á mánudag
Ú T R Á S A R V Í S I T A L A 1 1 3 , 3 4 - 2 , 1 6 %
Franska gasfyrirtækið Gaz du
France hyggst leggja fram yfir-
tökutilboð í hið breska Centrica.
Markaðsvirði sameinaðs fyrir-
tækis yrði rúmir þrjú þúsund
milljarðar íslenskra króna.
Gas de France var lengst af í
eigu franska ríkisins en var
einkavætt fyrr á þessu ári. For-
svarsmenn fyrirtækisins eru
sagðir vilja nýta reynslu
Centrica af einkarekstri.
Orðrómur hefur lengi verið
uppi um að yfirtaka á Centrica
sé yfirvofandi og voru nöfn
rússneska gasfyritækisins
Gazprom og norska orkurisans
Norsk Hydro nefnd í því sam-
hengi.- jsk
BORAÐ EFTIR GASI
Franska gasfyrirtækið Gaz
du France hyggst taka yfir
hið breska Centrica.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP
Óttast fjárlagahalla
og verndarstefnu
Alan Greenspan sagði í ræðu að sveigjanleika bandaríska
hagkerfisins væri ógnað. Hann óttast hrun á húsnæðis-
markaði en ver þó stýrivaxtahækkanir seðlabankans.
ALAN GREENSPAN, SEÐLABANKASTJÓRI BANDARÍKJANNA Greenspan hélt ræðu á fundi seðlabankastjóra víðs vegar að úr heim-
inum sem fram fór í Wyoming-ríki. Greenspan sagði meðal annars hækkanir á olíuverði ekki hafa afgerandi áhrif á bandaríska hagkerfið.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP