Fréttablaðið - 31.08.2005, Page 32
Enn hefur ekki náðst samkomu-
lag milli mynddiskaframleiðenda
um það hvaða stefnu skuli taka í
gerð næstu kynslóðar dvd-
mynddiska.
Tvær gerðir mynddiska koma
til greina; hd-dvd sem framleidd-
ir eru af Toshiba og Bluray sem
hannaðir eru af Sony. Fyrirtækin
vilja fyrir alla muni koma í veg
fyrir að stríðið sem ríkti milli
VHS og Betamax-myndbands-
spóluframleiðenda á áttunda ára-
tugnum endurtaki sig.
Forsvarsmenn tæknirisanna
tveggja hafa undanfarna daga
setið sveittir við samningaborðið
og reynt að koma sér saman um
aðra hvora gerðina.
Gæði mynddiskanna eru
margföld á við þau gæði sem
gömlu dvd-diskarnir bjóða upp á.
Bluray-diskarnir hafa hins vegar
talsvert meira minni en hd-dvd
en á móti kemur að hd-dvd-disk-
arnir eru mun ódýrari í fram-
leiðslu.
Toshiba hyggst setja hd-dvd-
tæknina á markað fyrir lok árs
en Sony mun kynna Bluray sam-
fara nýrri Playstation 3 leikja-
tölvu sem áætlað er að komi út í
byrjun næsta árs.
Hvorugur aðilinn hefur þó úti-
lokað að samkomulag náist um
eina gerð mynddiska: „Við höfum
ekki sett nein tímamörk á um-
ræðurnar, það liggur hins vegar
ljóst fyrir að stöðugt skemmri
tími er til stefnu.“ - jsk
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN8
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Jón Skaftason
skrifar
Ríkisstjórn Kína hefur samþykkt ný lög sem eiga
að koma í veg fyrir að unnendur fjölþátttökuleikja
geti spilað í meira en þrjár klukkustundir sam-
fleytt.
Eftir þrjár klukkustundir fer geta persóna í
tölvuleikjunum minnkandi og eftir fimm klukku-
stundir verða þær nær dauða en lífi. Eina leiðin til
að fá persónurnar til að jafna sig er að taka sér
fimm stunda hlé frá tölvuleikjaspili. Tölvuleikja-
framleiðendur í landinu eru sáttir við nýju lögin,
og segjast taka heilsu almennings fram yfir eigin
hag.
Lögunum er ætlað að stemma stigu við sívax-
andi tölvuleikjaástríðu Kínverja en margir í land-
inu eiga beinlínis við fíkn að stríða þegar kemur að
leikjum á borð við World of Warcraft og Legend of
Mir II.
Tuttugu milljónir Kínverja spila fjölþátttöku-
leiki reglulega, flestir á þar til gerðum netkaffi-
húsum. Á síðasta ári eyddu kínverskir netnotendur
rúmum þrjátíu milljörðum króna í leiki á netinu.
Yfirvöld hafa haft áhyggjur af því að keyrt hafi
um þverbak; að margir hafi tapað sér við tölvu-
leikjaspil og lifi lífinu beinlínis gegnum tölvuna.
Kornið sem fyllti mælin var þó þegar maður, Quiu
Chengwei að nafni, myrti félaga sinn eftir þeir
höfðu deilt um eignarrétt á sverði sem aðeins er til
í tölvuleiknum Legend of Mir. Qui var síðar dæmd-
ur til dauða.
Rúmlega hundrað milljón netnotendur eru í
Kína.
Hömlur á tölvu-
leikjaspili í Kína
Ekki verður leyfilegt að spila fjölþátttökuleiki lengur en í
þrjár klukkustundir í senn samkvæmt nýjum kínverskum
lögum. Margir Kínverjar lifa lífinu í gegnum tölvuna.
NÝR TÖLVULEIKUR KYNNTUR Í CHENGDU Í KÍNA Fjölþátttökuleikir eru feikivinsælir í Kína. Ríkisstjórn landsins þykir nóg um og
hyggst refsa leikmönnum sem sitja lengur við en þrjár klukkustundir í senn.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP
Allt strand í mynddiskadeilu
Ekkert virðist þokast í samkomulagsátt í deilu Sony og Toshiba um næstu
kynslóðar mynddiska. Tveir kostir eru í stöðunni.
Harður diskur
fyrir DVD-spilara
Japanski raftækjaframleiðand-
inn Hitachi hefur kynnt DVD-
spilara með hörðum diski sem
getur geymt eitt terabæt af gögn-
um, eða sem samsvarar 128
klukkustundum af kvikmyndum í
hæsta gæðaflokki. Hægt verður
að fá diskana sér eða innbyggða í
DVD-spilara.
Hörðu diskarnir eru hinir
fyrstu sinnar tegundar í heimin-
um og koma á markað í Japan í
lok september. Hitachi hefur ver-
ið rekið með tapi síðan það hóf
innreið sína á DVD-markað í Jap-
an fyrir rúmu ári og hefur aðeins
þriggja prósenta markaðshlut-
deild. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær harði diskurinn frá
Hitachi kemur í evrópskar búðir.
- jsk
HARÐUR DISKUR FRÁ HITACHI DVD-
unnendur geta brátt geymt allt að 128
klukkustundir af efni inni á spilurum sínum.
Playboy á vefinn
Klámfíklar geta nú nálgast Playboy á stafrænu formi.
Playboy hyggst hefja útgáfu á
tímariti sínu í stafrænu formi
gegnum netið. Efni blaðsins
verður hið sama og í prentútgáf-
unni, sem í áraraðir hefur verið
leiðandi klámtímarit í heimin-
um.
Sala á Playboy hefur minnkað
undanfarin ár með auknum vin-
sældum klámvefsíða. Forsvars-
menn tímaritsins hafa hingað til
neitað að takast á við netvæðing-
una en þeim hefur nú snúist hug-
ur: „Þetta er næsta skref í þróun
Playboy-tímaritsins,“ sagði
Christie Hefner, stjórnarfor-
maður Playboy og dóttir klám-
kóngsins Hugh Hefner.
Markmiðið með útgáfu Play-
boy á stafrænu formi er að auka
auglýsingatekjur blaðsins og
breikka lesendahópinn. Hluta-
bréf í Playboy stóðu í stað eftir
að fréttirnar bárust. - jsk
Google færir út kvíarnar
Stærsta vefleitarforrit heims býður nú viðskipta-
vinum sínum að hringja á netinu. 250 milljarða
hlutafjáraukning varð í Google á dögunum.
Vinsælasta vefleitarforrit heims,
Google, hyggst bjóða viðskipta-
vinum sínum upp á ókeypis sím-
hringiforrit. Forritið nefnist
Google Talk og gerir notendum
með veffang hjá Google kleift að
spjalla í gegnum netið.
Með þessu hyggst Google fara
í beina samkeppni við önnur sím-
hringiforrit frá fyrirtækjum á
borð við Skype, Microsoft og Ya-
hoo. Sá galli er þó á að með forriti
Google verður aðeins hægt að
spjalla milli tölva en ekki milli
tölvu og síma.
Talið er að eftirspurn eftir
símhringiforritum á netinu eigi
eftir að margfaldast á næstu
misserum. Símtöl eru margfalt
ódýrari gegnum netið auk þess
sem háhraða internettengingar
gera fólki kleift að hringja milli
heimshluta á sekúndubrotum.
Búist hafði verið við þessu út-
spili frá Google en gefið hafði
verið út að frekari fjárfestingar
væru á döfinni eftir að hlutafé í
félaginu var aukið um 250 millj-
arða króna. - jsk
GOOGLE TALK Forritið gerir notendum
með veffang hjá Google kleift að hringja
milli tölva. Google ræðst með þessu gegn
fyrirtækjum á borð við Microsoft og Skype,
sem hafa hingað til verið ráðandi á mark-
aðnum.
Finna sársauka
eftir 30 vikur
Fóstur byrja að finna til á þrítugustu viku meðgöngu.
Uppgötvunin setur allt í háaloft í Bandaríkjunum.
Fóstur finna ekki til sársauka fyrr en á
þrítugustu viku meðgöngu, segir í
nýrri bandarískri rannsókn. Sam-
kvæmt rannsókninni myndast svæðið í
heilanum sem skynjar sársauka ekki
fyrr en eftir 23 til 30 vikur og verður
ekki virkt fyrr en töluvert síðar á með-
göngunni.
Rannsóknin er einstaklega umdeild
í Bandaríkjunum, þar sem mikil and-
staða er við fóstureyðingar. Sam-
kvæmt lögum í mörgum ríkjum
Bandaríkjanna ber lækni að tilkynna konu sem óskar eftir fóstur-
eyðingu eftir tuttugu vikur meðgöngu að fóstrið finni til. Þá er lækn-
um skylt að sprauta fóstur með sársaukadeyfandi lyfjum.
„Þetta hefur verið rannsakað í tvö ár og alltaf er niðurstaðan sú
sama, fóstur finna ekki til fyrr en eftir þrjátíu vikur í móðurkviði,“
sagði Wendy Chavkin, yfirmaður samtakanna Læknar til stuðnings
fóstureyðingum.
Chavkin bætti síðan við: „Lög um fóstureyðingar snúast ekki um
læknavísindi né heilbrigði landsmanna, heldur pólitík og hugmynda-
fræði.“ - jsk
FÓSTUR Það svæði sem skynjar
sársauka verður ekki virkt fyrr en í
fyrsta lagi á þrítugustu viku með-
göngu.
HD-DVD MYNDDISKUR Hd-dvd diskarnir eru með þrjátíu gígabæta minni en Bluray með
fimmtíu gígabæta. Hd-dvd eru hins vegar mun ódýrari í framleiðslu. Framleiðendur virðast
þó ekki geta komið sér saman um hvor tegundin sé framtíðin í mynddiskaiðnaði.