Fréttablaðið - 31.08.2005, Side 33
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Breski fjarskiptarisinn British
Telecom (BT) hyggst bjóða í út-
sendingarétt á leikjum úr ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu
árið 2007.
Rétturinn hefur verið í eigu
BSkyB frá stofnun deildarinnar
árið 1992. Evrópsk samkeppnis-
yfirvöld hafa hins vegar gert at-
hugasemdir við yfirburðastöðu
Sky á markaðnum og telja að
engin ein stöð eigi að sýna meira
en helming leikja deildarinnar.
Lagt er til að rétturinn verði seld-
ur í fernu lagi.
BT hefur nýverið sett á lagg-
irnar ADSL-sjónvarpsþjónustu
og er áætlað að útsendingar muni
nást á hverju einasta heimili í
Bretlandi innan fjögurra ára.
Fyrirtækið hyggst leggja áherslu
á umfjöllun um knattspyrnu og
senda út leiki víðs vegar að úr
Evrópu. - jsk
Nær BT boltanum
af Sky?
Engin ein stöð má sýna meira en helming
leikja ensku úrvalsdeildarinnar.
Bandarískir vísindamenn við
Texas-háskóla segjast hafa
fundið gen sem ræður ævilengd
músa. Með því að örva starf-
semi gensins, sem nefnist Klot-
ho, mátti lengja meðalævilengd
tilraunamúsa úr tveimur
árum í þrjú.
Þar sem mannfólk hef-
ur sama gen vonast vís-
indamennirnir til þess að
örvun gensins hafi sömu
afleiðingar fyrir mann-
fólkið: „Þetta er
s t ó r k o s t l e g
uppgötvun og
fyrsta skrefið
í því að lengja
meðallíftíma
mannfólks,“ sagði dr. Mokoto
Kuroo, sem leiddi rannsóknina.
Sá böggull fylgdi þó skamm-
rifi að frjósemi músanna virt-
ist hraka þegar átt var við gen-
ið. - jsk
Ung að eilífu?
TILRAUNAMÝS Vísinda-
menn segjast nú hafa náð að
lengja líftíma músa
með því að
eiga við
aldurs-
gen.
LAUREN LEIKMAÐUR ARSENAL OG „FÉLAGI“ BT ætlar sér að bjóða í útsendingarétt
á ensku úrvalsdeildinni þegar núgildandi samningur rennur út. Það er ekki furða að réttur-
inn sé eftirsóttur enda alltaf nóg um furðulegar uppákomur í enska boltanum.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
et
ty
Im
ag
es
Sjónvarpsefni BBC á netið
BBC, breska ríkisútvarpið,
hyggst hefja sjónvarpsútsend-
ingar á netinu. Settur verður á
laggirnar svokallaður MyBBC-
Player sem gerir notendum kleift
að hala niður allt að sjö daga
sjónvarpsefni af vef BBC.
„Ef við aðlögumst ekki nýjum
tímum mun stofnunin hvorki fá
né eiga skilið framlög frá rík-
inu“, sagði Mark Thompson yfir-
maður BBC. Thompson bætti því
svo við að hægt yrði að kaupa þá
tónlist sem fólk heyrir á út-
varpsstöðvum BBC í gegnum
vefsíðu stofnunarinnar: „Það
væri fáránlegt ef fólk gæti ekki
nálgast efnið sem það sér eða
heyrir á vefsíðu okkar. Við lifum
á tímum iPoda og stafrænnar
tækni.“ - jsk