Fréttablaðið - 31.08.2005, Blaðsíða 34
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN10
F R É T T A S K Ý R I N G
Þau sjávarútvegsfélög sem birta uppgjör sín
í Kauphöll Íslands búa við erfiðar aðstæður
þessa dagana hvort sem er við veiðar eða
vinnslu, enda hafa rekstrarskilyrði sjaldan
verið erfiðari en einmitt nú um stundir. Það
sama gildir auðvitað um önnur útgerðarfyrir-
tæki; hátt olíuverð, launaskrið á almennum
vinnumarkaði og sterkari króna gera þeim
lífið leitt.
Þá hafa veiðar á uppsjávarfiski gengið
treglega, nær engar loðnuveiðar hafa verið í
sumar og lítil veiði á kolmunna.
LÆKKANDI FRAMLEGÐ
HB Grandi, annað af tveimur útgerðarfélög-
um sem er skráð í Kauphöllina, skilaði 414
milljóna króna tapi á öðrum ársfjórðungi sem
var nokkuð í takt við væntingar markaðsað-
ila. Velta félagsins hefur verið að aukast
vegna hækkandi afurðaverðs á bolfiski og
var 2,7 milljarðar á fjórðungnum. Það var
töluvert hærri upphæð en spáð hafði verið. Á
móti var hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBITDA), tala sem mikið er horft
til þegar meta á árangur sjávarútvegsfélaga,
nokkru lægri en búist hafði verið við.
EBITDA-hagnaður var 355 milljónir og fram-
legðarhlutfallið (EBITDA) um þrettán pró-
sent af tekjum samanborið við sautján pró-
sent á öðrum ársfjórðungi árið 2004.
„Lægra EBITDA hlutfall ræðst af hærri
olíukostnaði útgerðar, kostnaði við upphaf
veiða Engeyjar og erfiðu rekstrarumhverfi
landvinnslu vegna sterks gengis krónunnar.
Þannig lækkaði meðalgengisvísitala krón-
unnar um 9,2% á öðrum ársfjórðungi saman-
borið við sama tímabil árið áður,“ segir í til-
kynningu frá HB Granda.
GENGIÐ, OLÍAN OG LAUNASKRIÐ
Samherji, sem var afskráður í lok júlí, hagn-
aðist um 390 milljónir króna á sama tíma.
Söluhagnaður af fiskimjölsverksmiðju og
fiskiskipum nam 560 milljónum króna og því
hefði orðið tap á rekstrinum hefði þessi liður
ekki komið til. Framlegðarhlutfallið var um
13,5 prósent. Stjórnendur Samherja segja
ljóst að „mjög sterkt gengi krónunnar og
launaskrið í kjölfar þenslu á vinnumarkaði
mun hafa neikvæð áhrif á rekstur útflutn-
ingsfyrirtækja. Því má gera ráð fyrir að af-
koma félagsins af reglulegri starfsemi á síð-
ari hluta ársins markist af því“.
Síldarvinnslan, sem er að helmingi í eigu
Samherja, skilaði 722 milljónum króna í
hagnað á fyrri hluta árs og spilar söluhagnað-
ur þar stóra rullu. Félagið birtir ekki tölur
fyrir hvor fjórðung fyrir sig. Hjá stjórnend-
um fyrirtækisins kveður við svipaðan tón og
hjá öðrum útgerðarmönnum. „Það er í raun
komið að þeim tímapunkti nú þegar í
nokkrum veiðiflokkum að það borgar sig ekki
að stunda þær veiðar,“ sagði Björgólfur Jó-
hannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar, við
Fréttablaðið á dögunum og kennir háu olíu-
verði um stöðu útvegsins. „Ef við tökum
kolmunnaveiðar sem dæmi þá er verðið það
lágt að þær veiðar sem við stundum í dag eru
á mörkunum að borga sig ...“
ENGAR LOÐNUVEIÐAR Í SUMAR
Vinnslustöðin, hitt útgerðarfélagið sem er
eftir á markaði, skilaði aðeins fjögurra millj-
óna króna hagnaði á öðrum fjórðungi en um
180 milljónum króna á sama tíma fyrir ári.
Framlegð var 217 milljónir á síðasta ársfjórð-
ungi eða 17,3 prósent af tekjum. Stjórnendur
félagsins kenna háu olíuverði, dræmri
kolmunnaveiði og engri loðuveiði i sumar um
að áætlanir félagsins, um einn milljarðs
króna EBITDA-hagnað á árinu, verði ekki að
veruleika. Vinnslustöðin ræður um tíu pró-
sentum af loðnu- og síldarkvótanum á Ís-
landsmiðum og því mun lítil loðnuveiði hafa
neikvæð áhrif á reksturinn.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, seg-
ir að olíukostnaður hafi líklega hækkað um
helming á einu ári. „Á öllum vígstöðum er
kostnaður að aukast en tekjurnar að dragast
saman. Það sem bjargar er að fiskverð í
erlendri mynt hefur hækkað og vegur það á
móti styrkingu krónunnar,“ segir hann.
BERJAST Í BÖKKUM
Þetta leiðir hugann að stöðu landvinnslunnar
á Íslandi. Rekstrarumhverfið er afar erfitt
um þessar mundir vegna hás gengis krónunn-
ar og margir spyrja hvort hún sé að leggjast
af á ýmsum svæðum. Samherji hefur tilkynnt
um lokun landvinnslu á Stöðvarfirði í byrjun
september og ætlar að sameina hana við land-
vinnsluna á Dalvík en einnig hefur samdrátt-
ur verið boðaður hjá fiskvinnslufyrirtækinu
Bílddælingi á Bíldudal.
„Við höfum orðið vör við það sérstaklega
síðustu mánuði þegar styrking krónunnar er
orðin þetta langvinn og skilaverð fyrir afurð-
irnir ýmist stendur í stað í krónum eða hefur
farið lækkandi, að fyrirtæki sem stóðu ekki
beinlínis vel fyrir þessa þróun, eru farin að
láta undan síga. Fyrirtæki, sem hafa kannski
átt í erfiðleikum, gefa eftir og geta jafnvel
farið í gjaldþrot. Stærri fyrirtæki hafa heldur
dregið úr framleiðslunni og maður hefur orð-
ið sérstaklega var við þetta í rækjuframleiðsl-
unni,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva.
Arnar segir jafnframt að stjórnendur fisk-
vinnslustöðva beri sig frekar illa – og sumir
mjög illa – ekki síst þar sem tími sterkrar
krónur er orðinn svo langur. „Þetta eru orðnir
svo margir mánuðir sem gengisvísitalan hef-
ur verið í kringum 110. Spár fyrir ári síðan
gerðu ráð fyrir að vísitalan yrði í dag í 120 til
125.“
FLYTJA ÚT FISK
„Staðan er grafalvarleg hjá okkur sem erum
að basla í því að veiða og vinna fisk. Afkoma
útgerðarinnar hefur versnað en ekkert í lík-
ingu við það sem hefur gerst í fiskvinnslunni.
Við höfum verið að flytja sífellt meira út af
ferskum fiski í gámum. Tökum karfa sem
dæmi. Skilaverð á ferskum karfa er kannski
rúmar 100 krónur á markaði úti en 80-90 krón-
ur fyrir unna vörur hér á landi, miðað við
heilan fisk. Þá áttu allan vinnslukostnað eftir,“
segir Sigurgeir Brynjar hjá Vinnslustöðinni.
Hvarvetna hefur þróunin verið sú að stór-
um fiskvinnslustöðvum hefur fækkað jafnt og
þétt. Í Noregi eru um níu stór frystihús en
voru 56 árið 1998. Árið 1993 voru ellefu stórar
stöðvar í Danmörku en nú eru þær aðeins
tvær. Færeyingar hafa sameinað starfsemina
og lagt sumar stöðvar niður. Á Íslandi hefur
stóru fiskvinnslustöðvunum fækkað um fjórð-
ung á undanförnum áratug og telur Arnar að
fyrirtæki, í stærðargráðu sem eitthvað ber á,
séu 70-100 talsins.
Með tilkomu fiskmarkaða breyttist rekstr-
arumhverfi fiskvinnslustöðva. Stóru stöðvarn-
ar hafa stækkað en miðlungs fiskvinnslustöðv-
ar hefur fækkað verulega. Litlum og sérhæfð-
um fiskvinnslufyrirtækjum hefur hins vegar
fjölgað.
Arnar segir að þróunin hafi að mörgu leyti
orðið sú sem menn spáðu. „Það má hins vegar
ekki gleyma því að fyrirtæki hafa verið að ná
góðum árangri í því umhverfi sem við búum
við. Fyrirtækin hafa verið að ná niður hlut-
fallslegum launakostnaði með tækninýjungum
og orðið vel ágengt. Sem betur fer voru menn
snemma á ferðinni.“
Krónan og olían valda verkjum
Það er þungbúið yfir útgerðinni. Hefðbundinn rekstur í veiðum og vinnslu hefur sjaldan verið
erfiðari. Eggert Þór Aðalsteinsson leit yfir nýleg uppgjör sjávarútvegsfélaga og
kannaði aðstæður í landvinnslunni.
MIKILVÆG ATVINNUGREIN Á LANDS-
BYGGÐINNI Hætt er við að mörg fisk-
vinnslufyrirtæki leggi upp laupana haldist
krónan áfram sterk. Hátt olíuverð kemur
svo niður á útgerðarhlutanum. Á móti hef-
ur afurðaverð í flestum flokkum verið hátt á
árinu sem hjálpar til.
▲
HART Í ÁRI Í FISKVINNSLU Sterk króna hefur valdið
þungum búsifjum í landvinnslunni og er eina leiðin að
draga úr kostnaði sem er að miklu leyti launakostnaður.
ARNAR SIGURMUNDSSON,
FORMAÐUR SAMTAKA FISK-
VINNSLUSTÖÐVA Erfið staða í
landvinnslunni og margir stjórn-
endur bera sig illa. Staða krón-
unnar er mun sterkari nú en
menn spáðu fyrir ári.
SIGURGEIR BRYNJAR KRIST-
GEIRSSON, HJÁ VINNSLU-
STÖÐINNI Olíuverð útgerðar-
innar hefur hækkað um helming
á einu ári. Staða útgerðarinnar
er ekki í líkingu við ástandið í
landvinnslunni.