Fréttablaðið - 31.08.2005, Síða 37
hefur fjölgað hratt. Við yfirtöku á sölu og
framleiðslueiningum hafa eigendur fengið
hlutabréf í Atlantis.
Þó stór hluti starfseminnar byggi á fram-
leiðslu og sölu á túnfiski og laxi segir Óli þá
vera nokkuð stóra í sölu Nílarkarfa frá Afr-
íku, eins og áður sagði. Þá stunda þeir þorsk-
eldi í litlum mæli í Noregi ásamt framleiðslu
á hörpudiski. Einnig er fyrirtækið í samstarfi
við vinnslu í Kína á hvítfiski, sem er ekki eins
verðmætur og hinar tegundirnar. Samhliða
þessu er sölu og dreifingarkerfi þeirra víð-
feðmt sem nýtt er til að vinna ný lönd og nýja
markaði.
VILJA STÆKKA ENN MEIRA
Áframhaldandi uppbygging mun felast í
kaupum á framleiðslufyrirtækjum og öflugri
markaðsstöðu á helstu mörkuðum Atlantis.
Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um
að byggja frystivörugeymslu í Kína með frek-
ari dreifingu afurða í Asíu. Í Chile er mark-
miðið að hoppa úr öðru sæti í það fyrsta sem
helsti útflutningsaðili á laxi með um 25 pró-
senta markaðshlutdeild í Japan. Stækka á eldi
túnfisks í Mexíkó ásamt framleiðslu á sardine
í beitu og öðrum afurðum. Stefnt er að frekari
markaðssókn í Bandaríkjunum og Japan og að
styrkja stöðu félagsins í fiskeldi í Ástralíu.
Aðspurður segir Óli Valur að eigendur fyr-
irtækisins stefni að því að Atlantis fari á
markað í framtíðinni. Þeir vilji þó fara sér
hægt á meðan verið er að byggja upp fyrir-
tækið með því starfsfólki sem nú er. Verið sé
að fjölga starfsfólki hjá móðurfélaginu á Ís-
landi til að sinna auknum verkefnum, en hver
eining sé svo rekin sjálfstæð. Styrkur félags-
ins liggi í hinum unga og kraftmikla hópi fólks
sem haldi uppi framleiðslu og öflugu sölu-
kerfi. „Síðan kemur hitt hægt og rólega ef guð
lofar,“ segir hann hógvær.
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 13
Ú T T E K T
FJÖRÐURINN SEM ATLANTIS RÆÐUR YFIR Í CHILE HEITIR CUPQUELAN. Strandlengjan er 62 kílómetra löng. Þar er lax og urriði alinn við kjöraðstæður, segir Óli Valur Stein-
dórsson. Fyrst eru seiðin höfð næst landi, þar sem seltustigið er lítið vegna mikils ferskvatns sem rennur í fjörðinn. Þegar seiðin eldast eru kvíarnar dregnar lengra út á fjörðinn.
eldi fyrir Japansmarkað
Stoðirnar í rekstri
Atlantis eru vinnsla
og sala á laxi og
túnfiski. Japans-
markaður er mikil-
vægasti markaður
fyrirtækisins þar
sem hátt verð fæst
fyrir hágæðavöru.
Óli Valur segir að
ef menn spjari sig
á þeim markaði
komist þeir af á
öllum öðrum mörk-
uðum heimsins.
TÚNFISKURINN er fangaður á hafi
úti og settur í kvíar.
KVÍARNAR eru dregnar hægt mörg
hundruð mílur nær landi.
EFTIR AÐ HAFA verið alinn í hálft til
eitt ár er túnfiskinum slátrað.
KAFARAR smala túnfiskinum saman
og taka hvern fisk fyrir sig upp.
AFURÐIN er hágæðafiskur sem not-
aður er meðal annars í sushi-rétti.
Eigendur Atlantis tóku þá ákvörðun á þessu
ári að höfuðstöðvar samstæðunnar yrðu á
Íslandi. Aðspurður um ástæðuna segir Óli
Valur Steindórsson forstjóri félagsins að
hér sé hagkvæmt að reka fyrirtæki, meðal
annars vegna lágra skatta. Því muni hagnað-
ur fyrirtækisins myndast hér á landi. Um
fimmtán manns vinni á skrifstofunni en aðr-
ir starfsmenn verði á starfsstöðvum erlend-
is.
Óli leggur líka þunga áherslu á að innan
bankanna hér á landi sé að finna mikla þekk-
ingu og skilning á rekstri sjávarútvegsfyrir-
tækja. Erlendis sé ekki eins eftirsóknarvert
hjá bönkum að taka þátt í slíkri starfsemi.
Þetta hafi hjálpað stjórnendum Atlantis að
byggja upp fyrirtækið og hefur Íslands-
banki meðal annars séð um endurfjármögn-
un og hlutafjáraukningu félagsins. Bankarn-
ir séu alþjóðleg fyrirtæki sem séu í sumum
tilvikum með starfsemi í sömu löndum og
Atlantis.
Skattar lágir á Íslandi