Fréttablaðið - 31.08.2005, Page 41
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 17
S K O Ð U N
Greiningardeild Íslandsbanka
spáir 0,5 prósenta vaxtahækkun
29. september næstkomandi og
verða vextir bankans þá komnir
í 10 prósent. Bankinn hefur þá
hækkað stýrivexti sína um 4,4
prósentustig á rétt rúmu ári eða
frá því að vaxtahækkunarferill
bankans hófst í maí í fyrra.
Verðbólga hefur aukist mikið
síðustu tvo mánuði og útlit er
fyrir að bankinn missi hana aft-
ur út fyrir efri þolmörk peninga-
stefnunnar, sem eru fjögur pró-
sent, í september.
Seðlabankinn sagði samhliða
síðustu vaxtahækkun að frekari
aðhaldsaðgerða kynni að verða
þörf. Í spá greiningardeilda Ís-
landsbanka segir að óvissa spár-
innar um 10 prósenta stýrivexti
virðist nú liggja fremur í þá átt
að bankinn muni hækka vexti
meira á næstunni þar sem verð-
bólguhorfur gætu versnað.
Greiningardeild Íslandsbanka
spáði einnig fyrir gengi krón-
unnar nýlega og er gert ráð fyr-
ir að gengi krónunnar fari ekki
að lækka fyrr en síðla næsta árs.
Í spá Íslandsbanka segir að verð-
bólgan sé núna einkum drifin
áfram af verðhækkun íbúða og
eldsneytis sem stýrivextir virð-
ist bíta lítið á eða ekkert. Gengi
krónunnar hafi hins vegar haldið
aftur af hækkun innflutnings-
verðlags og komið í veg fyrir
enn meiri verðbólgu.
„Skoðun okkar er óbreytt um
að gengisvísitalan muni sveifl-
ast í kringum 110 stig það sem
eftir er ársins eða á bilinu 105 til
115 stig sem við teljum að sé
Seðlabankanum þóknanlegt mið-
að við efnahagshorfur. Mikill
munur innlendra og erlendra
vaxta ásamt horfum í efnahags-
málum mun áfram hvetja til
stöðutöku með krónunni. Ólík-
legt er að krónan muni lækka
svo miklu nemi fyrr en á síðari
hluta næsta árs og fram á árið
2007. Mikill viðskiptahalli gref-
ur þá undan henni. Fari verð-
bólgan yfir þolmörkin í septem-
ber má reikna með að gengi
krónunnar standi í stað eða
hækki meira fram að útgáfu
Peningamála í lok mánaðarins,
en gengið hefur þegar hækkað
vegna aukinnar verðbólguhættu.
Framhaldið ræðst ekki síst af
skilaboðum Seðlabankans,“ seg-
ir í spá Íslandsbanka.
Hafðu samband við fyrirtækjaráðgjöf Og Vodafone í síma 599 9500 eða sendu tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
89
38
07
/2
00
5
Er einhver í þínu fyrirtæki
sem heldur að skást sé best?
Ég er ennþá á því að nóg sé eftir
í veislunni á hlutabréfamarkaði.
Ekki skemmdi fyrir þegar
helstu stjórnendur og lykil-
starfsmenn KB banka keyptu
hluti í bankanum með framvirk-
um samningum. Ég hélt reyndar
að menn myndu bíða með að
kaupa og hækka með því verðið
á bankanum, þar til búið væri að
koma hlutum til erlendra fjár-
festa sem væri þá gefinn kostur
á uppsveiflu eftir að þeir
keyptu.
Niðurstaðan sem ég kemst að
er að stjórnendur bankans telji
að nóg verði eftir handa erlendu
fjárfestunum sem Hreiðar Már
er að kynna bankann fyrir þessa
dagana. Fyrir mig sem útsjónar-
saman fjárfesti eru skilaboðin
mikilvæg. Ég reikna með að
framvirki samningurinn sem KB
bankamenn tóku hafi verið mið-
aður við gjaldeyriskörfu. Það
þýðir að menn búast ekki við því
að krónan sé að fara að gefa eft-
ir á næstunni. Þeir eru reyndar
ekki einir um þá skoðun. Ég var
byrjaður að létta á erlendum lán-
um hjá mér á móti hlutabréfum,
en er farinn að auka þau aftur.
Þrátt fyrir að það sé traustvekj-
andi að lykilstarfsmenn hafi
keypt í bankanum er það líklega
ekki nóg til að lyfta bankanum
mikið. Til þess er hann of stór á
íslenska markaðnum. Sem lang-
tímafjárfesting er hann frábær.
Maður getur flutt til Grikklands
og látið bankann vinna fyrir sér
um ókomin ár. En hver nennir
því? Hins vegar er almennt ekki
sniðugt að mínu mati að stjórn-
endur séu að taka skammtíma-
stöður í fyrirtækjum sínum, en
ég reikna með að samningurinn
verði framlengdur þegar hann
rennur út og að þeir hugsi til
langs tíma.
Til skamms tíma veðja ég
frekar á að Landsbankinn muni
hækka ef stjórnendurnir loksins
finna eitthvað sæmilega stórt til
að kaupa. Gömlu Eimskipafé-
lagshluthafarnir eru frekar
íhaldssamir. Nú fá þeir bréf í
Landsbankanum og Straumi í
skiptum fyrir bréfin í Burðarási.
Ég held að margir þeirra selji
Straumsbréfin og eigi frekar
fleiri bréf í Landsbankanum.
Miðað við hvað maður sá á aðal-
fundum Burðaráss býst ég við að
þeir vilji frekar drekka kaffi með
eldri Björgólfnum á aðalfundi.
Þeir sem á annað borð hreyfa
eitthvað bréfin sín. Ég spái því
tímabundnum söluþrýstingi á
Straum en kaupþrýstingi á
Landsbankann. Þarna eru þá
komnar tvær ástæður fyrir því
að taka stöðu í Landsbankanum
og líklegra að sú fyrri gefi alvöru
uppsveiflu.
Alla vega er á hreinu að bank-
arnir eru ekki hættir að hækka.
Ég á auðvitað í þeim öllum, en
maður stillir upp hlutföllunum
eftir því sem vænlegast er
hverju sinni. Þess vegna sigrar
maður markaðinn trekk í trekk.
Spákaupmaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N
Í spá Íslandsbanka segir að verðbólgan sé núna einkum drifin áfram af verð-
hækkun íbúða og eldsneytis sem stýrivextir virðist bíta lítið á eða ekkert.
Gengi krónunnar hafi hins vegar haldið aftur af hækkun innflutningsverðlags
og komið í veg fyrir enn meiri verðbólgu.
Veislan heldur áfram
Stýrivextir yfir 10 prósent?
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ei
ða