Fréttablaðið - 31.08.2005, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN20
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslands-
banka, hljóp heilt maraþon í Reykjavíkur-
maraþoni Íslandsbanka. Tími Bjarna var
fjórar klukkustundir og ein og hálf mínúta
og var hann ánægður með árangurinn.
Tómas, ellefu ára sonur Bjarna, hljóp með
honum um fimm kílómetra leið til að
styðja við bakið á pabba sínum á loka-
sprettinum.
Íslandsbanki hvatti sérstaklega starfs-
menn sína til að taka þátt þar sem bankinn
er aðalstyrktaraðili Íslandsbanka Reykja-
víkurmaraþons. Mjög góðar undirtektir
voru meðal starfsmanna og hófu margir
undirbúning snemma í sumar. Þegar uppi
var staðið luku 133 starfsmenn hlaupinu.
74 starfsmenn hlupu skemmtiskokk, 46
hlupu tíu kílómetra og tólf hlupu hálft
maraþon. Auk Bjarna hlupu tveir aðrir
starfsmenn bankans heilt maraþon, þeir
Magnús Pálmi Örnólfsson og Jón Ingi
Árnason.
Forsvarsmenn Íslandsbanka voru mjög
ánægðir með heildarþátttöku í hlaupinu
enda þátttökumet slegið í öllum vega-
lengdum hlaupsins. „Það var afar ánægju-
legt að sjá hve margir tóku þátt í ár og nú
er að halda áfram því góða starfi sem
Reykjavíkurmaraþon heldur úti,“ sagði
Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslands-
banka. „Markmið okkar með styrknum er
að efla áhuga almennings á hlaupi og
hvetja til þátttöku. Því var einstaklega
gaman að sjá að það voru ekki aðeins
hlauparnir sjálfir sem tóku þátt í hlaupinu
heldur fjöldinn allur af stuðningsmönnum
og áhorfendum.“
Yfir hundrað starfsmenn
Íslandsbanka tóku þátt í
Reykjavíkurmaraþoni
Forstjórinn lauk heilu maraþoni á fjórum klukkustundum.
SKJALASKÁPAR
ÓLAFUR GÍSLASON & CO HF
Sundaborg 3 • sími 568 4800
www.olafurgislason.is
SKJALAPOKAR OG MILLIMÖPPUR
-og allt á sínum stað!
B B2 ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR VIÐSKIPTALÍFSINS Auglýsingasími 550 5000
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
HLJÓP
MARAÞONIÐ
Bjarni Ár-
mannsson,
forstjóri Ís-
landsbanka,
ásamt Tómasi
syni sínum.
YFIR HUNDRAÐ STARFSMENN ÍSLANDSBANKA HLUPU Þátttökumet var slegið á öllum vegalengdum.
KOMINN Í
MARK Eftir
fjórar klukku-
stundir og
eina og hálfa
mínútu á
hlaupum.