Fréttablaðið - 31.08.2005, Qupperneq 60
Geta má nærri að stór hluti Ís-
lendinga eigi í fórum sínum Nýja
testamentið sem þeir fengu að
gjöf frá Gídeonfélaginu á unga
aldri.
Sextíu ár eru frá stofnun Gíd-
eonfélagsins á Íslandi en það hef-
ur frá árinu 1954 fært einum eða
fleiri árgöngum í grunnskólum
landsins Nýja testamentið að
gjöf.
„Gídeonfélagið á Ísland var
stofnað af sautján verslunar-
mönnum fyrir tilstilli Kristins
Guðnasonar sem fluttist ungur að
árum til Bandaríkjanna. Honum
fannst hann geta skilað einhverju
til þjóðarinnar með því að stofna
Gídeonfélag hér sem hefði það að
markmiði að dreifa guðsorði,“
segir Sigurður Þ. Gústafsson
framkvæmdastjóri félagsins og
félagi í hreyfingunni í 46 ár.
Hreyfingin var stofnuð í
Bandaríkjunum árið 1899, barst
til Kanada árið 1911 og síðan til
Íslands árið 1945. Ísland var því
þriðja aðildarlandið en í dag eru
Gídeonfélög starfandi í 180 lönd-
um.
Starfsemin á Íslandi fór hægt
af stað að sögn Sigurðar en meg-
inmarkmið félagsins var að vinna
fólk til trúar á Jesú Krist.
Fyrstu Biblíurnar sem félag-
ið dreifði voru á Hótel Borg árið
1949. Fyrir utan það að gefa öll-
um skólabörnum Nýja testa-
mentið er ritið afhent öllum
hjúkrunarfræðingum og sjúkra-
liðum við útskrift. Þá hefur því
verið dreift á dvalarheimili aldr-
aðra í stærra broti, í fangelsi, á
hótel og víðar.
Fyrstu árin naut félagið fjár-
stuðnings erlendis frá en síðustu
þrjá áratugi hefur það verið
sjálfu sér nægt og að auki veitt
styrki í Alþjóða Biblíusjóðinn en
160 af þeim 180 löndum sem eru
aðilar að félaginu þurfa á fjár-
stuðningi að halda. Fjáröflun fer
fram bæði innan félagsins auk
þess sem leitað er til velunnara.
Sigurður telur að áhugi á fé-
laginu í dag sé ekki síðri en í
upphafi. „Þetta félag er að því
leyti sérstakt innan kristninnar
að það er ekki bundið við neina
kirkjudeild heldur eru þar ein-
staklingar frá hinum ýmsu söfn-
uðum,“ segir Sigurður en tæp-
lega 250 manns starfa í Gídeon-
félaginu víða um land. Síðar í
september munu allir félags-
menn koma saman og fagna af-
mæli félagsins.■
20 31. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
DÍANA PRINSESSA (1961-1997)
lést á þessum degi.
Dreifðu fyrstu Biblíunum
á herbergi Hótel Borgar
GÍDEONFÉLAGIÐ Á ÍSLANDI HELDUR UPP Á 60 ÁRA AFMÆLI:
„Sá sem er hamingjusamur
getur fyrirgefið margt.“
Díana prinsessa af Wales lést í umferðarslysi
langt fyrir aldur fram.
timamot@frettabladid.is
LEI‹RÉTTING
Afsteypa af verkinu Vetur eftir
Ásmund Sveinsson myndhöggv-
ara er til sölu í safnverslunum
Listasafns Reykjavíkur en ekki í
Listasafni Íslands eins og misrit-
aðist í blaðinu í gær.
ANDLÁT
Birna Eyjólfsdóttir, Áshamri 28, Vest-
mannaeyjum, lést mánudaginn 22.
ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Kristín Guðlaugsdóttir, dvalarheimilinu
Hlíð, Akureyri, andaðist fimmtudaginn
25. ágúst.
Sigurður Guðmundsson, Hamraborg
30, Kópavogi, lést á Landspítalanum,
Fossvogi, fimmtudaginn 25. ágúst.
Stefán G. Guðmundsson, frá Vopna-
firði, lést á heimili sínu í Reykjavík föstu-
daginn 26. ágúst.
Sævar Tryggvason, Ásgarði 24a, Reykja-
vík, lést á Landspítalanum við Hring-
braut föstudaginn 26. ágúst.
Sesselja Margrét Magnúsdóttir, Faxa-
skjóli 18, Reykjavík, andaðist á heimili
sínu sunnudaginn 28. ágúst.
Sigurður Jónsson, forstjóri, Jófríðar-
staðavegi 13, Hafnarfirði, andaðist á
Landspítalanum Fossvogi mánudaginn
29. ágúst.
AFMÆLI
Vernharður Linnet djass-
geggjari er 61 árs.
Olga Guðrún Árnadóttir
rithöfundur er 52 ára.
Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Fé-
lags fasteignasala, er 39 ára.
Sigrún Sól Ólafsdóttir
leikkona er 37 ára.
Ingibjörg
Stefánsdóttir
leikkona er
33 ára.
Örn Arnar-
son sundkappi
er 24 ára.
JAR‹ARFARIR
15.00 Lára Káradóttir verður jarðsungin
frá Fossvogskapellu.
SIGURÐUR Þ. GÚSTAFSSON Ísland var þriðja landið sem stofnaði Gídeonfélag. Í dag
starfa félögin í 180 löndum.
Á þessum degi árið 1888 fannst lík
vændiskonunnar Mary Ann Nichols í
London. Hún var fyrsta fórnarlamb
raðmorðingjans Jack the Ripper, eða
Kobba kviðristu eins og hann var kall-
aður.
Lík Nichols fannst limlest í
Whitechapel-hverfinu í austurhluta
London. Fjórar konur til viðbótar voru
myrtar á næstu vikum en sökudólgur-
inn fannst aldrei.
Fátækustu íbúar London bjuggu í
austurhluta borgarinnar og margar
konur neyddust til þess að framfleyta
sér með vændi. Sumarið 1888 beindi
raðmorðingi sjónum sínum að þess-
um ógæfusömu konum. Hinn 8. september drap
hann aðra konu og í lok sama mánaðar tvær konur
í viðbót. Allar konurnar voru limlestar og illa skorn-
ar.
Lögreglan í London áttaði sig á
mynstri morðingjans; hann bauð þeim
greiðslu fyrir kynlíf og lokkaði þær inn
í afvikin sund þar sem hann skar þær
á háls og risti þær upp á meðan þeim
blæddi til ólífis. Lögreglunni bárust
fjöldi bréfa frá mönnum sem kváðust
vera morðinginn. Flest voru afskrifuð
sem falsanir en tvö bréf innihéldu lýs-
ingar sem gátu aðeins verið morðingj-
anum og lögreglunni kunnar. Bréfritar-
inn undirritaði bréfin sem Jack the
Ripper.
Hinn 7. nóvember drap hann síðasta
fórnarlamb sitt, vændiskonu að nafni
Mary Kelly. Lík hennar var verst útileikið eftir
ódæðismanninn. Árið 1892 höfðu engar vísbend-
ingar bæst við og var rannsókn málsins hætt.
JACK THE RIPPER
ÞETTA GERÐIST > 31. ÁGÚST 1888 MERKISATBURÐIR
1535 Páll II páfi bannfærir Hinrik VIII
Englandskonung.
1897 Thomas Edison fær einkaleyfi á
kvikmyndatökuvélinni.
1919 Jóhann Sigurjónsson skáld deyr.
1955 Borgarísjakar sjást á óvenjulegum
slóðum, um 100 sjómílur suð-
vestur af Reykjanesi.
1962 Trínidad og Tóbagó hljóta sjálf-
stæði frá Bretlandi.
1976 George Harrison er fundinn sekur
um að hafa stolið laginu My
Sweet Lord.
1980 Silfursjóður fannst við Miðhús í
Fljótsdalshéraði.
1994 Síðustu rússnesku hermennirnir
yfirgefa Eistland og Lettland.
Kobbi kvi›rista lætur til skarar skrí›a
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Steinunn Þórðardóttir
frá Grund á Akranesi,
sem lést á Dvalarheimilinu Höfða, mánudaginn 29. ágúst, verður
jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 2. september kl. 10.30.
Bjarni Ó. Árnason Áslaug Hjartardóttir
Sigríður Árnadóttir Kristján Kristjánsson
Þórður Árnason Sesselja Engilbertsdóttir
Emilía Petrea Árnadóttir Guttormur Jónsson
Ingibjörg Árnadóttir Sigurður Ingimarsson
Sigrún Árnadóttir
Elín Árnadóttir
Steinunn Árnadóttir Þorkell Einarsson
Guðmundur Árnason Sigrún Traustadóttir
Hrafnhildur Jónsdóttir
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Sæmundar Árna Hermannssonar
Jöklatúni 3, Sauðárkróki.
Ása Sigríður Helgadóttir
Elín Helga Sæmundsdóttir Jón Örn Berndsen
Herdís Á. Sæmundardóttir Guðmundur Ragnarsson
Hafsteinn Sæmundsson Sigríður Ólöf Sigurðardóttir
Gunnhildur María Sæmundsdóttir Ragnar Sveinsson
Margrét Sæmundsdóttir Árni Kristinsson
Hermann Sæmundsson Guðrún Sesselja Grímsdóttir
Anna Elísabet Sæmundsdóttir Friðrik Arnar Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
www.steinsmidjan.is
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma, dóttir og systir,
Sesselja Margrét Magnúsdóttir
Faxaskjóli 18, 107 Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 2. september
kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélag
Íslands.
Ólafur Jón Briem
Eiríkur Atli Briem Ásdís Halla Arnardóttir
Anna Margrét Briem Gunnar Páll Pálsson
Benta Magnea Briem Tryggvi Níelsson
Þóra Kristín Briem
Kristín Þórðardóttir
Þórður Magnússon Rósa Sigurðardóttir
Auður Magnúsdóttir
og barnabörn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A