Fréttablaðið - 31.08.2005, Blaðsíða 63
MIÐVIKUDAGUR 31. ágúst 2005 23
Fjögur heimatöp í rö›
Keflavík vann 1–0 sigur á Fylki í Árbænum í gær:
FÓTBOLTI Fylkismenn töpuðu sínum
fjórða heimaleik í röð þegar
Keflavík vann sigur í Árbænum
með marki Hólmars Arnar Rún-
arssonar á 77. mínútu. Þorlákur
Árnason, fráfarandi þjálfari Fylk-
is, sagði að úrslitin væru mjög
svekkjandi.
„Við vorum sérstaklega góðir í
fyrri hálfleik og í heildina var
þetta einn af okkar bestu leikjum
í sumar. Maður er því nánast orð-
laus. Við vorum sjálfum okkur
verstir,“ sagði Þorlákur.
Það vakti athygli að Haukur
Ingi Guðnason var í byrjunarliði
Fylkis í fyrsta sinn eftir að hann
jafnaði sig af þeim meiðslum sem
hafa hrjáð hann undanfarin tvö ár.
Hann hleypti miklu lífi í sóknar-
leik Fylkis og voru heimamenn
klaufar að skora ekki í fyrri hálf-
leik því þeir léku varnarmenn
Keflavíkur oft grátt. Haukur Ingi
fór haltrandi út af snemma í síðari
hálfleik. Þá kom Ólafur Stígsson
inn á sem varamaður í fyrsta sinn
síðan hann meiddist á síðasta
tímabili með Fylki.
„Þeir negldu Hauk úr þessum
leik en dómarinn leyfði mjög
grófa spilamennsku og högnuðust
þeir á því,“ sagði Þorlákur.
Síðari hálfleikur fór rólega af
stað en eftir því sem á leið komust
Keflvíkingar sífellt meira inn í
leikinn og var það því sanngjarnt
að þeir næðu að skora mark. Þeir
héldu áfram að sækja á lokamín-
útum leiksins og hefðu vel getað
bætt fleiri mörkum við.
Þorlákur mun nú kappkosta við
að forða liðinu frá falli en Fylkis-
menn þurfa helst eitt stig til við-
bótar til að teljast öruggir. Kefl-
víkingar eru hins vegar komnir
aftur í fjórða sætið og eiga enn
möguleika á Evrópusæti.
eirikurst@frettabladid.is
LEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeild karla:
FYLKIR–KEFLAVÍK 0–1
STAÐAN:
FH 16 15 0 1 47–8 45
VALUR 16 10 2 4 28–12 32
ÍA 16 8 2 6 20–19 26
KEFLAVÍK 16 6 6 4 25–28 24
KR 16 7 1 8 19–22 22
FYLKIR 16 6 2 8 25–27 20
FRAM 16 5 2 9 17–25 17
ÍBV 16 5 2 9 18–27 17
GRINDAVÍK 16 4 3 9 19–37 15
ÞRÓTTUR 16 2 4 10 16–29 10
MARKAHÆSTIR:
Tryggvi Guðmundsson, FH 13
Allan Borgvardt, FH 13
Garðar Gunnlaugsson, Val 8
Hörður Sveinsson, Keflavík 8
3. deild karla úrslitakeppni:
ÍH–LEIKNIR F. 2–3
Leiknir F. komst áfram 4–3 samanlagt og mætir
Sindra í undanúrslitunum.
HÖTTUR–GRÓTTA 0–4
Grótta komst áfram 7–0 samanlagt og mætir
Reynir S. í undanúrslitunum.
REYNIR S.–HVÖT 3–2
Reynir S. komst áfram 5–3 samanlagt.
VÍÐIR–SINDRI 0–1
Sindri komst áfram 2–1 samanlagt.
Enska 1. deildin
WOLVES–QPR 3–1
*MAÐUR LEIKSINS
FYLKIR 4–4–2
Bjarni Þórður 6
Ragnar 6
Hrafnkell 6
Valur Fannar 7
Gunnar Þór 5
Viktor Bjarki 6
Helgi Valur 5
Jón Björgvin 5
(79. Christiansen –)
Eyjólfur 6
(49. Ólafur Ingi 5)
Björgólfur 6
Haukur Ingi 6
(49. Kjartan Ágúst 6)
KEFLAVÍK 4–3–1–2
Ómar 7
Jónas Guðni 6
Gustafsson 6
*Guðmundur Mete 7
Milisevic 6
(46. Guðjón Árni 7)
Hólmar Örn 7
Baldur 6
Gestur 5
Guðmundur 6
(84. Stefán Örn –)
Hörður 6
Samuelsen 5
(68. Kadir 6)
SIGURMARKIÐ Hólmar Örn Rúnarsson skorar eina mark leiksins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
0–1
Fylkisv., áhorf: 955 Eyjólfur M. Kristinsson (4)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 16–9 (4–5)
Varin skot Bjarni 4 – Ómar 2
Horn 4–5
Aukaspyrnur fengnar 15–10
Rangstöður 1–6
0–1 Hólmar Örn Rúnarsson (77.)
Fylkir Keflavík
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI