Fréttablaðið - 31.08.2005, Page 64
24 31. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Ég á í ástar-/hat-
urssambandi við
háhælaða skó.
Finnst þeir óskap-
lega fallegir marg-
ir hverjir og finnst
voða gaman að
klæðast þeim þeg-
ar ég punta mig
aðeins og fer eitthvað fínt. En frá
degi til dags þá finnst mér ekki
þægilegt að vera í þeim. Hvorki
stígvélum með háum hæl né skóm.
Háir hælar eru reyndar að ég tel
ein ópraktískasta og furðulegasta
uppfinning sem hefur verið fundin
upp. Af hverju ættum við að vilja
hafa einhvern pinna undir skónum
okkar? Þegar ég hugsa út í það þá
er það ekkert endilega hái hællinn
sem pirrar mig heldur þessi harði
sóli. Harður sóli sem skellur á gólf-
inu og myndar þvílíkan hávaða.
Reyndi einu sinni að fara í flottu
stígvélunum mínum í vinnuna.
Þegar ég labbaði inn á skrifstofuna
þá heyrði ég hins vegar ekkert ann-
að en hljóðið í skónum mínum.
„Bamm bamm bamm bamm bamm
bamm!“ Sá það strax að fólkið sem
sat við borðin sín leit forviða upp
til þess að athuga hver í ósköpun-
um væri að koma. Velti því fyrir
mér hvort þeir sem voru að tala í
símann myndu þurfa að biðja við-
mælandann um að endurtaka það
sem hann var að segja bara af því
að ég var að labba fram hjá. Fannst
þetta óþolandi óþægilegt, leið eins
og algjörri truntu og hugsaði til
þess að ég gæti alveg eins mætt
með þokulúður til þess að vekja
svona mikla athygli á því að ég
væri mætt til vinnu.
Einnig hefði ég getað stormað
inn á skrifstofuna öskrandi og berj-
andi pottlokum saman. „Halló ég er
mætt, halló halló!! Komin að
vinnaaa!!!“ Ég hugsa að háhælaðir
skór með mjúkum botni sem heyr-
ist ekki í bætist í hóp þeirra upp-
finninga sem ég ætla að finna upp
þegar ég verð stór. Í hópnum voru
fyrir ryksuga án snúru (ok ég veit
að það er komið en ég á ekki svo-
leiðis), myndbandsleiga með heim-
sendingarþjónustu því það eiga
ekki allir bíla né hafa videoleigur
nálægt heimilinu þeirra…ooog…
hreingerningargaldur.
STUÐ MILLI STRÍÐA
BORGHILDI GUNNARSDÓTTUR ÞYKIR ÓÞÆGILEGT AÐ GANGA Í SKÓM SEM FRAMKALLA HÁVAÐA.
HÁVAÐASKÓR
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
TOPMAN
framhaldsskólanemar fá
10% afslátt af
öllum vörum hjá okkur
* við framvísun skólaskírteinis
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
5 6 4 2
3 6 2
4 7 3 9 8
6 7 5
8 9 5 1 4 3
4 2 7
9 8 5 3 1
1 2 3
3 9 7 6
■ SUDOKU DAGSINS
Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver
dálkur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á
bilinu 1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar sinnum í sömu línu, sama dálki eða
sama 3x3 kassa. Engin stærðfræðikunnátta er
nauðsynleg þó leikið sé með tölum. Þrautin
er leyst með rökhugsun og útsjónarsemi.
Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á
www.sudoku.com.
Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blað-
inu á morgun.
6 1 2 8 9 7 5 3 4
5 8 9 1 3 4 2 7 6
3 7 4 6 5 2 1 9 8
7 6 1 2 4 5 9 8 3
4 2 8 9 1 3 6 5 7
9 5 3 7 6 8 4 2 1
8 3 6 5 2 1 7 4 9
1 4 5 3 7 9 8 6 2
2 9 7 4 8 6 3 1 5
Lausn á gátu gærdagsins
Enginn veit hver hann í
rauninni er! Hver er hann,
þessi dularfulla skikkju-
klædda vera?
Þessi riddari myrkursins sem
hreinsar öll vötn af óréttlæti
og illsku heimsins....
Gúndi! Ertu
ekki að verða
búinn??
Bíddu
aðeins!!
Halló? Hæ, Palli!
Þetta er Anna.
Nú.
Hæ.
Hvað
segir þú?
Ég var bara að
pæla hvort þú
gætir sagt mér
hvað við eigum
að lesa fyrir
morgundaginn?
Blaðsíður
196-215.
Ooo, Palli!
Þvílíkt minni
sem þú hefur!
Hvernig
manstu svona
lagað?
Þú sagðir
mér þetta eftir
skóla. Fyrir
tveimur tímum
síðan.
Neeeii, og
þetta manstu
LÍKA!
NEI Ekkiaftur!! Eins ogklukka! Mánudagur.
Ég er
glorhungraður!
Hvað er í
matinn?
Tjahh...
Hvað segirðu um
grillaðan lax á
salatbeði með léttri
rjómasósu með dilli,
klettasalati og fersku
gufusoðnu
grænmeti?
Vá!
Það hljómar
eins og
eitthvað af
matseðli á
mjög fínum....
....veitingastað. Ekki gleyma
veskinu!
FÉKK EKKI EINU
SINNI VERJANDA
Dæmdi andlega
vanheilan í 45 daga
fangelsi fyrir smáhnupl