Fréttablaðið - 10.09.2005, Síða 2
2 10. september 2005 LAUGARDAGUR
New Orleans-borg rýmd vegna hættu á farsóttum og eldsvoðum:
fiúsundir íbúa flrjóskast vi›
BANDARÍKIN, AP Her- og lögreglu-
menn gengu hús úr húsi í New Or-
leans í gær, lögðu hald á vopn og
reyndu að fá þá íbúa borgarinnar
sem enn hafast við í húsum sínum
til að yfirgefa borgina vegna
hættu á farsóttum og eldsvoðum.
Lögreglan merkir hús sem lík
finnast í til að sækja þau síðar.
Talið er að allt að 10.000 manns
þrjóskist enn við að verða við fyr-
irmælum um að yfirgefa borgina,
þrátt fyrir kolmórautt og bakter-
íumengað flóðvatnið, sem geymir
meðal annars óljósan fjölda rotn-
andi líka, og skipun borgarstjór-
ans Ray Nagin um að hafa sig á
brott eða vera að öðrum kosti
fluttir þaðan með valdi. En tals-
maður lögreglunnar, Warren
Riley, sagði að með hverjum deg-
inum sem liði yrði ólíklegra að
beita þyrfti nokkurn íbúa valdi,
þar sem þeir gerðu sé nú flestir
grein fyrir að það væri þeim fyrir
bestu; þeir þyrftu ekki að óttast að
óaldaflokkar rændu eigum þeirra
og þeirra biði ekki ringulreið eins
og ríkti fyrstu dagana í Super-
dome-íþróttahöllinni og ráð-
stefnumiðstöð borgarinnar.
- aa
Leit að frönskum ferðamanni:
Fannst látinn í fiórsmörk
SLYSFARIR Franskur ferðamaður
sem leitað hafði verið að fannst
látinn um klukkan þrjú í gær. Í
tilkynningu frá Landsbjörgu
kemur fram að komið hafi verið
auga á líkið úr þyrlu Landhelgis-
gæslunnar í Markarfljóti fyrir
neðan Húsadal í Þórsmörk.
Fyrr um daginn höfðu björg-
unarsveitir fundið vísbendingar
um að maðurinn hefði lent í
vandræðum á leið fyrir Kalda-
klofskvísl sem rennur í Markar-
fljót.
Um 80 björgunarsveitarmenn
voru við leitina í gær frá sveitum
af Suður- og Suðvesturlandi, en
henni var stjórnað frá Hellu.
Maðurinn hét Christian Aball-
éa og var fæddur árið 1972. Eft-
irgrennslan um ferðir hans hófst
annan þessa mánaðar þegar hann
mætti ekki í flug sem hann átti
bókað úr landi. Hann var talinn
hafa ætlað að ganga „Laugaveg-
inn“ til Þórsmerkur og þaðan
yfir Fimmvörðuháls til Skóga.
Síðast var vitað um ferðir hans
25. ágúst í ferðamannaskálanum
Álftavatni. - óká
HEILBRIGÐISMÁL Einkarekinn spítali
í einhverri mynd verður settur á
stofn hér á landi innan næstu
fimm ára, segir Sigurbjörn
Sveinsson, formaður Læknafélags
Íslands. Einfaldasta skilgreining
á hugtakinu spítali er þegar lækn-
ir ber ábyrgð á sjúklingi yfir nótt.
„Það voru nokkrir einstakling-
ar sem voru komnir nokkuð langt
með hugmyndir að einkareknum
spítala fyrir fáeinum árum, en
bökkuðu svo,“ segir Sigurbjörn.
„Þessar hugmyndir mættu tölu-
verðri andspyrnu og þetta fólk
varð fyrir töluverðri aðsókn út af
þessu á sínum vinnustöðum. Það
varð því ekki frekar úr aðgerð-
um.“
Sigurbjörn bendir á að heil-
brigðisráðherra geti ráðið örlög-
um starfsemi af þessu tagi með
pól i t ískum
sjónarmið-
um, þó svo
að ekki sé
gert ráð fyr-
ir almannafé
í stofnun né
rekstri henn-
ar. Starf-
r æ k s l a
einkarekins
spítala sé
háð leyfis-
veitingu ráð-
herrans og
hann geti leyft hana eða hafnað á
grundvelli eigin skoðana um þörf-
ina fyrir hana.
„Það er mín skoðun að staðan
snerti atvinnufrelsisákvæði stjórn-
arskrárinnar eins og hún er núna,“
segir Sigurbjörn. „En það er verið
að endurskoða lög um heilbrigðis-
þjónustu og vonandi verða þau sjón-
armið ofan á að menn geti sett á fót
svona starfsemi ef markaðurinn
óskar eftir því, án íhlutunar hins
pólitíska valds. Með öðrum orðum,
að fagleg sjónarmið séu uppfyllt, en
að öðru leyti sé ekki hægt að stoppa
fólk í að nota menntun sína og þau
leyfi sem það hefur sjálft til þess að
stunda ákveðna starfsemi.“
Sigurbjörn undirstrikar að
starf við heilbrigðisþjónustu sé at-
vinna eins og hvað annað en ekki
líknarstarfsemi eða lítilmagna-
hjálp. Heilbrigðisþjónustan sé
mjög stór hluti af atvinnustarf-
semi í landinu.
„Það leikur enginn vafi á að það
verður frekari þróun í kringum
einkarekstur læknastarfsemi eins
og við sjáum þegar á umfangi
hennar í Orkuhúsinu og Lækna-
setrinu svo dæmi séu nefnd,“ segir
hann. „Þjóðfélagið stefnir í þessa
átt og heilbrigðisþjónustan er þar
ekki undanþegin.“
jss@frettabladid.is
16 ára mannræningi:
Í var›haldi til
októberloka
DÓMSTÓLAR Héraðsdómur Reykja-
víkur úrskurðaði í gær sextán ára
pilt í gæsluvarðhald til 21. októ-
ber eða þar til dómur fellur í máli
hans.
Pilturinn rændi ásamt fjórum
öðrum tæplega tvítugum starfs-
manni Bónuss á föstudaginn fyrir
viku og daginn eftir voru þeir úr-
skurðaðir í sex daga gæsluvarð-
hald. Hinum fjórum hefur verið
sleppt.
Árásarmennirnir hafa borið
því við að þeir hafi verið að inn-
heimta skuld hjá þeim sem þeir
rændu, en honum ógnuðu þeir
með skotvopni og neyddu til að
taka út peninga í hraðbanka.
Pilturinn sem er í haldi var
nýsloppinn úr gæsluvarðhaldi
þegar brotið var framið. - óká
SPURNING DAGSINS
Kristinn, tekur flú ólöglegar
myndir?
Nei, en sumar mynda minna eru eitthvað
að fara á skjön við lögin.
Kristinn H. Benediktsson ljósmyndari hefur farið
fram á lögbann á útgáfu bókarinnar Flýgur fiski-
saga en hann er ósáttur við þá meðferð sem
myndir hans fengu við vinnslu bókarinnar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SJÖ ÁREKSTRAR Í HAFNARFIRÐI
Sjö árekstrar urðu í Hafnarfirði í
gær. Allir urðu þeir skammt frá
gatnamótum Hafnarfjarðarvegar
og Álftanesvegar. Að sögn lögegl-
unnar er líklegt að bleyta á vegi
hafi gert ökumönnum erfitt fyrir.
Allir árekstrarnir voru þó minni-
háttar. Einnig varð minniháttar
árekstur á Ísafirði í gær.
DÓMSTÓLAR
EIGNARNÁMIÐ VAR HEIMILT
Samgönguráðuneytið mátti heimila
Landssíma Íslands eignarnám á
fjarskiptamastri og tveggja metra
breiðri lagnaleið í Stykkishólmi í
ársbyrjun í fyrra, samkvæmt dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur í gær.
Fyrirtækið sem stefndi keypti fast-
eign og lóð af ríkinu árið 2001, en í
afsali var ekkert rætt um mastrið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
AN
D
AR
.S
JÓ
H
ER
IN
N
/A
P
LEITAÐ HÚS ÚR HÚSI Hermenn
sigla milli húsa í kaffærðu hverfi
í New Orleans.
Einkarekinn spítali
innan fimm ára
CHRISTIAN ABALLÉA Franski ferðamaður-
inn sem ekki hafði til spurst síðan í lok
ágúst fannst í gær látinn í Markarfljóti í
Þórsmörk.
Samningar tókust:
20 prósenta
launahækkun
VERKALÝÐSMÁL Nýr kjarasamning-
ur tryggir félagsmönnum Sam-
taka fyrirtækja í heilbrigðisþjón-
ustu, SFH, tuttugu prósenta
launahækkun á samningstíman-
um. Samningarnir eru afturvirkir
og gilda frá 1. febrúar.
Síðdegis í gær var samningur-
inn undirritaður hjá sáttasemjara
en sættir milli SFH og SFR náðust
síðasta miðvikudag en þann sama
dag hefðu félagar í SFH boðað til
verkfalls hefðu samningar ekki
náðst.
Í gær var einnig undirritaður
nýr kjarasamingur við Starfs-
mannafélag Suðurnesja hjá ríkis-
sáttasemjara. - jse
Seinheppnir rummungar:
Gættu ekki a›
felusta›num
LÖGREGLA Tveir menn voru hand-
teknir í Reykjavík aðfaranótt föstu-
dags fyrir árvekni starfsmanna
Ríkislögreglustjóra sem tekið höfðu
eftir golfsetti við bílageymsludyr
embættisins.
Settinu hafði verið stolið úr bíl í
nágrenninu, en starfsmennirnir
biðu þar til þjófana bar að með
meira góss. Þeir gistu fangageymsl-
ur og voru yfirheyrðir í gær. Ómar
Smári Ármannsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í Reykjavík, segir
ekki óalgengt að þjófar feli þýfi sitt
með þessum hætti til að minnka lík-
ur á að vera gripnir með feng sinn.
„Í þetta sinn gættu þeir ekki betur
að vali á geymslustað.“ - óká
Augljóst er a› einkarekinn spítali ver›ur settur á stofn hér á landi innan næstu
fimm ára, segir forma›ur Læknafélags Íslands. Hópur fólks var vel á veg kom-
inn me› slíkar hugmyndir, en bakka›i vegna andspyrnu sem fla› var› fyrir.
ORKUHÚSIÐ Dæmi um einkarekstur í lækningum sem þanist hefur út að undanförnu.
Einkarekinn spítali er næsta skref í þeirri þróun.
SIGURBJÖRN SVEINSSON
Formaður Læknafélags
Íslands.
Hugmyndasamkeppni:
Milljónir í
ver›launafé
VATNSMÝRIN KB banki, Landsbanki,
Íslandsbanki og þróunarfélagið
Þyrping ætla að leggja 21 milljón
króna í alþjóðlega hugmyndasam-
keppni um skipulag Vatnsmýrarinn-
ar. Fulltrúar bankanna og Þyrping-
ar undirrituðu ásamt borgarstjóra
Reykjavíkur samstarfssamning
þess efnis.
Viðskiptabankarnir þrír hafa
aldrei staðið saman að slíku verk-
efni. „Fasteignamarkaðurinn er stór
hluti af starfsemi bankanna. Vatns-
mýrin er mjög áhugavert bygginga-
svæði og það skiptir okkur öll máli
hvernig staðið verður að skipulagi
hennar,“ segir Bjarni Ármannsson,
forstjóri Íslandsbanka. - sgi
GLEÐISTUNDHér er borgarstjórinn í
traustum höndum fjárfesta.
DÓMSTÓLAR
FÆR EKKI BÆTT FALL Húsfélagið í
Lágmúla 5 í Reykjavík hefur ver-
ið sýknað af rúmlega 10 milljóna
króna skaðabótakröfu konu sem
hrasaði og datt um brunnlok fyrir
framan húsið í janúarlok árið
2002 á leið úr verslun Lyfju. Hún
ökklabrotnaði og snerist á hné.
Dómurinn sagði slysið óhappatil-
vik.
KJARASAMNINGAR
NÆR ALLIR KUSU VERKFALL Fé-
lagar í Starfsmannafélagi Akra-
ness samþykktu með 97 prósent-
um greiddra atkvæða að hefja
verkfall 3. október næstkomandi
semjist ekki fyrir þann tíma.
Samningafundir hefjast hjá ríkis-
sáttasemjara fljótlega í næstu
viku.
LITLA-HRAUN Mannræninginn ungi þarf
að sitja á Litla-Hrauni þar til 2. október.