Fréttablaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 30
Engar kókflöskur Flöskur og dósir utan af drykkjarvörum ættu aldrei að liggja á gólfi bifreiðar. Þær geta rúllað undir bremsufótstigið og skapað mikla hættu.[ ] REYNSLUAKSTUR Allt um atvinnu á sunnudögum í Fréttablaðinu. Allt sem þú þarft og meira til ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S P R E 28 04 9 0 4/ 20 05 Lúxus í nettum bíl BMW 1 sker sig vel úr fjöldanum. BMW 1, eða ásinn eins og hann er kallaður, þekkist á löngu færi því enginn bíll lík- ist honum í útliti. Þegar inn er komið blasir við lúxusvið- mót eins og við er að búast í BMW og aksturseiginleikarnir svíkja engan. Ásinn er minnsti bróðirinn í BMW- fjölskyldunni og kemur til móts við þarfir þeirra sem langar í. Ásinn svokallaði er því svolítið öðruvísi en hinn dæmigerði BMW. Hann er smábíll með þeim kostum sem því fylgja, meðal annars því að vera meðfærilegur í borgarumferð. Vissulega er bíllinn ekki í smæsta flokki en þó það nettur að hann hentar vel í stórborgarumferð og bílaþröng en samt er hann nógu stór til að vera ágætur fjölskyldubíll. Ásinn hefur líka sportlega eigin- leika. Fyrst er auðvitað að nefna út- litið, sem er sportlegt með löngum framenda og hárri hliðarlínu. Sömuleiðis er fremur lágt setið í bílnum, sem gefur skemmtilega til- finningu, ekki síst þegar aðeins er gefið í. Auk þess er bíllinn aflmikill og liggur vel á vegi. Ein sérstaða BMW er afturhjóladrifið, sem nán- ast er aflagt hjá öðrum framleið- endum. Bíllinn er svo þannig byggður að jafn þungi er á fram- og afturásnum, sem gerir bílinn afar stöðugan og skemmtilegan á vegi. Inni í bílnum er plássið gott. Sætin eru þægileg og plássið gott frammí. Sama er að segja um aft- ursætin þótt plássið þar sé vissu- lega minna. Bíllinn er vel búinn öll- um þægindum, til dæmis góðum og aðgengilegum geymsluhólfum. Ör- yggismálin eru líka til fyrirmynd- ar, stöðugleikastýring er staðal- búnaður, sex loftpúðar og sér- styrktir stálbitar og dekkin eru hönnuð þannig að hægt er að aka á þeim sprungnum í allt að 250 km á 80 km hraða. Ef tína ætti til einhverja galla á þessum bíl mætti kannski nefna hina háu hliðarlínu, sem samt er lykilatriði í sportlegu og flottu út- liti bílsins, en ásamt lágri setu tak- markar hún nokkuð útsýni til hliða vegna þess hve hár glugginn er, sérstaklega fyrir lágvaxið fólk. Reynsluekið var 118i-gerðinni, sem er með tveggja lítra vél og 129 hestöfl. Aflið er aldeilis ljómandi í þeim bíl, sjálfskiptingin þýð og skemmtileg og handskiptimögu- leikinn er skemmtileg viðbót. Nýjasta viðbótin í ásnum er svo 130i, sem er sportlegri en bræður hans, búinn sex gíra 2.996 cc 265 ha magnesíum/ál vél og fer í hundrað- ið á aðeins 6,1 sekúndu. Þann bíl er hægt að sérpanta hjá B&L. steinunn@frettabladid.is Öryggi, gæði og stíll ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S Y A M 2 94 96 7/ 20 05 www.yamaha.is FATNAÐUR Full búð af Nazran mótorhjólafatnaði á ótrúlega hagstæðu verði. Yamaha-búðin, Nýbýlavegi 2, 200 Kópavogi, s. 570 5300. Xtra, Njarðarbraut 19, 260 Reykjanesbæ, s. 421 1888. Toyota, Baldursnesi 1, 603 Akureyri, s. 460 4300. Útvarpi og miðstöð er haganlega fyrir komið. Lykillinn fer í rauf og bíllinn er ræstur með því að ýta á start- hnappinn. Mælaborð og aksturstölva eru skilmerkileg. BMW 1 LÍNA – 5 DYRA vél l/100 sek í 100 hestöfl verð 116i 1,6 7,5 10,8 115 2.390.000 118i 2,0 7,7 10 129 2.580.000 120i 2,0 7,4 8,7 150 2.780.000 118d 2,0 5,6 10 122 2.660.000 120d 2,0 5,7 7,9 163 2.870.000 FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM Afturendinn er rennilegur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.