Fréttablaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 28
28 10. september 2005 LAUGARDAGUR
Davíð Oddsson verður sautj-ándi bankastjóri Seðla-bankans þegar hann tekur
við því embætti 20. október næst-
komandi. Seðlabanki Íslands var
stofnaður 1961 en áður hafði
Landsbanki Íslands gegnt hlut-
verki seðlabanka allt frá árinu
1927. Af sautján seðlabankastjór-
um hafa tólf verið pólitískt ráðnir.
Þeir hafa ýmist gegnt þingstörf-
um og ráðherrastörfum eða starf-
að í innsta hring stjórnmála-
flokks. Fimm bankastjórar hafa
bakgrunn úr efnahagsgeiranum
og hafa unnið sig upp í stöðu
bankastjóra Seðlabankans. Þar á
meðal er Jóhannes Nordal, sem
hefur lengst verið starfandi
bankastjóri, frá stofnun bankans
1961 allt til 1993, eða í 28 ár.
Einn hinna fimm gegndi stöð-
unni einungis tímabundið. Það var
Ingimundur Friðriksson, aðstoð-
arbankastjóri Seðlabankans, sem
var settur í stöðuna eftir að Finni
Ingólfssyni var veitt lausn frá
embætti.
Átta ráðherrar bankastjórar
Nær helmingur seðlabankastjóra
hefur áður gegnt ráðherraemb-
ættum ef einn ráðherra sem ekki
var þingmaður er meðtalinn,
framsóknarmaðurinn Vilhjálmur
Þór, eða átta af sautján. Fjórir eru
úr Framsóknarflokki, þrír úr
Sjálfstæðisflokki og einn úr Al-
þýðuflokki.
Alls hafa sex framsóknarmenn
gegnt stöðu bankastjóra og hafa
þrír þeirra gegnt ráðherraemb-
ætti á vegum flokksins. Það eru
þeir Tómas Árnason, Steingrímur
Hermannsson og Finnur Ingólfs-
son. Hinir framsóknarmennirnir
þrír, Vilhjálmur Þór, sem reyndar
var utanríkisráðherra og atvinnu-
málaráðherra í utanþingsstjórn
1942-1944, Sigtryggur Klemens-
son og Jón Sigurðsson, voru með-
al helstu trúnaðarmanna forystu
Framsóknarflokksins um áratuga-
bil.
Sjálfstæðismenn hafa átt fjóra
bankastjóra að Davíð Oddssyni
meðtöldum. Auk Davíðs hafa ráð-
herrarnir Birgir Ísleifur Gunn-
arsson og Geir Hallgrímsson
horfið úr stjórnmálum í Seðla-
bankann en fjórði Sjálfstæðis-
maðurinn var Davíð Ólafsson,
þingmaður flokksins.
Vinstriflokkarnir hafa átt tvo
seðlabankastjóra. Sá fyrri var úr
Sósíalistaflokknum og fyrsti
seðlabankastjóri úr þeim armi
stjórnmálanna, Guðmundur
Hjartarson. Hinn síðari er Jón
Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra
Alþýðuflokksins.
Gagnrýni á ráðningar
Pólitískar ráðningar í stöðu seðla-
bankastjóra hafa löngum hlotið
gagnrýni. Jóhanna Sigurðardóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar, er
ein þeirra sem fundið hafa að
ráðningunum. Hún var ein
þriggja þingmanna Samfylkingar-
innar sem lögðu fram frumvarp
til breytingar á lögum um Seðla-
banka Íslands 2003 þess eðlis að
auglýsa skyldi stöðu bankastjóra
lausa. Einnig skyldi þess krafist
að bankastjórar hefðu reynslu og
víðtæka þekkingu á peningamál-
um og öðrum efnahagsmálum.
Í umræðum um frumvarpið
sagði Jóhanna: „Það er eins og
staða seðlabankastjóra sé eins
konar pólitískt hæli fyrir stjórn-
málamenn þegar þeir hætta störf-
um og það er auðvitað erfitt að
þurfa að búa við slíka tíma-
skekkju í stjórnkerfinu.“
Þorvaldur Gylfason hagfræð-
ingur skrifaði grein í Morgun-
blaðið í október 1994 og gagn-
rýndi þar ráðningu Steingríms
Hermannssonar í stól seðlabanka-
stjóra. Þar sagði Þorvaldur: „Og
nú er svo komið, að sá stjórnmála-
leiðtogi landsins, sem jafnan hef-
ur verið hægt að treysta best til
að fjalla óskynsamlega um efna-
hags- og fjármál þjóðarinnar á
undanförnum árum, er orðinn
bankastjóri í Seðlabanka Íslands.
Yfirgripsmikil vanþekking hans á
efnahagsmálum er rómuð langt út
fyrir landsteinana. Hann hefur
lýst því yfir, að vestrænar hag-
stjórnaraðferðir eigi ekki við á Ís-
landi og öðru eftir því, og er nú
orðinn einn helsti efnahagsráðu-
nautur ríkisstjórnar Davíðs Odd-
sonar. Einn fyrirferðarmesti hold-
gervingur fortíðarvandans er orð-
inn yfirmaður bankaeftirlitsins!“
Á ekki að úthluta pólitískt
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar og
bankaráðsmaður í Seðlabankan-
um, segir að stöðu seðlabanka-
stjóra eigi ekki að úthluta póli-
tískt. Hún var einn þriggja þing-
manna Samfylkingarinnar sem
lögðu fram frumvarpið sem nefnt
var hér að framan.
„Þeir sem veljast til starfs
seðlabankastjóra eiga að hafa
reynslu og þekkingu og helst
menntun á því sviði. Þó að menn
geti verið mætir og gegnir og
allra góðra gjalda verðir er ekki
þar með sagt að þeir passi endi-
lega í starf seðlabankastjóra,“
segir Ingibjörg Sólrún. „Ég lít svo
á að í slíkt starf, sem skiptir jafn
BANKASTJÓRN
Se›labanka Íslands
[ frá stofnun bankans 1961]
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
„Það er ekki í takt við breytta tíma að
standa svona að málum eins og gert er.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun
sem fer með stjórn efnahagsmála en ekki
framlenging á ráðuneyti efnahagsmála.“
JÓHANNES NORDAL 1961-1993
MENNTUN: Doktorspróf í
hagfræði frá University
of London
FYRRI STÖRF: Hagfræð-
ingur Landsbanka Ís-
lands 1954-1958. Settur
bankastjóri Landsbankans 1958.
Bankastjóri Seðlabankans 1961.
JÓN G. MARÍASSON 1961-1967
MENNTUN: Verslunar-
nám í Kaupmannahöfn.
FYRRI STÖRF: Starfaði
hjá Landsbankanum frá
1919-1957, bankastjóri
Landsbankans 1945-
1957. Bankastjóri Seðlabanka Íslands
1957-1967.
VILHJÁLMUR ÞÓR 1961-1964
MENNTUN: Skyldunám
FYRRI STÖRF: Ýmis störf
hjá KEA frá unga aldri.
Framkvæmdastjóri KEA
1923-1940 og einn af
helstu trúnaðarmönn-
um forystu Framsóknarflokksins um
áratugabil. Aðalræðismaður Íslands fyr-
ir Bandaríkin 1940-1942. Utanríkisráð-
herra og atvinnumálaráðherra í utan-
þingsstjórn 1942-1944. Bankastjóri
Landsbankans 1940-1941, 1944-1946
og 1954-1957. Forstjóri SÍS 1946-1954.
Aðalbankastjóri Seðlabanka Íslands
1957-1961, þá skipaður bankastjóri
Seðlabankans eftir nýju Seðlabankalög-
unum.
SIGTRYGGUR KLEMENSSON 1966-1971
MENNTUN: Lögfræðipróf
frá Háskóla Íslands.
Framhaldsnám í tolla-
og skattalöggjöf í Kaup-
mannahöfn, Ósló og
Stokkhólmi.
FYRRI STÖRF: Hafði eftirlit með toll-
gæslu utan Reykjavíkur 1938-1948.
Fulltrúi í fjármálaráðuneytinu 1939.
Forstöðumaður Skömmtunarskrifstofu
ríkisins 1939-1947. Ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu 1952-1966. Í mið-
stjórn Framsóknarflokksins um árabil.
DAVÍÐ ÓLAFSSON 1967-1986
MENNTUN: Hagfræði-
próf frá Kiel.
FYRRI STÖRF: Þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
1963-1967. Varaþing-
maður 1959-1963.
Fiskimálastjóri 1940-1967.
SVANBJÖRN FRÍMANNSSON 1971-1973
MENNTUN: Nám í
bankafræðum og
tungumálum í Dan-
mörku og Þýskalandi
veturinn 1928-1929 og í
London 1935-1936.
FYRRI STÖRF: Vann hjá Íslandsbanka og
síðar Útvegsbanka Íslands á Akureyri
1920-1935. Vann hjá Landsbanka Ís-
lands frá 1936, sem aðalféhirðir 1937-
1942, aðalbókari og aðstoðarbanka-
stjóri 1945-1957, og bankastjóri frá
1957 til 1970.
GUÐMUNDUR HJARTARSON 1974-1984
MENNTUN: Skyldunám.
FYRRI STÖRF: Starfsmað-
ur Sósíalistaflokksins
1946-56 og forstjóri
Innflutningsskrifstofunn-
ar 1956-60. Vann ýmis
störf fyrir Sósíalistaflokkinn frá 1960.
TÓMAS ÁRNASON 1985-1993
MENNTUN: Lögfræðipróf
frá Háskóla Íslands.
Framhaldsnám í al-
þjóðaverslunarrétti við
Harvard Law School,
Bandaríkjunum.
FYRRI STÖRF: Þingmaður Framsóknar-
flokksins 1974-1985. Varaþingmaður á
árunum 1954-1959 og 1967-1974.
Fjármálaráðherra 1978-1979. Viðskipta-
ráðherra 1980-1983.
GEIR HALLGRÍMSSON 1986-1990
MENNTUn: Lögfræðipróf
frá Háskóla Íslands.
Framhaldsnám í lög-
fræði og hagfræði eitt
ár við Harvard Law
School, Bandaríkjunum.
FYRRI störf: Þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins 1970-1983. Varaþingmaður á
árunum 1960-1970. Forsætisráðherra
1974-1978. Utanríkisráðherra 1983-
1986. Varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins 1971-1973, formaður flokksins
1973-1983.
STEINGRÍMUR HERMANNSSON 1994-1998
MENNTUN: Verkfræðipróf
frá California Institute of
Technology í Pasadena.
FYRRI STÖRF: Þingmaður
Framsóknarflokksins
1971-1984. Dóms- og
kirkjumálaráðherra og landbúnaðarráð-
herra 1978-1979. Sjávarútvegs- og
samgönguráðherra 1980-1983. Forsæt-
isráðherra 1983-1987 og 1988-1991.
Utanríkisráðherra 1987-1988.
JÓN SIGURÐSSON 1993-1994
MENNTUN: Próf í þjóð-
hagfræði frá London
School of Economics.
FYRRI STÖRF: Efnahags-
stofnun 1964-1971. For-
stöðumaður hagrann-
sóknadeildar Framkvæmdastofnunar
ríkisins 1972-1974. Forstjóri Þjóðhags-
stofnunar 1974-1986
Þingmaður Alþýðuflokksins 1987-1993.
Dóms- og kirkjumála- og viðskiptaráð-
herra 1987-1988, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra 1988-1993.
FINNUR INGÓLFSSON 2000-2002
MENNTUN: Viðskipta-
fræðipróf frá Háskóla Ís-
lands
FYRRI STÖRF: Aðstoðar-
maður sjávarútvegsráð-
herra 1983-1987. Aðstoð-
armaður heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra 1987-1991. Þingmaður Fram-
sóknarflokksins 1991-1999. Formaður
þingflokks framsóknarmanna 1994-
1995. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
1995-1999.
INGIMUNDUR FRIÐRIKSSON 2002-2003
MENNTUN: Hagfræðipróf frá
University of West-Virginia.
FYRRI STÖRF: Hagfræðingur hjá
Seðlabankanum 1975-1982 og
1984-1986. Forstöðumaður al-
þjóðadeildar 1986-1991. Að-
stoðarmaður fastafulltrúa Norðurlandanna í
framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
1982-1984. Fastafulltrúi 1991-1993. Ráðu-
nautur bankastjórnar Seðlabankans 1993-
1994. Aðstoðarbankastjóri Seðlabankans frá
1994. Settur tímabundið í starf bankastjóra
eftir að Finni Ingólfssyni var veitt lausn frá
embætti.
SIGURÐUR SNÆVARR
„Ég hef mikla trú á hagfræði og hagfræð-
ingum en mér finnst fráleitt að það sé skil-
yrði til að gegna þessu starfi að menn hafi
einhvern sérstakan bakgrunn.“
ÞORVALDUR GYLFASON
„Slíkir menn eru ekki taldir henta til seðla-
bankastjórastarfa í nálægum löndum, ekki
heldur í Afríku nema á stöku stað, og gildir
þá einu, hversu vel þeir kunna að hafa
reynst í ólgusjó stjórnmálanna.“
Tólf af sautján se›labankastjórum hafa veri› póli-
tískt rá›nir. Flestir fleirra voru framsóknarmenn. Átta
se›labankastjórar voru á›ur rá›herrar. Sigrí›ur
Dögg Au›unsdóttir sko›ar menntun og starfsreynslu
se›labankastjóra frá stofnun bankans 1961.
UM HELMINGUR SEÐLABANKA-
STJÓRA FYRRUM RÁÐHERRAR