Fréttablaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 34
Pilsin poka lítið
eitt og
mittisstrengurinn
er breiður.
Kvenlegir
flögrandi sumarkjólar
Vettlingar eru nauðsynlegir þessa dagana. Þótt vettlingar séu fyrst og
fremst skjólflíkur þá geta þeir líka verið hin mesta tískuvara. Úrvalið er
mikið og það er tilvalið að fjárfesta í litríkum og skemmtilegum vettling-
um fyrir veturinn.[
]
Tískuvikan í New York hófst í
vikunni með sýningu Nicole
Miller.
Tískuvikan í New York hófst með
pompi og prakt í vikunni með
sýningu Nicole Miller á vor- og
sumartískunni 2006, sem gaf
tóninn fyrir það sem koma
skal. Fötin á sýningu Nicole
Miller voru mjög kvenleg,
mikið um pils og þunna og
flögrandi kjóla ásamt
skartgripum og pallí-
ettum. Mittisstreng-
urinn á pilsunum
er breiður og yfir-
leitt eru notuð belti
um mittið, pilsin
þrengjast niður og
undirstrika kven-
legar línur. Litlar
heklaðar jakka-
peysur voru not-
aðar yfir þunnar
silkiskyrtur í stíl
við víðar stuttbuxur. Hvíti liturinn var
allsráðandi ásamt gylltum og fjólubláum
og áhrifa frá Afríku gætti í skartgripum
og munstri á kjólum og toppum sem not-
aðir voru við hvítar buxur eða pils.
Kvenleiki og fegurð er málið hjá Nicole
Miller næsta sumar og fær kvenlegur
vöxturinn að njóta sín. Tískuvikan stend-
ur fram í næstu viku og sýnir fjöldinn
allur af heimsfrægum hönnuðum tísku
næsta sumars.
Hlébarðamunstur vinsælt í
Hollywood.
M T V- t ó n l i s t a r v e r ð l a u n a a f -
hendingin fór fram á dögunum og
að sjálfsögðu mættu stjörnurnar
þar í sínu fínasta pússi. Mikið var
um flegna kjóla og flotta kroppa,
en senuþjófarnir voru Gwen Stef-
ani og Lindsay Lohan, sem báðar
mættu í kjólum með hlébarða-
munstri. Ekki voru þær þó í alveg
eins kjólum, en þeir voru mjög
svipaðir. Báðir kjólarnir voru
þröngir og náðu niður fyrir hné og
með belti í mittið. Kjóllinn sem
Gwen var í var opinn í bakið og lét
hún hvítan brjóstahaldarann
standa upp úr kjólnum að framan.
Lítil svört blúnda gægðist upp úr
kjólnum hjá Lindasy.
Kattard‡r á rau›a dreglinum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/N
O
R
D
IC
P
H
O
TO
/G
ET
TY
Gwen Stefani er alltaf flott og var sérstak-
lega glæsileg í hlébarðakjólnum sínum.
Lindsay Lohan í hlébarðakjólnum. Hún
lætur liðað hárið falla frjálst yfir axlirnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
ET
TY
Fallegt fjólublátt
pokapils með
breiðum streng.
Þunnur hvít-
ur kjóll með
gylltum pall-
íettum á
berustykki.
Kvenlegur fjólublár og
gylltur kjóll sem tekinn er
saman undir brjóstunum
með glitrandi belti.
Fjólubláti liturinn,
mynstur og flögrandi
efni voru áberandi á
sýningunni.
Gylltar pallíettur munu glitra í sólinni næsta sumar
Ekkert lát virðist á gylltu tískunni.
Kvenlegar og krúttlegar jakkapeys-
ur eru notaðar yfir kjóla.