Fréttablaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 62
10. september 2005 LAUGARDAGUR
> Við bendum ...
... þeim stuðningsmönnum Breiðabliks
sem vilja vera viðstaddir bikarafhending-
una í dag á að kynna sér leiðakerfi Strætó.
Bílastæði við Kópavogsvöllinn munu
nefnilega vera af skornum skammti vegna
Sjávarútvegssýningarinnar í Smáralind um
helgina.
Bikarafhending í dag
Það er nú ljóst að Blikar fá sigurlaun sín
fyrir sigur í 1. deildinni afhent eftir leik-
inn gegn KA í dag. Breiðablik hafði farið
fram á að fá bikarinn afhendann um
næstu helgi þar sem margir stuðnings-
manna og starfsmanna félagsins verða
bundnir af Sjávarútvegssýningunni í
Smáralind.
sport@frettabladid.is
38
> Við skiljum ekki ...
.... af hverju Georgíumennirnir Tite
Kalandadze og Roland Eradze gátu ekkert
sagt Valsmönnum um mótherja liðsins í
Evrópukeppninni, H/C Tiblisi sem mun
vera langbesta lið Georgíu.
Ekki ber á öðru en að
sálfræðistríð Vals og
Stjörnunnar sé nú þegar
hafið. Það er svo spurning
hversu mikið Georgíu-
liðið veit um lið Vals?
Úrslitaleikurinn í VISA-bikarkeppni kvenna fer fram á Laugardalsvelli í dag en
flar mætast Brei›ablik og KR. KR er eina li›i› í Landsbankadeild kvenna sem
ekki tapa›i bá›um leikjum sínum gegn Brei›ablik í sumar.
Dagsformið ræður úrslitum
FÓTBOLTI Breiðablik hefur átt góðu
gengi að fagna í sumar og sigraði
í Landsbankadeildinni með tölu-
verðum yfirburðum en eini leik-
urinn sem liðinu hefur ekki tekist
að vinna var gegn KR, en þeim
leik lauk með 0-0 jafntefli í
Frostaskjólinu.
Helena Ólafsdóttir, þjálfari
KR, á ekki von á því að sú stað-
reynd að KR er eina liðið sem
fengið hefur stig út úr viðureign
við Breiðablik í sumar, muni
hjálpa liðinu í úrslitaleiknum.
„Við höfum misst fimm leikmenn
til útlanda í nám þannig að hópur-
inn okkar er þunnskipaðri en hann
hefur verið í allt sumar. En það
eru allir leikmenn leikfærir og ég
hef fundið fyrir mikilli tilhlökkun
hjá leikmönnum fyrir því að spila
þennan úrslitaleik. Ég ætla að
leggja áherslu á það að stelpurnar
hafi gaman að því að spila leikinn
og leggi sig fram hvor fyrir
aðra.“
Breiðablik og KR hafa fjórum
sinnum mæst í úrslitum bikar-
keppninnar og hefur Breiðablik
haft betur í þremur viðureign-
anna en KR einu sinni. Breiðablik
hefur þrettán sinnum leikið til úr-
slita í bikarkeppni og unnið átta
sinnum, en KR hefur tvisvar sinn-
um unnið bikarinn í sex úrslita-
leikjum til þessa.
Úlfar Hinriksson, þjálfari
Breiðabliks, er viss um að jafn-
ræði verði með liðunum í leikn-
um. „Bikarleikir eru alltaf erfiðir
og sérstaklega þegar leikið er til
úrslita því það sem ræður oft úr-
slitum er hvernig leikmenn ná að
standa sig undir því mikla álagi
sem er í úrslitaleikjum. Ég mun
leggja áherslu á það að stelpurnar
verði tilbúnar í slaginn og er með-
vitaður um að KR er með gott lið.
Við lentum í erfiðleikum á móti
KR í sumar og það var í raun
heppni sem réð því að við gerðum
jafntefli í Frostaskjólinu. Þetta
verður því örugglega mikil bar-
átta og ef við ætlum að vinna þá
verða stelpurnar að halda ró sinni
og einbeita sér að því að spila fót-
bolta eins og þær geta best. Það
er lykilatriði að láta ekki spenn-
una trufla sig.“
magnush@frettabladid.is
Mark Ward, fyrrum Valsari:
FÓTBOLTI Englendingurinn Mark
Ward sem lék með Valsmönnum í
efstu deild karla árið 1998 á yfir
höfði sér langan fangelsisdóm eft-
ir að fjögur kíló af kókaíni fundust
í íbúð hans fyrr á árinu. Í gær ját-
aði hann að efnið væri í hans eigu
og fangelsisdómur yfir honum
verður kveðinn upp í Liverpool
þann 4. október nk.
Ward var afar vinsæll meðal
samherja í herbúðum Vals á sínum
tíma og lýsir Sigurbjörn Hreiðars-
son fyrirliði Vals sem lék með hon-
um á sínum tíma með Hlíðarenda-
liðinu sem algjörum toppmanni.
„Leiðinlegt að heyra af þessu en
svona er þetta, oft vita þessir
knattspyrnumenn ekkert hvað
þeir eiga að taka sér fyrir hendur
að loknum knattspyrnuferlinum.
Ward er þessi dæmigerði Eng-
lendingur, alltaf með eitthvert
grín,“ sagði fyrirliði Valsmanna.
Ward er að mörgum talinn ein-
hver besti leikmaður Englands
sem aldrei hefur leikið með lands-
liðinu. Ward var lykilmaður í liði
West Ham árið 1986 en þá náði fé-
lagið sínum besta árangri í efstu
deild, þriðja sæti. Auk Vals og
West Ham lék Ward með
Manchester City og Everton.
Gripinn me›
kókaín
Valur tekur á móti H/C Tbilisi í dag og á
morgun í 1. umferð Evrópukeppni félagsliða
í handbolta og fara báðir leikirnir fram í
Laugardalshöll. Leikurinn í dag hefst klukk-
an 17 og á morgun er leikið klukkan 14.10.
Ókeypis er á leikina og því um að gera fyrir
handboltaunnendur að fjölmenna.
Lítið er vitað um þetta georgíska lið og því
má segja að Valsmenn renni blint í sjóinn
fyrir viðureignirnar tvær. Fréttablaðið hafði
samband við Óskar Bjarna Óskarsson, þjálf-
ara Vals, sem var spenntur fyrir viðureignun-
um við þetta nánast óþekkta lið.
„Við vitum að þeir eru með ungt lið, það er
eina vitneskja okkar um þá. Við reyndum að
sjálfsögðu að fá upplýsingar um liðið í
gegnum Róland Val Eradze, fyrrum Vals-
mann. Hann tók hins vegar þann pól í hæð-
ina að tjá sig hvorki við okkur né Georgíu-
mennina en þjálfari þeirra er góðvinur hans
frá því að hann lék í heimalandinu.“
„En annars held ég það skipti ekki öllu máli
þó við vitum lítið um andstæðingana því við
þurfum að hugsa um okkur sjálfa. Við erum
með mikið breytt lið frá því á síðasta tíma-
bili, höfum misst fjóra leikmenn og fengið
aðeins einn.“
„Þrátt fyrir að við séum með óreynt lið í
svona Evrópukeppni vil ég nú meina að
við ættum að fara áfram, því heimavöll-
urinn gefur okkur ákveðið forskot og
vonandi að við fáum góðan stuðning.
Ég er afar þakklátur fyrirtækjunum Danól,
Norðlenska og Ölgerðinni fyrir að bjóða
fólki frítt á völlinn. Það er búið að leggja
mikið í þetta dæmi, það kostaði okkur 1,8
milljónir króna að fá leikina báða hér á
landi,“ sagði Óskar Bjarni, þjálfari Vals.
VALUR MÆTIR H/C TIBLISI FRÁ GEORGÍU: FRÍTT Á BÁÐA LEIKINA
Handboltaveisla í Laugardalnum
Viðurkenningar fyrir ágúst:
Pearce og Bent
valdir bestir
FÓTBOLTI Darren Bent hjá Charlton
Athletic, var kosinn leikmaður
ágústmánuðar í ensku úrvalsdeild-
inni en hann hefur farið mikinn
með liðu sínu í fyrstu leikjum tíma-
bilsins. Bent er búinn að skora
fjögur mörk í deildarkeppninni en
hann kom frá Ipswich Town fyrir
tímabilið.
Stuart Pearce, knattspyrnu-
stjóri Manchester City, var kosinn
besti knattspyrnustjórinn en lið
hans hefur ekki enn tapað leik og
þótt spila skemmtilega knatt-
spyrnu. Hann freistar þess í dag að
halda góðu gengi áfram þegar
Manchester United og Manchester
City mætast í grannaslag á Old
Trafford . - mh
Við mælum
beinþéttni
Pantaðu tíma
í Lágmúla í síma 533 2308
Smáratorgi í síma 564 5600
MARK WARD Lék með Val í stuttan tíma
og átti stóran þátt í því að bjarga liðinu frá
falli árið 1998.
HRIKALEG ÁTÖK Á SKAGANUM Hálandaleikarnir fara fram á Akranesi í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hálandaleikarnir fara fram í dag:
Skotapils á Skaganum
HÁLANDALEIKAR Í dag verður Ís-
landsmótið í Hálandaleikum á
haldið á Akranesi, þar sem flest-
ir okkar fremstu víkingar etja
kappi í kastgreinum á skoska
vísu. Sterkasti maður Íslands,
Kristinn Óskar Haraldsson „Bor-
is“ verður á meðal keppenda
ásamt Auðunni Jónssyni „Vernd-
ara“ og auk þeirra verða þeir
Sæmundur Sæmundsson, Unnar
Garðarsson, Óðinn Björnsson,
Heiðar Geirmundsson, Jens
Fylkisson og gamli kúluvarps-
kóngurinn Pétur Guðmundsson í
eldlínunni.
Boris er í óðaönn að undirbúa
sig fyrir keppnina Sterkasti mað-
ur heims, sem fram fer í Kína í
lok mánaðarins og þegar Frétta-
blaðið náði tali af honum í gær,
sagðist hann vel sáttur við að
taka þátt í einni „léttri“ keppni
áður en hann færi út. „Þetta er af
dálítið öðrum toga en aflraunirn-
ar, en þetta er rosalega skemmti-
legt. Maður á munn síður á hættu
að meiða sig í þessu en í aflraun-
unum og þetta er bara skemmti-
leg tilbreyting. Það er ómögulegt
að segja til um það hverjir eru
sigurstranglegastir í þessari
keppni, en ég tippa á að þeir
Pétur Guðmundsson og Sæ-
mundur eigi eftir að verða mjög
öflugir,“ sagði Óskar, sem viður-
kennir að hann sé ekki mesta
tæknitröllið í hópnum, en segist
vega það upp með styrk.
Keppnin hefst við Skógrækt-
ina á Akranesi klukkan 14 í dag.
- bb
FYRIRLIÐARNIR TAKAST Á UM BIKARINN Hrefna Jóhannesdóttir og Þóra Helgadóttir munu ef-
laust verða í aðalhlutverki í úrslitaleik VISA-bikarsins í dag á Laugardalsvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Birgir Leifur Hafþórsson lék áfimm höggum yfir pari á
áskorendamóti í evrópsku
mótaröðinni sem fram fer í Svíþjóð
þessa dagana. Hann er því á 13
höggum yfir pari eftir fyrstu tvo
hringina, í 126. til 129. sæti og
komst eins og gefur að skilja ekki í
gegnum niðurskurðinn.
Luis Boa Morte, leikmaður Fulham,hefur skrifað undir nýjan fimm
ára samning við félagið. Hann var
oft orðaður við
Newcastle í sumar
en ekkert varð úr
því. Boa Morte
ákvað því að skrifa
undir langtíma-
samning við Ful-
ham en þessi 28
ára Portúgali hefur
verið fyrirliði liðs síns undanfarið.
„Hann hefur spilað 200 leiki á fimm
árum sem þýðir að það séu um 40
leikir á tímabili,“ sagði Chris Cole-
man, knattspyrnustjóri liðsins. „Við
leggjum það ekki í vana að selja
okkar bestu leikmenn og við vildum
skipuleggja framtíð liðsins. Hann er
stór hluti af henni,“ bætti Coleman
við.
ÚR SPORTINU